Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.08.1983, Síða 3

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.08.1983, Síða 3
SKIPULAGS- HÖFUÐBOftGARSViEfNSINS || Á I MAL 2 TBL 4 ÁRG. 1983 Fréttablaðið SKIPULAGSMÁL HÖFUÐBORGARSVÆÐISINS er gefið út af Skipulagsstofu höfuðborgarsvæðisins, Hamraborg 7, 200 Kópavogi, sími 45155 og kemur út fjórum sinnum á ári. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Gestur Ólafsson. Efnisyfirlit: * Landnbotkun, landnýting og umferð 3 Gestur Ólafsson * Skipulag landnotkunar og umferðar 5 Þórarinn Hjaltason * Hugleiðingar um skipulag umferðarmála á höfuðborgarsvæðinu n Zóphonías Pálsson * Síma- og sjónvarpssambönd á höfuðborgarsvæðinu 15 Ólafur Tómasson * Hafnarfjörður - þróun skipulagsmála Einar I. Halldórsson * Aðalskipulag Hafnarfjarðar 1980-2000 Björn Hallson * Hafnarfjörður - miðbær Sigurþór Aðalsteinsson * Höfuðborgarsvæðinu skipt niður í staðgreinireiti 21 * Ráðstefna um umhverfis- og skipulagsmál í Kópavogi 21 * Ný rit í bókasafni skipulagsstofunnar 21 * Sölukynning 23 Forsíðumynd gerði Pétur Behrens. Pétur Behrens er fæddur 1937 í Hamborg. Nam myndlist þar í borg og í Berlín. Fluttist til íslands 1962. Vann fyrir sér m.a. sem auglýsingateiknari og um árabil sem tamningamaður. Blaðagreinar um hestamennsku og bók um tamn- ingar. Kennir við Myndlista- og handíðaskóla íslands og við Mynd- listaskóla Reykjavíkur. Býr í Mosfellssveit, Dvergholti 2, sími 67077. LANDNOTKUN, LANDNYTING OG UMFERÐ Um langt skeið hafa mönnum verið ljós þau tengsl sem eru milli land- notkunar, landnýtingar og um- ferðar, enda er nú víðast hvar ekki borið við að reyna að skipuleggja einn þátt þessa máls, án þess að skoða jafnframt hina tvo, enda eru þeir nátengdir. Breytingar milli landnotkunarflokka og breytingar á notkun bygginga geta þannig haft mjög afgerandi áhrif á umferð á viðkomandi svæði. Þannig gagnar lítið að byggja upp gott gatnakerfi, ef breytingar á landnotkun eða landnýtingu verða á þann veg að gerbreyta þeim grundvelli sem gatnakerfið var skipulagt fyrir. Svipað getur orðið upp á teningn- um, ef einstakir hlutar af heildstæðu gatnakerfi eru felldir burt. Á Skipulagsstofu höfuðborgar- svæðisins er nú verið að koma upp reiknilíkani fyrir umferðina á höfuðborgarsvæðinu, en með þessu líkani mun verðahægt að segja fyrir um afleiðingarnar af mismunandi hugmyndum um landnotkun og landnýtingu í þeim níu sveitarfélög- um sem aðild eiga að Samtökunum. Á sama hátt mun einnig vera hægt að nota þetta reiknilíkan til þess að meta áhrif af mismunandi kostum viðvíkjandi uppbyggingu gatna og samgöngukerfis á þessu svæði. Miklu skiptir að þeir sem taka ákvarðanir um skipulagsmál á þessu svæði geri sér fulla grein fyrir samhengi þessara mála, og það er von okkar að aukin notkun reikni- líkans umferðar geti orðið til þess að beina þróun svæðisins inn á heillavænlegri brautir en ella. Gestur Ólafsson

x

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins
https://timarit.is/publication/1782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.