Veiðimaðurinn - 01.06.2019, Blaðsíða 58
58 Veiðimaðurinn 59 Hugarróin býr við heiðarvötnin — Ingimundur Bergsson
Stokkar þú vatnaveiðinni ofar en lax
veiðinni? „Sama hvert ég fer í veiði þá
gleymi ég mér og nýt hverrar stundar. Þetta
er ólíkur veiðiskapur en það er miklu meira
frelsi í vatnaveiðinni, og það kann ég að
meta. Ég hef samt aldrei farið til að veiða
með stöng og þótt það leiðinlegt.“
Spenntur fyrir sumrinu
Sumarið lítur vel út segir Ingimundur. Til
viðbótar við Laxá í Mývatnssveit er Langá
á dagskránni. Það er á sem er honum kær
og þar kom maríulaxinn á land á sínum
tíma. En sá hópur sem hefur farið saman
í Langána undanfarin ár
hefur ákveðið að breyta
til og veiða í Soginu –
nánar tiltekið í Bílds
felli þar sem var afar góð
veiði í fyrrasumar.
„Ég er mjög spenntur
fyrir Bíldsfellinu eftir
áralanga fjarveru. Þar
er bara fluguveiði og
öllu sleppt. Ég er að
sækja í stóra fiska, og
þeir finnast þarna svo
sannarlega. Þetta eru
eiginlega Nesveiðar
suðursins,“ segir Ingimundur og bætir við
að Stangveiðifélagið vinnur að því að friða
svæðið eins og mögulegt er. Hætt er að selja
í vorveiði í Bíldsfelli til að minnka álagið
á seiðabúskapinn auk þess sem öllum laxi
skal sleppt og eingöngu veitt á flugu.
„Við vonum að Sogið öðlist fyrri frægð.
Þetta er eitt glæsilegasta veiðivatn lands
ins og sárt að sjá vinnu við uppbyggingu á
efri svæðum árinnar þegar netaveiðin er
ennþá þarna fyrir neðan í ánni. Þetta tekur
tíma og ég bind vonir við þetta frábæra
svæði, eins og sást í fyrrasumar. Þá marg
földuðust aflatölur þrátt fyrir að svæðið
væri illa selt. Góð veiði í fyrra hefur skilað
sér í miklu betri sölu leyfa en í fyrra.“ Eins
og í lífi allra ungra manna þá kemur það
tímabil að börnin krefjast athygli og tíma.
Ingimundur segir að nú séu börnin að
sleppa takinu og orðin sjálfstæðari.
„Stefnan er að gefa veiðinni meiri tíma,
en þó það sé öfugsnúið þá minnkar veiðin
í réttu hlutfalli við hversu maður sekkur
dýpra í veiðibransann. Það að vinna við
áhugamálið skili sér í
minni veiðiskap ekki
meiri. Það er alltaf mest
að gera hér þegar veiðin
stendur sem hæst – og
þess vegna svolítið
erfitt að finna tíma. Það
væri eiginlega betra að
vinna við að markaðs
setja skíðamennsku
og hafa sumarið fyrir
sig í veiði,“ segir Ingi
mundur glottandi.
Brosir gegn sólinni og
regninu
Ingimundur segist eiga auðvelt með að
taka það rólega í veiði – það er ekkert
sérstakt keppkefli að klára hvern einasta
veiðidag upp á mínútu. Hann segist aldrei
verða stressaður eða æstur og lítið mál að
segja degi lokið þó enn lifi klukkutími af
leyfilegum veiðitíma.
„Þetta hefur breyst með árunum. Þegar
ég var yngri var meiri gredda í gangi og
það var aldrei komið nóg. Núna brosir
maður bara og tekur á móti sólinni og
regninu. Þó ég gleymi aldrei drekanum á
Grundarhorninu sem velti sér yfir fluguna
og hjartað á mér fór að ganga öðruvísi en
því var ætlað. Slík augnablik er dýrmæt.
Ég er hins vegar enginn laxahvíslari og á
ennþá eftir að ná 20 punda fiski á land.“
Þessi eiginleiki sem reynslan hefur gefið
Ingimundi tengist þó einum eftirminni
legasta laxi sem hann hefur á ævinni veitt.
Þá var hann staddur í Hítará; korter eftir af
veiðitímanum þegar niður í hús var komið.
„Vaktin var búin að ganga erfiðlega og ég
var hættur. Kokkurinn í Hítará tók það
ekki í mál og sagði mér að taka eitt rennsli
á Breiðinni. Ég var með fimmu og hitchaði
staðinn. Þá tók tíu punda fiskur sem var
Þegar ég var yngri
var meiri gredda
í gangi og það var
aldrei komið nóg.
Núna brosir maður
bara og tekur á móti
sólinni og regninu.
Fallegur lax á Nessvæðinu í Aðaldalnum.
„Við vonum að Sogið öðlist fyrri frægð. Þetta er eitt
glæsilegasta veiðivatn landsins og sárt að sjá vinnu við
uppbyggingu á efri svæðum árinnar þegar netaveiðin er
ennþá þarna fyrir neðan í ánni.“