Fréttir - Eyjafréttir - 09.05.2022, Síða 16
16 | | 9. júní 2022
„Að klára grunnskóla er eitt af
tímamótum í lífi hvers og eins
og það þýðir að nú er nýr kafli
að taka við, nýtt tímabil þar sem
tækifæri gefast til að takast á
við ný og verðug verkefni sem
eiga vonandi eftir að færa ykkur
gæfu í framtíðinni,“ sagði Anna
Rós Hallgrímsdóttir, skólastjóri
þegar hún sleit Grunnskólanum
á fimmtudaginn. Skólaslitin voru
í Höllinni og fjölmenni fagnaði
krökkunum á þessum tímamótum.
Árgangur 2006 er ekki stór, 48
nemendur í tveimur bekkjum
en Anna Rós sagði að það hefði
ekki spillt fyrir. Hópurinn væri
skemmtilegur og þau hafi staðið
sig vel í námi og leik. „Hér er
ungt fólk sem ég er viss um að
við eigum eftir að sjá mikið af í
framtíðinni. Við ætlum að leyfa
nokkrum af þessu hæfileikaríka
fólki að sýna sig hér í dag,“ sagði
Anna Rós sem í lokin ræddi fram-
tíð nemenda.
„Það skiptir ekki endilega máli
hvaða skóla þið veljið að fara í,
heldur er þetta í ykkar höndum,
hvar hæfileikar ykkar og áhuga-
svið liggja og hvað maður er
tilbúinn að leggja á sig til að ná
settu markmiði. Ef ég á að gefa
ykkur skilaboð út í framtíðina þá
myndi ég segja ykkur að vera trú
sjálfum ykkur og þorið að vera
þið sjálf. Eltið ykkar eigin drauma
og munið að það er í lagi að gera
mistök svo framarlega sem þið
lærið af þeim.“
Anna Rós Hallgrímsdóttir, skólastjóri:
Krakkar sem má vænta mikils af
Tíundi bekkur, RR – Kennari Ragnheiður Reynisdóttir.
Tíundi bekkur, GJ – kennari Guðríður Jónsdóttir.
Hrafnhildur Ýr Steinsdóttir útskrifast
með A í öllum bóklegum greinum
auk textílmenntar.
Jason Stefánsson skaraði fram úr í
íslensku og ensku.