Veiðimaðurinn - 01.06.2019, Page 115
114 Nafnlaus fluga er ónothæf
Flugan Crosfield mun hafa orðið til við
Elliðaárnar, en leggfjöður af reykvískum
stokkandarstegg mun hafa fætt þessa
flugu af sér.
– en það tafðist eitthvað að rétta flugan
fæddist í þvingunni.
Hins vegar sagði Dunc sögu af vini sínum
sem hafði verið við veiðar við ána Nas-
hwaak í Kanada einhvern daginn, án þess
að snerta fisk. Fyrir ofan hann í ánni var
hins vegar veiðimaður sem veiddi vel,
missti og landaði nokkrum fallegum
löxum og silungum á tiltölulega stuttum
tíma. Vinurinn hafði lítið annað að gera en
að fylgjast með aðförunum en tók svo eftir
því að sá veiðni skipti um flugu í miðjum
darraðadansinum, og sú sem hafði aug-
ljóslega gefið hina góðu veiði varð eftir í
ármölinni þegar hann kvaddi.
Flugunnar var leitað þangað til hún fannst
og Dunc fékk hana í hendurnar sem og
söguna á bak við hana. Hann velti henni
á milli handa sinna en kannaðist ekki við
fluguna. Ekkert svipað fann hann í bókum
– og hnýtti frumgerðina af Undertaker þar
sem hið einkennandi mynstur hélt sér en
litir og lag breyttust töluvert.
Flugan Rusty Rat spilaði sína rullu í því
hvernig nýja flugan leit á endanum út,
segir Dunc í viðtali enda Rusty Rat ein
hans uppáhalds fluga. Við þetta má bæta
að Dunc hnýtti Undertaker í tveimur
útgáfum. Aðra með Jungle Cock fjöðrum
og þá telst flugan sjáandi en kölluð blind
sé fjöðrunum sleppt.
Í fyrsta skipti sem þessi fluga blotnaði tók
hún 24 punda lax í Hammond ánni í New
Brunswick í Kanada. Þar var Dunc fæddur
og uppalinn, en hann rak veiðibúð í Saint
John stóran hluta ævi sinnar og til dauða-
dags árið 2007. Hann kláraði þessa jarðvist
þar sem honum leið einna best – fannst við
skrifborðið sitt með hálfhnýtta flugu fyrir
framan sig. Það er freistandi að halda að
það hafi verið Undertaker.
Ég hef margoft kastað Undertaker – eða
Útfararstjóranum - fyrir lax og þá þeirri
útgáfu sem telst blind, en ég á hana líka í
mörgum stærðum og sjáandi. Ég hef aldrei
fengið högg.
Hann kláraði þessa jarðvist þar sem honum leið einna
best – fannst við skrifborðið sitt með hálfhnýtta flugu
fyrir framan sig. Það er freistandi að halda að það hafi
verið Undertaker.
Veiðimaðurinn 115