Víkurfréttir - 08.02.2023, Page 12
Sagnastund verður á Garðskaga
laugardaginn 11. febrúar kl. 15:00.
Byggðin á Suðurnesjum byggðist
upp á fiskveiðum og fiskvinnslu. Sjó-
sókn er Suðurnesjamönnum í blóð
borin. Þrír fyrrum skipstjórar koma
að sagnastundinni í þetta sinn og
segja frá eftirminnilegum degi eða
sjóróðri hver fyrir sig. Þeir eru Ásgeir
Hjálmarsson, Hafsteinn Guðnason
og Magnús Guðmundsson.
Sagnastundin verður haldin í veit-
ingahúsinu Röstinni á Garðskaga,
Skagabraut 100 í Suðurnesjabæ. Frír
aðgangur. Hægt er að kaupa kaffi eða
te með vöfflu eða köku og svokölluð
happy hour stund verður fyrir þá
sem slíku vilja vita af.
Byggðasafnið á Garðskaga verður
opið frá kl. 13 til 17 sama dag, ef
gestir vilja skoða safnið fyrir eða
eftir sagnastundina.
Áformað er að næstu sagnastundir
verði laugardagana 11. mars, 15. apríl
og 13. maí 2023. Síðar verður greint
frá dagskrá þá daga.
Áhugamenn um
sagnastund á Garðskaga.
Sagnastund á Garð-
skaga á laugardaginn
SUÐURNESJABÆR
Hilmar Bragi Bárðarson
hilmar@vf.is
Tillaga að Aðalskipulagi Suður-
nesjabæjar 2022–2034 ásamt
umhverfismatsskýrslu var aug-
lýst þann 9. nóvember 2022 með
fresti til að skila inn umsögnum
og athugasemdum til og með 23.
desember 2022.
Alls bárust umsagnir og athuga-
semdir frá tuttugu og tveimur að-
ilum á auglýsingartímanum. Auk
þess eru teknar inn athugasemdir
sem bárust við kynningu lýsingar
vegna aðalskipulagsbreytingar vegna
uppbyggingar í landi Gauksstaða og
varða tillögu að aðalskipulagi. Um er
að ræða athugasemdir frá þrettán
aðilum. Einnig erindi sem sent var
fyrir hönd eigenda jarðarinnar Bala
og varðar sjóvarnir, en erindið barst
fyrir auglýsingartímann.
Aðalskipulagið var á dagskrá bæj-
arstjórnar Suðurnesjabæjar þann 1.
febrúar sl. og hlaut þar eftirfarandi
afgreiðslu:
Bæjarstjórn Suðurnesjabæjar
samþykkir samhljóða Aðalskipulag
Suðurnesjabæjar 2022–2034 og
felur sviðsstjóra skipulags- og um-
hverfissviðs að senda Skipulags-
stofnun aðalskipulagið ásamt um-
hverfismatsskýrslu til staðfestingar
í samræmi við 2. mgr. 32. gr. skipu-
lagslaga nr. 123/2010. Jafnframt
felur bæjarstjórn sviðsstjóra skipu-
lags- og umhverfissviðs að senda
þeim aðilum er athugasemdir gerðu,
afgreiðslu og umsögn Suðurnesja-
bæjar um athugasemdir og að aug-
lýsa niðurstöðu bæjarstjórnar.
Aðalskipulag Suðurnesja-
bæjar samþykkt í bæjarstjórn
Spurningar og svör um
Suðurnesjaháspennulínu
Þorvaldur Örn Árnason
Ekki er deilt um það að tvær háspennulínur milli
Suðurnesja og höfuðborgarsvæðisins gefa meira ör-
yggi en ein lína. Spurningin er hvers eðlis ný lína eigi
að vera og hvar hún eigi að liggja þannig að ávinn-
ingur verði sem mestur og sjónmengun sem minnst
– og fjármunum best varið. Um það er deilt. Meiri-
hluti nýrrar línu myndi liggja um Sveitarfélagið Voga
og því eðlilegt að íbúar þar, landeigendur og bæjar-
stjórn, taki afstöðu til þess hvernig þeim málum verði
háttað.
Nýlega lagði ég spurningar fyrir
Landsnet. Þær voru birtar hér í
Víkur fréttum 02.02.2023, ásamt
svörum Landsnets. Skoðum málið
nánar.
Eflaust hefði straumleysið staðið
styttra ef önnur háspennulína hefði
verið til staðar. En fleira skiptir máli.
Raforkuöryggi á Suðurnesjum
líður verulega fyrir það að ekki
skuli vera hægt að skipta snurðu-
laust yfir í „eyjarrekstur“ virkjana á
Suðurnesjum ef samband við meg-
inraforkukerfi landsins rofnar. Þær
virkjanir geta annað um tvöfaldri
aflnotkun á Suðurnesjum ef þar til
gerður stýribúnaður, sem getur skipt
virkjunum snurðulaust yfir í eyj-
arekstur, væri til staðar. Í versta falli
gæti hraunrennsli fyrirvaralítið slitið
sambandið við höfuðborgarsvæðið,
jafnvel þó búið væri að byggja aðra
línu samhliða núverandi línu. Ef
báðar lílnurnar væru úti gætu jarð-
gufuvirkjanirnar hæglega séð öllum
Suðurnesjum fyrir nægu rafmagni
í langan tíma í eyjakeyrslu. Þennan
stýribúnað vantar hugsanlega vegna
þess að raforkukerfið hér er í megin-
dráttum hannað þegar til stóð í upp-
hafi aldarinnar að byggja hér álver
sem myndi nota gríðarmikla raforku.
Firnasterkt og dýrt flutningskerfi
hefði þá verið byggt fyrir álverið
og Suðurnesin og þá hefðu Gufu-
aflsvirkjanir á Suðurnesjum hvergi
nærri dugað fyrir eyjarkeyrslu Suð-
urnesja. Þegar hætt var við álverið
hefði átt að vera ljóst að grípa þyrfti
til annarra leiða til að tryggja raf-
orkuöryggi á Suðurnesjum. Ein leið
hefði verið að byggja Suðurnesja línu
2 en þar sem leyfi fékkst ekki fyrir
loftlínunni þá hefði átt að grípa til
annarra ráða t.d. leggja jarðstreng
eða að tryggja snurðulausa skiptingu
rafstöðva á Suðurnesjum yfir í eyja-
keyrslu. Hvar liggur ábyrgðin?
Stefna Landsnets að ætla að hafa
Suðurnesjalínu 2 óþarflega afkasta-
mikla (220 kV) er að líkindum arfur
frá þessum tíma stóriðjudrauma.
Suðurnesjalína 1 er að flytja (frá
Suðurnesjum) u.þ.b. helming þess
afls sem hún getur flutt. Jarðstrengur
sem flutt getur álíka mikla eða
jafnvel meiri orku ætti því að nægja.
Enn og aftur fullyrðir Landsnet í
fyrrnefndum svörum sínum: „Ekki
hefur verið hægt að bæta við af-
hendingu raforku á Suðurnesjum í
langan tíma sem hefur bitnað bæði á
íbúum og atvinnulífi á svæðinu.“ Það
getur ekki verið vegna skorts á afli
virkjana á Suðurnesjum sem er um
tvöfalt meiri en notkun. Ekki heldur
vegna skorts á flutningsgetu, því
eftir því sem notkun á Suðurnesjum
eykst minnkar þörfin á flutningi raf-
orku milli Suðurnesja og höfuðborg-
arsvæðisins! Reyndar er unnið að
stækkun Reykjanesvirkjunar og gert
ráð fyrir að uppsett afl hennar aukist
úr 100 í 130 MW á næstu árum. En
það breytir litlu ef raforkunotkun á
Suðurnesjum eykst jafnframt næstu
árin og Landsnet hefur burði til að
afhenda þá raforku og stýra raforku-
kerfinu af sæmilegu öryggi. Það má
því spyrja hvort fullyrðing Lands-
nets um "að ekki sé hægt að bæta við
raforku á Suðurnesjum...“ megi í raun
rekja til ófullnægjandi ráðstafana til
að tryggja raforkuöryggi en ekki til
aflskorts, s.b.r. hér á undan? Hvar
liggur þá ábyrgðin?
Í fyrrnefndu svari telur Landsnet
það vandkvæðum bundið að tengja
nýja 132 kV línu/jarðstreng inn á 132
kV kerfið á höfuðborgarsvæðinu þó
það sé ekki vegna flutningsgetu. En
þarf spennir sem tengir 132 kV kerfið
á Suðurnesjum við 220 kV kerfið í
höfuðborginni endilega að vera á
Suðurnesjum? Gerði hann ekki sama
gagn í þessu sambandi þó hann væri
í tengivirki í Hafnarfirði og báðar
Suðurnesjalínurnar á 132 kV? En
ef 220 kV jarðstrengur er fýsilegur
kostur þrátt fyrir mun hærri kostnað
en 132 kV jarðstrengur þá er hvoru-
tveggja ásættanlegt frá sjónarhóli
íbúa í Vogum.
Af framansögðu ætti að vera ljóst
að það getur EKKI ráðið úrslitum
um afhendingaröryggi raforku á
Suðurnesjum hvort ný lína, til við-
bótar þeirri sem fyrir er milli Hafn-
arfjarðar og Suðurnesja er 220 kV
loftlína, eins og Landsnet heimtar,
eða 132 kV (eða jafnvel 220 kV)
jarðstrengur – sams konar og sá sem
liggur yfir mikið jarðsprungukerfi
og tengt hefur Nesjavallavirkjun
snurðulaust við höfuðborgarsvæðið
í meira en áratug. Ekki er lengur telj-
andi verðmunur á loftlínu og 132 kV
jarðstreng.
Stjórnendur Landsnets eru enn
þeirrar skoðunar að meira öryggi
felist í því að tengja Suðurnes og
höfuðborgarsvæðið með tveimur
samliggjandi loftlínum, heldur en
með einni loftlínu og einum jarð-
streng. „Samkvæmt bestu upplýs-
ingum sem Landsnet býr yfir eru
jarðstrengir mjög viðkvæmir fyrir
höggvunarhreyfingum og því ekki
ákjósanlegir á stöðum þar sem líkur
á jarðhræringum eru jafn miklar og
á Reykjanesi.“ Þetta svar bendir til
þess að Landsnetsmenn þurfi að
leita áreiðanlegri upplýsinga. Ég
mæli með að þeir lesi t.d. greinar-
gerð dr. Ástu Rutar Hjartardóttur
hjá Jarðvísindastofnun Háskólans
frá 12. desember sl., þar sem segir
m.a.: „Á Reykjanesi fyrirfinnast
sem kunnugt er svæði sem eru með
töluvert mörgum sprungum. Þessi
sprungusvæði eru hins vegar ekki öll
eins, þau hafa eiginleika sem breytast
eftir því hvar þau eru á skaganum.
Því eru sprungukerfi Reykjanessins
ekki einsleit fyrirbæri, til dæmis eru
sprungur í nágrenni Voga við enda
sprungusveims og mun minna virkar
heldur en sprungur á sunnanverðum
og miðjum skaganum.“ Ásta segir
ennfremur: „Við norðurhluta Rauða-
vatns liggur nú þegar jarðstrengur,
á svæði sem er nokkuð keimlíkt
svæðinu þar sem umræddur jarð-
strengur er teiknaður við Reykja-
nesbraut. Því er mikilvægt að huga
að þeim jarðstreng ef talið er að ekki
sé skynsamlegt að leggja jarðstreng
við Voga vegna sprunguhreyfinga.“
Ég ráðlegg Landsnetsmönnum að
lesa niðurstöður Ástu vandlega og
komast hjá því að gera afdrifarík
mistök.
FIMMTUDAG KL. 19:30
HRINGBRAUT OG VF.IS
Séð yfir hluta byggðarinnar í Garði.
12 // vÍkurfrÉttir á SuðurNeSJuM