Mosfellspósturinn - 11.12.1981, Blaðsíða 12
r
Mosfellspósturinn eins árs á morgun:
MP-börnum boöið upp á
súkkulaðitertu og gos
Á morgun, 12. desember, á
Mosfellspósturinn eins árs af-
mæli. Eitt ár er ekki langur tími í
langri ævi, en við erum samt
hreykin af því að MP skuli hafa
lifað af sína frumbernsku. Oft fer
illa fyrir litlun „innansveitar krón-
íkum” og þær lognast út af áður
en þær eru búnar að ná fótfestu í
sveitarfélaginu.
Við vonum að MP hafi náð það
góðri fótfestu að hann falli ekki
um koll, þótt stundum kunni að
hrikta í- stoðunum. Við sem að
blaðinum stöndum höfum ekki
hugsað okkur að gefast upp,
heldur höldum ótrauð áfram.
Til þes að halda upp á afmæli
blaðsins verður sölubömum og
blaðberum boðið til tertuveizlu
klukkan 3 síðdegis á morgun.
Boðið verður upp á súkkulaði-
tertu og freiðandi Soda Stream
gos að drekka. -Þeir MP krakk-
ar sem ekki hefur náðst til eru
hérmeð minntir á að koma að
Merkjateig 2 á morgun klukkan 3
síðdegis.
r
v
Kiwanismenn í Geysi í jólaskapi:
Sel ja jólatré
nú um helgina
— allur ágóði til líknarmála í sveitar-
félaginu
Jólatrésala Kiwanisklúbbs-
ins Geysis hefst í Urðarholti 3 í
kvöld, föstudagskvöld.
Sölunni verður haldið áfram
á morgun, laugardag við verzl-
unarmiðstöðina í Þverholti þar
sem Kiwanismenn verða
klæddir jólasveinabúning og
taka þátt í jólagleðskap verzl-
unareigendanna í Þverholti.
Á sunnudaginn aka Kiwanis-
menn síðan um sveitina og
bjóða þeim sem ekki hafa þeg-
ar átt við þá viðskipti upp á
greinar, tré, jólapappír og
kerti.
Jólatréin eru alls staðar seld
á sama verði en allur ágóði
sem inn kemur rennur til líkn-
arstarfa innan sveitarinnar, nú
sem fyrr hjá Geysismönnum.
Félagar í Kiwanisklúbbnum
Geysi eru þrjátíu og þrír tals-
ins og eru þeir allir virkir. For-
maður er Bjarni Matthiesen
brunavörður.
♦
Það blés duglega í skeggið á
þessum jólasveinum, sem sáust
fyrst í Mosfellssveitinni. Vel má
vera að hér séu þeir á ferð sem
selja munu jólatré, kerti og papp-
ír hér í sveit - auk þes sem þeir
munu setja svp á hátíðina í
Þverholti á morgun.
MP-mynd S.
270-Varmá og 280-Eyrarkot:
Gleymum ekki póstnúmerum
Fyrsta nafnið sem þú skrifar á
umslagið á að vera þitt eigið nafn
segir í bandarískum leiðbeining-
um um póstsendingar. Þetta er
ágæt regla, sem við ættum einn-
ig að temja okkur.
Erlendis eru póstnúmerin
nauðsynleg til þess að bréf kom-
ist til skila. Það eru nú fáein ár
síðan póstnúmerakerfi var tekið
upp hér á landi, en menn eru
frekar slappir við að nota það.
Við leyfum okkur að minna
menn á að setja póstnúmer ut-
an á jólapóstinn. Það auðveldar
alla sundurgreiningu pósts. Og
þótt póstsendingar komizt e.t.v.
til skila innanlands póstnúmera-
lausar, þá getur farið svo ef um
erlendar póstsendingar er að
ræða að þær komizt hreinlega
ekki til skila ef þær eru ekki með
réttu póstnúmeri.
Það þarf sennilega ekki að
segja neinum sem býr í Mos-
fellssveit hver utanáskrift þeirra
er, 270 Varmá. Kjósin hefur 280
Eyrarkot. Þó getur verið að ein-
hverjum sé ókunnugt um að ef
um póstsendingu frá útlöndum
er að ræða á að bæta ÍS framan
við póstnúmerið.
Á pósthúsinu er hægt að fá
póstnúmeraskrá, sem gefin er út
af póst- og símamálastofnun-
inni.
Þekkir þú örnefnið „Þríhymir” í Mosfelli?
,,Mér dettur í hug að biðja
Mosfellspóstinn að lýsa eftir
upplýsingum um örnefni fyrir
mig” sagði Bjarni Þorvarðarson
oddviti Kjalarneshrepps í sam-
tali við MP.
Bjarna vanhagar um upplýs-
ingar um örnefni, sem er landa-
merki bæjannna Þverárkots og
Hrafnhóla og nefnist „Þríhyrnir í
Mosfelli”.
Ef einhver lesanda MP getur
upplýst oddvita þeirra Kjalnes-
inga um þetta örnefni, „Þríhyrnir
í Mosfelli” er hann beðinn um að
hafa samband við Bjarna eða
MP, sem, þá kæmi upplýsingun-
um áleiðis.
Föstudagur 11. desember 1981
* '
Flugelda-
sala milli
jóla og
nýárs
Þessa dagana er björgunar-
sveitin Kyndill að undirbúa árlega
flugeldasölu sína. Verið er að
pakka flugeldunum í svokallaðar
fjölskyldupakkningar.
Milli jóla og nýárs verður flug-
eldasalan starfrækt við hús björg-
unarsveitarinnar, Rykvelli. Kyndill
hefur á undanförnum árum ann-
ast flugeldasölu hér í sveit og á
gamlárskvöld hefur sveitin skotið
á loft undurfögrum fugeldum, sem
hafa nánast lýst upp alla sveitina.
' *
Flugbraut
áfram
við Leiru-
voginn
— hrepps-
nefndin ekki
sammála um
máSin
Flugbrautin á Leiruvogsbökk-
um hefur áframhaldandi leyfi
hreppsnefndar, en tekið er fram
að leyfið sé veitt „til bráðabirgða
og til reynslu". Mál þessi bar að-
eins á góma á borgarafundinum.
Forráðamenn hreppsins töldu,
að ekki hefði orðið eins mikið
ónæði af flugbrautinni og fólk ótt-
aðist fyrir fram. Um væri að ræða
lendingar og flugtök heimamanna
einna, og því umferð sem lítið
truflaði.
Þeir kváðu aðalónæðið í fyrstu
hafa orðið vegna módelflugs. Það
hefði verið stöðvað og eftir það
ekki umtalsvert ónæði af flugi
heimamanna.
Guðmundur Sigurþórsson,
hreppsnefndarmaður Alþýðu-
flokksins, kvaðst óánægður með
að bráðabirgðaleyfi flugbrautar
hefði verið framlengt. Flugvallar-
landið væri hluti af útivistarsvæði
og allt of viðkvæmt til að gegna
hlutverki flugvallar.
Karl Friðrik Kristjánsson taldi að
flugbraut samrýmdist ekki umferð
hestamanna, né barna og ungl-
inga sem oft væru- að leik eða
unglinga sem á nálægum svæð-
um iðka íþróttir.
[13 Y 1
Allt dilkakjöt, hangikjötið góóa
frá Goða, smjör og smörvi
r
a
GAMLA VERÐINU!
ALLT í JÓLABAKSTURINN
GERIÐ HAGKVÆM JÓLAINNKAUP
HITTUMST OG VERSLUM
I KAUPFÉLAGINU.
Kaupfélag Kjalarnesþings
Símar 66226 og 66450 — Mosfellssveit