Vesturbæjarblaðið - feb. 2023, Side 2

Vesturbæjarblaðið - feb. 2023, Side 2
2 Vesturbæjarblaðið Útgefandi: Borgarblöð ehf. Eiðistorgi 13-15 • 172 Seltjarnarnes • Pósthólf 171 Rit stjóri: Þórður Ingimarsson • Sími: 893 5904 Netfang: thordingimars@gmail.com Auglýsingasími: 511 1188 • 552 1953 • 895 8298 Heimasíða: borgarblod.is Net fang: borgarblod@simnet.is Framkvæmda- og aug lýs inga stjóri: Krist ján Jó hanns son Um brot: Valur Kristjánsson Prentun: Landsprent ehf. Dreif ing: Póstdreifing ehf. 2. tbl. 26. árgangur Vesturbæjarblaðinu er dreift í hvert hús í póstnúmerum 107, 102 og 101. Tímamót urðu hjá KR í liðinni viku. Félagið varð 124 ára. Þótt ártalið feli ekki stór tímamót í sér þá er fleira að gerast hjá félaginu um þessar mundir. Nú sér undir lok á löngu og miklu undirbúningsferli að breyttri og stórbættri að stöðu hjá KR-ingum. Gera má ráð fyrir að framkvæmdir hefjist innan tíðar. Með þeim framkvæmdum sem eru fyrirhugaðar verður gjörbylting á starfsaðstöðu KR. Hún hefur verið bágborin þar sem fátt hefur verið endurnýjað eða byggt í fjölda ár. Gengi KR á íþróttasviðinu mætti vera betra en það hefur reynst vera að undanförnu. Kunnugir telja að aðstöðuleysið geti átt sinn þátt í því. Fagna ber þeirri ákvörðun að nútímavæða rekstrargrundvöll félagsins. Bygging íbúðarhúsnæðis og þjónusturýma í tengslum við ný íþrótta- og félagsmannvirki er liður í því. Á þeirri einni og kvartöld sem félagið hefur starfað hefur það verið driffjöður í íþróttalífi Vesturbæjarins. Margt fólk hefur alist upp innan félagsins sem skipað hefur stóran sess í lífi þess. Einu sinni KR-ingur ætíð KR-ingur hefur oft verið sagt og rætt fyrir munn margra. Með þeirri uppbyggingu sem nú er við bæjardyrnar mun framtíð þess starfs verða tryggð um framtíð. KR-ingar geta fagnað. Tryggt til framtíðar FEBRÚAR 2023 ALHLIÐA MÚR- OG STEYPUVIÐGERÐIR www.husavidgerdir.is/hafa-samband info@husavidgerdir.is - Sími 565-7070 Finndu okkur á Fegrun og lenging líftíma steyptra mannvirkja er okkar áhugamál. Við höfum náð góðum árangri í margs konar múr- og steypuviðgerðum, múrfiltun, steiningu og múrklæðningum. Hafðu samband Við skoðum og gerum tilboð! Lokið er við að endurgera Sjálfstæðishúsið eða Sigtún og Nasa við Austurvöll eins og húsið hét síðar en það var upphaflega byggt 1878 sem kvennaskóli. Burðarvirki þess var endurbætt en klæðningin er að mestu upprunaleg. Húsinu var lyft, kjallarinn dýpkaður var hlaðinn sökkull undir því tekinn og síðan endurraðað nákvæmlega eins aftur. Salurinn sem áður hýsti Sjálfstæðishúsið og síðar Sigtún og Nasa var færður niður um eina hæð og er gengið inn á palli fyrir ofan. Salurinn var einnig endurbyggður þar sem stuðst var við þann búning sem Sjálfstæðishúsið var í. Salurinn stendur á púðum inn í heildarmannvirki og því raunverulega hljóðeinangraður til að ómur af tónist trufli ekki gesti nærliggjandi hótels. Salurinn er friðaður og öll skilyrði varðandi friðun voru uppfyllt. Svona sjá arkitektar fyrir sér að verði umhorfs í endurgerðum sal. Mynd THG Arkitektar. Sjálfstæðishúsið við Austurvöll endurgert Eigendur Einimels 18, 24 og 26 munu greiða að meðaltali 67.897 krónur á fermetra til borgarinnar fyrir stækkun á lóðum þeirra við Sundlaugartún. Áætlað er að borgin fái samtals um sextán milljónir í sinn hlut í viðskiptunum. Þetta kemur fram í fylgiskjölum með þar sem tillaga að deiliskipulagi umræddra fasteigna var tekin fyrir og samþykkt. Deiliskipulaginu er ætlað að leysa úr langvarandi deilum um eignarhald á túninu. Á sínum tíma reistu eigendur húsa við Einimel 22 til 26 girðingu við lóðir sínar sem ganga að verulegu leyti inn á almannarými. Borgarstjórn hefur sætt gagnrýni vegna ábendinga um að lóðarhafar einbýlishúsa að Einimel 22, 24 og 26 hafi teygt lóðir sínar í leyfisleysi út á túnið og sett upp girðingar. Voru þá uppi ásakanir um að borgin hefði í reynd gefið þessum lóðareigendum stóra landeign án endurgjalds. Í hinu nýja deiliskipulagi er um að ræða lausn á áralöngum deilum. Deiliskipulagið felur í sér að eigendum einbýlishúsa við Einimel 18 til 26 er boðið að kaupa hluta af því svæði sem um ræðir og lóðirnar stækkaðar til samræmis við það. Lóðarhafar Einimels 18, 24 og 26 hafa gengið að tilboði Reykjavíkurborgar. Samkvæmt skipulagstillögunni sem samþykkt hefur verið verður þeim heimilt að færa gildandi lóðamörk út um allt að 3,1 metra. Samhliða því verður girðing sem stendur lengra inn á borgarlandið, eða allt að 14 metrum, fjarlægð. Hjólavöllur á Sundlaugartúninu. Til hægri má sjá girðinguna sem stúkað hefur af hluta af borgarlandinu á túninu. Þessi girðing verður fjarlægð. Borgin fær tæpar 68 þúsund krónur fyrir fermetrann Einimelslóðirnar

x

Vesturbæjarblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vesturbæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1114

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.