Víkurfréttir - 22.03.2023, Qupperneq 2

Víkurfréttir - 22.03.2023, Qupperneq 2
appið tvöfaldaðist Í máli forstjóra Samkaupa kom fram að Samkaupa appið hefur fengið mjög góðar móttökur og hafa rétt tæplega 60 þúsund manns hlaðið því upp í símann sinn. Gunnar Egill sagði að það væri í stöðugri þróun og yrði til dæmis tengt við netverslun Nettó. Félagsmenn í KSK voru 7.190 í árslok og notar um þriðjungur þeirra appið vikulega, um 1550 manns. Alls var velta í gegnum appið 17% af heildarveltunni á síðasta ári og tvöfaldaðist á milli ára. Meðalkarfa í verslunum Sam- kaup var 4.567 krónur. Helstu niðurstöður rekstrarársins 2022: n Vörusala nam 40.840 m.kr., samanborið við 40.009 m.kr. á árinu 2021 n Framlegðarhlutfall nam 24,8%, samanborið við 24,6% á árinu 2021. n Hagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) nam 1.915 m.kr., samanborið við 2.427 m.kr. á árinu 2021. n Tap eftir skatta nam 192 m.kr., samanborið við 460 m.kr. hagnað á árinu 2021. n Heildareignir í árslok námu 20.102 m.kr., samanborið við 19.191 m.kr. á árinu 2021. n Eigið fé í árslok nam 3.021 m.kr., samanborið við 3.564 m.kr. á árinu 2021. n Eiginfjárhlutfall var 15%, samanborið við 18,6% á árinu 2021. FINNDU OKKUR Á FACEBOOK DAGLEGAR FERÐIR ALLA VIRKA DAGA S U Ð U R N E S - R E Y K J A V Í K 845 0900 FERÐIR Á DAG ALLTAF PLÁSS Í BÍLNUM HREINSUM RIMLAGARDÍNUR OG MYRKVUNARGARDÍNUR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á ALLTHREINT.IS samkaup tapaði 192 milljónum á síðasta ári, samanborið við 460 milljóna hagnað árið áður. Niður- stöður endurspegla krefjandi ár fyrir verslanir, þar sem lok heimsfaraldurs og stríð í Evrópu höfðu áhrif á sölu og innkaup. Þetta kom fram á aðalfundi félagsins í síðustu viku. Vörusala jókst á milli ára og nam rúmum 40,8 milljörðum, saman- borið við rúma 40 milljarða árið áður. Þá var eigið fé í árslok 3.021 milljón króna, samanborið við 3.564 milljónir árið 2021 og eigin- fjárhlutfall 15%, samanborið við 18,6% 2021. Í tilkynningu frá Samkaupum kemur fram að síðasta ár hafi verið krefjandi á dagvörumarkaði og áhrifum Covid-19 faraldursins hafi gætt. Þegar ferðalögum Ís- lendinga fór að fjölga við aflétt- ingu samkomutakmarkana var minna selt í dagvöruverslunum, en á sama tíma varð veruleg aukning á komu erlendra ferðamanna. Þessi aukning mildaði samdráttinn sem hafði myndast í upphafi árs. Áhrif stríðsátaka í Úkraínu hafði áhrif á innkaup félagsins með hækkandi flutningskostnaði og verðhækkunum á erlendum mörkuðum. Samkaupum tókst að halda afhendingaröryggi úr mið- lægu vöruhúsi í 95% sem var í takti við markmið félagsins. Flutnings- kostnaður hefur hinsvegar aukist og orðið flóknari. Innkaupsverð hækkaði mikið en alls bárust um 380 tilkynningar um verðhækk- anir frá birgjum á árinu sem hafði veruleg áhrif á framlegð. Launa- kostnaður hækkaði umtalsvert á árinu og nýgerðir kjarasamningar verða kostnaðarsamir fyrir versl- anir sem og aðra. Samkaup reka meira en 60 verslanir víðsvegar um land undir merkjum Nettó, Kjörbúðarinnar, Krambúðarinnar og Iceland. „Ef við drögum árið 2022 saman þá er það minnkandi magnsala og mikil hækkun á kostnaði sem litar uppgjörið. Síðasta ár var vissulega krefjandi en við misstum aldrei sjónar á því markmiði okkar að b j ó ð a v i ð - skiptavinum okkar gæða- vörur á góðu og samkeppn- ishæfu verði. Má nefna að á síðasta ári l æ k k u ð u m við verð á 4 0 0 v ö r u - númerum til þess að koma til móts við viðskipta- vini okkar og sporna gegn áhrifum verðbólgu á dagleg innkaup fólks. Þá nýttum við síðasta ár í að þróa appið okkar áfram en það veitir viðskiptavinum okkar 2% afslátt af allri verslun í öllum verslunum Samkaupa,“ segir Gunnar Egill Sigurðsson, forstjóri Samkaupa. Samkaup tapaði um 192 milljónum króna Hafdís Inga Sveinsdóttir úr Njarðvíkurskóla stóð uppi sem sigurvegari í Stóru upplestrar- keppninni í Reykjanesbæ en lokahátíðin fór fram þann 9. mars í Stapa. Jón Ingi Garð- arsson úr Heiðarskóla varð annar og í þriðja sæti var Íris Brynja Arnarsdóttir, Stapaskóla. Þetta var í 26. sinn sem Stóra upplestrarkeppnin í Reykjanesbæ var haldin. Það eru nemendur í 7. bekk úr grunnskólum Reykjanes- bæjar sem taka þátt í keppninni ár hvert. Áður höfðu skólarnir haldið forkeppni og valið tvo fulltrúa hver. Fjórtán keppendur tóku því þátt að þessu sinni, tveir frá hverjum skóla. Stóra upplestrarkeppnin hefst formlega á degi íslenskrar tungu þann 16. nóvember ár hvert en það er fæðingardagur Jónasar Hallgrímssonar. Fram að loka- keppni leggja nemendur og kenn- arar sérstaka áherslu á vandaðan upplestur og framsögn. Það er óhætt að segja að kepp- endur hafi staðið sig með prýði og verið sjálfum sér og sínum skóla til mikils sóma. Dómnefndin var ekki öfundsverð af hlutskipti sínu að velja í verðlaunasæti enda lagði Guðbjörg Sveinsdóttir, formaður dómnefndar, áherslu á það að allir væru í raun og veru sigurvegarar þar sem hver og einn keppandi hefði sigrað í sínum skóla. Að sama skapi hvatti hún keppendur til þess að halda áfram að leggja rækt við þennan þátt móðurmálsins, vand- aðan upplestur og framburð. Helgi Arnarson, sviðsstjóri mennta- sviðs Reykjanesbæjar, tók í sama streng og sagði jafnframt að það væri í raun alveg stórmerkilegt að á hverju ári skuli heill árgangur í nær öllum, ef ekki öllum, grunn- skólum landsins verja stórum hluta vetrarins í að æfa sig í flutningi ís- lensks máls. Helgi þakkaði Önnu Huldu Einarsdóttur, kennsluráð- gjafa á skrifstofu menntasviðs, fyrir að hafa umsjón með Stóru upp- lestrarkeppninni og veg og vanda að undirbúningi þessarar glæsilegu hátíðar. Allir keppendurnir fengu bók og rós í viðurkenningarskyni en fyrstu þrjú sætin fengu einnig peninga- verðlaun í boði Íslandsbanka. Ómissandi þáttur þessarar hátíð- legu stundar er tónlistarflutningur nemenda Tónlistarskóla Reykja- nesbæjar en flutt voru fjögur tón- listaratriði á hátíðinni. Í upphafi léku þær Sóley Marin Sveinsdóttir á þverflautu og Alexandra Ósk Jak- obsdóttir á píanó The Pink Panter eftir Henry Mancini. Eftir hlé léku þær Guðbjörg Lára Aradóttir og Sunna Dís Guðbergsdóttir fjórhent á píanó lagið A Spoonful of Sugar úr Mary Poppins eftir Richard og Robert Sherman. Þegar dómnefnd vék úr salnum fengu gestir að njóta þriggja tónlistaratriða. Klara Sól Jóhannsdóttir lék Little Serenade eftir Joseph Haydn, þá lék Karítas Hjörleifsdóttir Popp-ballöðu nr. 2 eftir Björgvin Valdimarsson á píanó og að lokum lék Tinna Sess- elja Gísladóttir Spanish Caballero eftir Nancy Faber á píanó. Rakel Elísa Haraldsdóttir, sigur- vegari í Stóru upplestrarkeppninni frá fyrra ári, kynnti skáld hátíðar- innar, þær Arndísi Þórarinsdóttur og Huldu Sigrúnu Bjarnadóttur. Freyja Marý Davíðsdóttir, einnig sigurvegari frá því í fyrra, kynnti ljóðskáld hátíðarinnar, Aðal- stein Ásberg Sigurðsson. Þá las Kacper Einar Kotowski nemandi í Heiðarskóla ljóð á móðurmáli sínu, pólsku. Að lokum flutti Helgi Arnarson, sviðsstjóri menntasviðs, ávarp og afhenti bókagjafir. Keppendur sem tóku þátt: Arna Dís Emilsdóttir (Akurskóla), Björk Karlsdóttir (Holtaskóla), Dag- björt Dóra Kristmannsdóttir (Stapa- skóla), Elía Rós Snæfells Arnarsdóttir (Háaleitisskóla), Elís Einar Klemens Halldórsson (Njarðvíkurskóla), Guð- björg Hera Leósdóttir (Myllubakka- skóla), Gunnar Helgi Pétursson (Heiðarskóla), Hafdís Inga Sveins- dóttir (Njarðvíkurskóla), Íris Brynja Arnarsdóttir (Stapaskóla), Jón Ingi Garðarsson (Heiðarskóla), Ljósbrá Líf Sigurðardóttir (Holtaskóla), Natalía Fanney Sigurðardóttir (Myllubakka- skóla), Orri Guðjónsson (Akurskóla) og Tinna Sesselja Gísladóttir (Háa- leitisskóla). Hafdís Inga sigraði í Stóru upplestrarkeppninni Hafdís Inga Sveinsdóttir, Jón Ingi Garðarsson og Íris Brynja Arnarsdóttir. Skúli Þ. Skúlason lét af formennsku í Kaupfélagi Suðurnesja, móðurfélagi Samkaupa. Nýr formaður er Sigurbjörn Gunnarsson en faðir hans var kaupfélagsstjóri til margra ára á sínum tíma. Frá aðalfundi Samkaupa hf. í húsakynnum KSK í Krossmóa í Reykjanesbæ í síðustu viku. VF/pket 2 // vÍkurFrÉttir á suðurNEsJuM

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.