Vesturbæjarblaðið - apr. 2023, Blaðsíða 5
fram eftir kvöldi alla daga vikunnar
og einnig eru hópar að sinna
sínum viðfangsefnum um helgar
auk viðburða.”
Maturinn er mjög vinsæll
Svo er maturinn sem kaffi
félagarnir voru að undirbúa sig til
þess að njóta. ”Maturinn er mjög
vinsæll og ef til vill er það ástæða
þess hversu margir halda að
starfið snúist aðallega um mat. Á
virkum dögum er hægt að kaupa
morgunmat. Svo er hádegis matur
alla daga hvort sem um virka
daga, sunnudaga eða hátíðis
daga er að ræða. Alltaf er hægt að
koma í hádegismatinn án þess
að tilkynna sig fyrir fram. Alltaf er
nóg til því framleiðslu eld húsið er
hér sem framleiðir mat fyrir allar
félagsmiðstöðvarnar og allan heim
sendann mat á vegum velferðar
sviðs. Að meðaltali koma rúmlega
200 manns í mat á hverjum degi
fyrir utan það sem sent er út
um alla borg. Við bjóðum bæði
upp á hefðbundin mat og einnig
grænmetis fæði. Svo er síðdegiskaffi
á virkum dögum. Við erum nýbúin
að fá vottun um grænu skrefin
að við séum með umhverfis vænt
eldhús. Hér fer fram fjölbreytt
dagskrá alla daga, í boði eru margir
heilsueflandi dagskrárliðir, svo
sem leikfimi og slökun, hægt er að
koma í handavinnu og námskeið
í myndlist, leirlist, postulíni og
bókbandi og nýta sér smíðastofuna
okkar. Við erum með fjölskyldu
væna viðburði og dagskrá og erum
t.d. með fjölskyldu jóga.“ Drífa
tekur sérstaklega fram að ókeypis
að koma og taka þátt flestum
dagskráratriðum. Öllu nema
námskeiðum sem er stýrt af leið
beinendum. Hún leggur áherslu á
orðin. ”Fólk getur komið hingað og
eytt því sem það vill af deginum.
Að koma og vera innan um annað
fólk, fá sér kaffi og spjalla saman er
heilmikið félagsstarf og hefur mikið
forvarnargildi. Fólk þarf ekki að gera
neitt. Bara að koma.”
Harmonikka er
fjölhæft hljóðfæri
Vitatorgsbandið er einn af
föstum þáttum í starfseminni.
Bandið er hljómsveit sem einkum
stendur saman af heldra fólki
og spilar reglulega á Vitatorgi.
”Á hverjum einasta miðviku
degi koma þau hingað og halda
dansleik og einu sinni í mánuði er
sungið saman eftir dansleik. Við
höfum verið að fá leikskólakrakka
hingað og leyfa þeim að kynnast
harmonikkunni sem hljóðfæri. Þá
kallaði Guðrún hljómsveitarstjóri
þetta harmonikku stund með
ömmu og afa. Misskilningur er að
harmoníku leikur höfði einkum til
heldri borgara. Harmónikkan er
fjölhæft hljóðfæri og margs konar
tónlist er leikin á hana. Þau eru
átta í hljóm sveitinni núna. Eru
með harmonikkur og gítara og
trommur svo annað sé nefnt. Þetta
er mjög flott hjá þeim. Þau hafa
líka annast um skemmtana hald
hér á kvöldin. Þá eru þau hljóm
sveitarmeðlimirnir og þeirra vinir
og samstarfsfólk sem koma og búa
til skemmtidagskrá.”
Esjan og Sundin blasa við
Þegar gengið eru um húsnæði
og sali á Vitatorgi er ljóst að þar
fer margskonar starfsemi fram.
Gríðarstór veitingasalur er aðeins
brot af vistarverum sem fólk hefur
afnot af. Þegar líða tekur að hádegi
eru einhverjir morgungestir farnir.
Aðrir drífa að. Starfsfólk í veitingasal
er að undirbúa að fá rúmlega 200
manns í hádegismat. Ekkert bólar
þó enn á félögunum af Kaffi Tári. Ef
til vill er stutt í suma þeirra. Drífa
gengur með komumanni um sali.
Nokkrir sitja og fletta blöðum og við
borð situr eldri kona og les fréttir
af tölvuskjá. Okkur verður litið út
um glugga. Handan Skúlagötunnar
sér út á Sundin og Esjan blasir við í
fjarska. Heilsuefling er í hverju rúmi
hvaða nafni eða undirtitli sem hún
nefnist. Útsýnið er jafnvel hluti af
henni. Og nú fóru nokkrir félagar af
Tárinu að mæta í matinn.
5Vesturbæjarblaðið APRÍL 2023
H u n d a r
ve l ko m n i r !
Vitatorgsbandið og félagar að skemmta á Þorrablóti.
Boccia stundað á torginu úti á Vitatorgi.
Vikulegt vítamín er í Valsheimilinu, heilsueflingu fyrir 60+.
Jóganámskeið eru vinsæl á Vitatorgi.
Mér finnst
Vesturbærinn
fullkomin blanda af
umhverfi og mannlífi.
Vesturbærinn er á
mörkum bæjarhluta
sem íbúðahverfis
og Miðborgarinnar.
Þetta eru tveir
skemmtilegir
borgarhlutar.
Fólk getur komið
hingað og eytt því sem
það vill af deginum.
Að koma og vera
innan um annað fólk,
fá sér kaffi og spjalla
saman er heilmikið
félagsstarf og hefur
mikið forvarnargildi.
Fólk þarf að gera neitt.
Bara að koma.