Víkurfréttir - 25.02.2023, Síða 9

Víkurfréttir - 25.02.2023, Síða 9
Það er misjafnt eftir því hvaðan fólkið kemur hversu langan tíma það tekur að fá niðurstöður úr málum. Allir frá Úkraínu fá t.d mannúðarleyfi um leið og þau koma til landsins, fyrir önnur þjóðerni getur það tekið frá fimm mánuðum upp í tvö ár, það fer eftir því hversu flókin málin þeirra eru. Þá er algengast að ein- staklingar fái alþjóðalega vernd en einnig eru sumir sem fá viðbótar- vernd. VMST hefur einnig húsnæði á leigu upp á Ásbrú fyrir umsækj- endur um vernd sem VMST þjón- ustar sjálft. Ef einstaklingar fá vernd þá hafa þau átta vikur til að finna sér sitt eigið húsnæði og þurfa svo að yfirgefa húsnæði VMST. Reykjanesbær er með þriðja samninginn við Félags- og vinnu- markaðsráðuneytið um umsjón á millibilsúrræði fyrir flóttafólk sem hefur fengið vernd en er ekki enn búið að finna sér varanlegt hús- næði. Húsnæðismarkaðurinn í Reykjanesbæ sem og á landinu öllu er erfiður og því tekur oft langan tíma að finna húsnæði sem hentar og er innan þess fjárhagsramma sem fólkið ræður við. Einstaklingar sem eru að leita sér að húsnæði eru hvattir til að leita að húsnæði út um allt land en auðvitað snýst þetta líka um hvar vinnu sé að fá við hæfi og einnig er mikið traust í því fyrir einstaklingana að vera í sam- ræmdri móttöku og leita því að hús- næði í sveitarfélögum sem eru með samning um hana.“ Samræmd móttaka flóttafólks og Alþjóðateymi Reykjanesbæjar Eftir að flóttafólk fær vernd þá býðst þeim að fara í samræmda móttöku flóttafólks fyrir milligöngu Fjöl- menningarseturs. Fyrstu samningar um samræmda móttöku voru gerðir í apríl 2021 en þá voru fimm tilrauna- sveitarfélög sem tóku þátt, Reykja- nesbær, Hafnarfjörður, Reykjavík, Árborg og Akureyri. Öll þessi sveitar- félög skrifuðu nýverið undir nýjan samning um samræmda móttöku og að auki bætist Höfn í Hornafirði við. Ásta skýrir þetta betur út. „Samræmd móttaka flóttafólks er hugsuð sem viðbót við þá almennu grunnfélagsþjónustu sem öllum sveitarfélögum er skylt að halda úti. Einstaklingar og fjölskyldur í sam- ræmdri móttöku fá mikinn stuðning og ráðgjöf frá málstjórunum sínum og teyminu í heild. Samningurinn segir til um hveru oft málstjórar eigi að hitta sína skjólstæðinga og allir einstaklingar eldri en 18 ára eiga að fá aðstoð frá málstjóranum sínum við að búa til einstaklingsmiðaða áætlun um næstu skref sem þau þurfa að taka til að verða virkir sam- félagsþegnar. Við höfum ýmis tæki og tól til að ná inngildingu þessa fólks eins og íslenskukennsla hjá Mið- stöð símenntunar (MSS) og Land- neminn sem er samfélagsfræðsla, Mindspring sem er geðræktar- og valdeflingarnámskeið sem málstjórar alþjóðateymisins kenna. Að auki höfum við í alþjóðateyminu metið þörfina hverju sinni, hvers konar að- stoð og námskeið einstaklingarnir og fjölskyldur þurfa á að halda til að verða sjálfbjarga, hjálp til sjálfs- hjálpar er lykiláhersla hjá okkur. Má þar nefna skattaskýrslunámskeið, sundnámskeið fyrir börn, valdefling og aðlögun fyrir arabískar konur og fullt fleira. Skapandi og lausnamiðuð hugsun er mikilvæg en jafnframt að fylgja lögum, reglum, samningum og ekki síst stefnu Reykjanesbæjar við mótun og þróun nýrra verkefna. Við gætum ekki gert þetta nema vegna þess að við höfum stuðning frá ríkinu til að sinna þessu vel. Mitt starf snýr að stefnumót- unarvinnu, verkferlagerð og þróun alþjóðateymis í samstarfi við teymið mitt og önnur teymi Feykjanes- bæjar sem og aðra samstarfsaðila. Starf málstjóranna snýr að því að hlúa að þessu fólki sem fellur undir þessa þrjá samninga, umsækjendur um vernd, samræmda móttöku og millibilsúrræðið. Í því felst allt milli himins og jarðar, allt frá því að redda barni íþróttaskóm fyrir æfingu og fylgja því á æfingu í að panta tíma hjá lækni og aðstoða fullorðinn ein- stakling við að leita réttar síns, t.d. varðandi barnabætur, fæðingarstyrk eða ellilífeyri. Þetta fólk kemur, oft mjög brotið, með erfiða reynslu í bakpokanum sínum, allslaust og þarf eðlilega aðstoð við að koma sér inn í nýtt samfélag þar sem menn- ingarmunur og tungumál eru helstu hindranir. Alþjóðateymið saman- stendur af mér sem teymisstjóra og svo átta til níu málstjórum/menn- ingarmiðlurum sem sinna málum allra einstaklinga í okkar þjónustu. Reykjanesbær skrifaði nýverið undir nýjan samning um samræmda mót- töku um að þjónusta allt að 350 ein- staklinga sem búa í sveitarfélaginu. Í dag erum við að þjónusta í kringum 300 einstaklinga sem hafa lögheimili í Reykjanesbæ og eru í samræmdri móttöku, og svo 66 umsækjendur um vernd.“ Grindavíkurbær – hugsum til framtíðar Ásta vill sjá fleiri sveitarfélög sýni ábyrgð. „Félags- og vinnumarkaðs- ráðuneytið hefur haldið kynningu á samningnum um samræmda mót- töku flóttafólks fyrir öll sveitar- félögin á landinu. Þau fimm fyrr- nefndu sveitarfélög sem nú þegar hafa skrifað undir hafa einnig óskað eftir að önnur sveitarfélög skrifi undir samning til að deila samfélags- ábyrgðinni. Grindavíkurbær er eitt af þessum sveitarfélögum og nú þegar úrræði VMST er komið í bæinn þurfa bæjarbúar að meta kosti og galla við það að skrifa undir samning um samræmda móttöku. Sá misskilningur hefur verið á sveimi að koma flóttafólks í við- komandi bæjarfélag, búi til aukið álag á starfsmenn félagsþjónustunnar og útheimti aukinn kostnað fyrir sveit- arfélagið, það er alls ekki svo. Þegar sveitarfélag gerir samning við ríkið um samræmda móttöku flóttafólks, er ráðið starfsfólk sem er eingöngu að sinna því fólki. Ríkið greiðir allan þann kostnað. En alveg eins og getur gerst þegar nýtt fólk flytur í bæjar- félag, þá getur það þurft á félags- legri aðstoð að halda og það kallar auðvitað á aukið álag félagsþjónust- unnar, sama á við um flóttafólkið. En allt sem viðkemur fyrstu skrefunum á meðan fólkið er að aðlagast lendir á starfsfólkinu sem sér um flótta- fólkið,“ segir Ásta og bætir við að Reykjanesbær sé leiðandi sveitar- félag í málefnum fólks á flótta.“ „Við erum stolt af því enda er slagorðið okkar, „Í krafti fjölbreyti- leikans“ en samt sem áður eru inn- viðir okkar komnir að þolmörkum og því er mjög mikilvægt að fleiri sveitarfélög taki þátt og skorist ekki undan þessari ábyrgð. Þetta er ein- faldlega hinn nýi veruleiki, flóttafólk mun koma til Íslands eins og ann- arra landa, ef ekki vegna stríðs þá vegna náttúruhamfara. Ríkið hefur tekið ákvörðun um að leggja sitt af mörkum og þá verða sveitarfélögin einfaldlega að taka þátt. Sums staðar á Norðurlöndunum ber sveitar- félögum skylda að taka við flóttafólki og þá í prósentuhlutfalli við íbúa- fjölda. Kannski er það eina leiðin á Íslandi, að sveitarfélögum verði skylt að taka á móti fólki á flótta í hlut- falli við íbúafjölda? Ef allir taka þátt er þetta léttari leikur fyrir alla. Við Íslendingar erum svo mögnuð þjóð, það er svo mikill kraftur sem býr í okkur, nýtum þennan kraft til góðs og tökum vel á móti fólki á flótta. Svo er ekkert skrítið að fólk vilji koma hingað, það er að leita að öryggi og betri framtíð fyrir sig og börnin sín. Ísland er jú öruggasta land í heimi, með hreint loft og vatn og nóg af heitu vatni. Gerum þetta vel, gerum þetta saman,“ sagði Ásta að lokum. Skilgreiningar á hugtökum Umsækjandi um alþjóðlega vernd Útlendingur sem kemur á eigin vegum sem óskar eftir viðurkenningu á stöðu sinni sem flóttamaður eða ríkisfangslaus einstaklingur hér á landi. Viðbótarvernd Útlendingur sem telst ekki flóttamaður samkvæmt ákvæði A-liðar 1. gr. alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna ef raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða að hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum handahófskennds ofbeldis vegna vopn- aðra átaka verði hann sendur aftur til heimalands síns. Sama gildir þegar um er að ræða ríkisfangslausan einstakling. Mannúðarleyfi Dvalarleyfi af mannúðarástæðum eru veitt við tvenns konar aðstæður: • Til fólks sem hefur flúið til Íslands frá Úkraínu og fengið vernd vegna fjöldaflótta. • Við efnislega meðferðar umsóknar um alþjóðlega vernd. Alþjóðleg vernd Fólk sem sætir ofsóknum í heimalandi sínu eða á þar á hættu dauðarefs- ingu, pyndingar eða ómannúðlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu á rétt á alþjóðlegri vernd sem flóttamenn á Íslandi. Ríksifangslausir einstaklingar eiga rétt á alþjóðlegri vernd á grundvelli ríkisfangsleysis. Kvótaflóttafólk Einstaklingum sem boðið er að koma til ríkis á vegum stjórnvalda eru gjarnan nefndir kvótaflóttafólk. Þau þurfa ekki að ganga í gegnum það ferli og þá málsmeðferð sem umsækjendur um alþjóðlega vernd þurfa að ganga í gegnum. Nánari útskýringar á hugtökum er að finna á: https://www.stjornarradid.is/verkefni/utlendingar/flottafolk/ https://www.raudikrossinn.is/verkefni/innanlandsverkefni/flottafolk- og-innflytjendur/flottafolk-og-innflytjendur/ Nú þegar úrræði VMST er komið í bæinn þurfa bæjarbúar í Grinda- vík að meta kosti og galla við það að skrifa undir samning um samræmda móttöku ... Vilt þú sækja um styrk í spennandi menningarverkefni? Auglýst er eftir umsóknum um tvenns konar styrki sjóðsins. Annars vegar er um að ræða þjónustusamninga við menningarhópa og hins vegar verkefnastyrki til menningartengdra verkefna. Umsóknum þarf að skila rafrænt í síðasta lagi 19. febrúar nk. í gegnum Mitt Reykjanes Um ýmis konar þjónustu af hálfu menningar- hópanna getur verið að ræða, s.s. þátttöku í viðburðum, námskeiðahald o.fl. í þeim dúr gegn ákveðinni greiðslu.  Ákveðnu fjármagni verður einnig varið í ýmis menningartengd verkefni á árinu 2022 sem miða að því að efla menningarlíf í Reykjanesbæ með fjölbreyttum hætti. Í umsókn þarf að koma fram greinargóð lýsing á verkefni og kostnaðaráætlun. Einstaklingar, hópar eða félagasamtök geta sótt um. Nánari upplýsingar er að finna á vefsíðu Reykjanesbæjar. Menningarsjóður Reykjanesbæjar auglýsir eftir styrkumsóknum www.reykjanesbaer.is Afgöngsk kvótafjölskylda á Suðurnesjum. Fagfólk frá Reykjanesbæ ásamt flóttafólki sem er búið að aðlagast á Íslandi. vÍkurFrÉttir á SuðurnESjuM // 9

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.