Vesturbæjarblaðið - Feb 2023, Page 14

Vesturbæjarblaðið - Feb 2023, Page 14
14 Vesturbæjarblaðið FEBRÚAR 2023 Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN Útfararþjónusta í yfir 70 ár Veitingastaðurinn Indican opnaði fyrir liðin áramót veitingastað við Hagamel þar sem Plúto Pizza var áður, þar áður fiskbúð og bókaverslunin Úlfarsfell á fyrri tíð. Útibú veitingastaðarins Indican í Mathöll Höfða lokaði í mars síðastliðnum og fóru eigendur að leita að nýjum stað. Indican við Hagamel er einknum hverfisstaður hugsaður til að þjóna einkum Vesturbæingum og Seltirningum og þeim sem þar búa. Nýir réttir eru á matseðlinum og ný staðsetning opnar fjölda möguleika. Rúm er fyrir þennan mat á markaðnum og því tækifæri í framtíðinni en til að gera meira. Indican á Hagamelnum Erlingur Guðleifsson hefur verið ráðinn til starfa til að efla miðlun vísinda- og tækniþekkingar frá Íslandi til Alaska á sviði sjávar- útvegs, orkumála og nýsköpunar. Erlingur hefur verið hluti af ráð- gjafateymi Sjávarklasans frá árinu 2018 og í hans nýja starfi mun hann hafa aðsetur í Húsi sjávar- klasans í Örfirisey. Erlingur hefur víðtæka reynslu og þekkingu á sviði fullnýtingar sjávarafurða og nýsköpunar. Sjávarklasinn hefur um árabil átt náið samstarf við Alaskafylki í Banda ríkjunum en einn fyrsti dóttur klasi Sjávarklasans, sem settur var upp utan íslands, var einmitt Alaska Ocean Cluster. Árið 2019 undirrituðu Íslenski sjávarklasinn og þáverandi stjórnandi Alaska Ocean Cluster, Justin Sternberg, undir vilja­ yfirlýsingu um frekara samstarf milli þessara klasa. Það hefur leitt til þessa samstarfs. UAF er fyrsti bandaríski háskólinn sem formlega hefur störf innan veggja Íslenska sjávarklasans. Háskólinn í Alaska Fairbanks er mjög framarlega á sviði norðurslóðarannsókna, sjávarlíffræði og þróun orkuinnviða fyrir dreifbýl svæði. Með ráðningunni hyggst UAF styrkja sig enn frekar á sviði orkumála og málefnum bláa hagkerfisins. Erlingur Guðleifsson til starfa hjá Sjávarklasanum Erlingur Guðleifsson mun vinna að orkumálum og styrkingu bláa hagkerfisins. Indican er á Hagamelnum á horninu á Hagamel og Kaplaskjólsvegi. Vetrarhlé stendur yfir á fram- kvæmdum umhverfis Hlemm eða annars vegar á Rauðarárstíg norður og hins vegar frá Hlemmi að Snorrabraut. Vinnu við fráveitu og vatnsveitu að mestu lokið í Rauðarárstíg og búið að fylla aftur upp í skurði. Stefnt er að því hefja vinnu aftur við Rauðarárstíg um mánaðamót febrúar og mars. Við Laugaveg er lagningu fráveitu að mestu lokið, einnig er búið að steypa undirstöður fyrir stál strúktur um miðbik götunnar. Næstu verk­ liðir þar eru lagning hitaveitu og rafmagns. Stálstrúkturinn tengist blágrænum ofanvatnslausnum á svæðinu en þeim er ætlað að létta á veitukerfi borgarinnar. Regnvatn mun nýtast í gróðurbeðunum og minnka álag á veitukerfið á svæðinu. Þannig nýtist regn vatnið og verkefnið verður sjálfbært. Gert er ráð fyrir að Hlemmtorg geti kallast á við Lækjartorg. Gert er ráð fyrir að koma upp sviði á Hlemm­ torgi þannig fyrir að Hlemmur geti orðið upphafsstaður skrúðganga í miðbænum sem myndu svo enda á Lækjartorgi, Austurvelli eða Ingólfs torgi. Sennilega verður hægt að ráðast í framkvæmdir á sjálfu Hlemm torgi árið 2024 en framkvæmdum mun endanlega ljúka þegar Borgarlínan rennur í gegnum svæðið. Vetrarhlé en fram- kvæmdum miðar vel Framkvæmdir við Hlemm eru í vetrarhléi en óvenju snjóþungt hefur verið að sem af er ári. Vinna mun hefjast að nýju í byrjun mars. Hlemmur Skeifan 8 | 108 Reykjavík | sími 517 6460 | www.belladonna.is Erum að taka upp nýjar vörur VOR 2023 „Takk fyrir að sýna okkur að krabbamein er ekki dauðadómur“ Kolluna upp fyrir Huldu! lifidernuna.is

x

Vesturbæjarblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vesturbæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1114

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.