Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.08.1983, Page 23

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.08.1983, Page 23
áætlana. Auk innlendra gagna hef- ur einkum verið stuðst við skandi- naviskar og breskar heimildir. Ennfremur hefur mikið verið um það rætt í nefndinni hve mikilvægt það er, með góðan árangur í huga, að trjárækt sé gerð glögg skil í öll- um skipulagsáætlunum og það strax frá byrjun. Það sé ekki nóg að stimpla tré og runna nánast af handahófi á skipulagsuppdrætti og byggingarnefndarteikningar. Um- hverfið mun ekki taka stakka- skiptum við það eitt. Vert er að geta þess hér, að í byggingarleyfis- umsóknum óska byggingarnefndir sveitarfélaganna sárasjaldan eftir því að framkvæmdaaðili geri við- hlítandi grein fyrir atriðum eins og verndun trjáa, hvernig landslögun skuli háttað þ.á.m. plöntun trjáa, jafnvel þó lög og reglugerðir geri ráð fyrir að svo sé gert. Eins og fram hefur komið þá hefur trjáræktarnefndin fram til þessa nær einvörðungu fjallað um stjórn- un og skipulag framkvæmda. Fyrir- hugað er að nefndin ljúki störfum í lok þessa árs og því er stuttur tími til stefnu til að leysa þá þætti sem eftir eru, - m.a. þætti eins og hvern- ig staðið skuli að plöntuuppeldi, tegundavali, gróðursetningu, eftir- liti og viðhaldi, fræðslu og upplýs- ingamiðlun til opinberra aðila, ein- staklinga, félagasamtaka og fyrir- tækja. BIRGIR H. SIGURÐSSON Sölukynning Einar Hákonarson Einar Hákonarson sýnir um þessar mundir verk sín á Skipulagsstofu höfuðborgarsvæðisins. Sýningin er opin á vinnutíma á virkum dögum, 9.00-17.00. Einar Hákonarson er fæddur árið 1945 í Reykjavík. Nám: Myndlista- og handíðaskóla ísl. 1960-64. Valands Konsthögskola Gautaborg 1964- 67. Einkasýningar: Bogasalur 1968- 1971. Unuhús, fyrsta sérsýning á grafik á íslandi 1969. Bygging- arþjónusta Arkitekta við Grensás- veg 1974. Kjarvalsstaðir 1976 - 1978 - 1982. Einar hefur tekið þátt í samsýning- um á Norðurlöndum, Bandaríkjun- um og Evrópu. Verðlaun fyrir grafikverk á alþjóð- legu sýningunni í Ljublanja 1967 Júgóslavíu, og fyrir málverk á 1. norrænu sýningu ungra myndlistar- manna sem haldin var í Louisiana safninu í Danmörku 1966. Einar Hákonarson hefur starfað sem myndlistarmaður og kennari í Reykjavík frá 1967: og var frá 1978-1982 skólastjóri Myndlista- og handíðaskóla íslands. Frá 1982 hefur Einar verið varaborgarfull- trúi íReykjavík og form. stjórnar Kjarvalsstaða og Ásmundarsafns. Einar Hákonarson.

x

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins
https://timarit.is/publication/1782

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.