Feykir - 12.01.2022, Side 5
ÍÞRÓTTAFRÉTTIR F
Subway-deildin | Þór Ak – Tindastóll 91–103
Það er gott að vinna
Tindastólsmenn settu í fjórða gírinn sl.
mánudag og brunuðu yfir Öxnadals-
heiðina alla leið til Akureyrar þar sem
íþróttakarl Þórs, Ragnar Ágústsson, og
félagar hans biðu spenntir eftir
Stólunum. Þórsarar gerðu sér lítið fyrir
á dögunum og lögðu jójólið Grinda-
víkur óvænt í parket og náðu þar
sínum fyrsta sigri í vetur. Þeir ætluðu
væntanlega að endurtaka leikinn í
fyrrakvöld en þeim varð ekki kápan úr
því klæðinu. Leikurinn var spennandi
og baráttan í algleymingi eins og í
sönnum grannaslag en Stólarnir
náðu vopnum sínum þegar á leið og
hleyptu heimamönnum ekki inn í
leikinn á lokakaflanum. Lokatölur 91-103.
Tindastólsmenn hófu leikinn af krafti og
komust í 5-12 eftir þrist frá Arnari eftir rúmlega
þriggja mínútna leik. Heimamenn í Þór snéru
leiknum sér í vil og komust yfir 15-14 þremur
mínútum síðar. Þeir höfðu síðan frumkvæðið það
sem eftir lifði fyrsta leikhluta og leiddu 26-22 að
honum loknum. Bess, sem átti góðan leik,
minnkaði muninn í eitt stig snemma í öðrum
leikhluta og kom síðan Stólunum yfir, 31-32.
Leikurinn var í járnum fram að hléi og liðin
skiptust á um að hafa forystuna en Skagfirðingarnir
voru einu stigi yfir í hálfleik, 46-47, eftir að Taiwo,
sem sömuleiðis átti hörkuleik, setti niður eitt víti.
Þórsarar höfðu undirtökin fyrstu fimm mínútur
þriðja leikhluta en munurinn yfirleitt eitt til fjögur
stig. Bess jafnaði leikinn 61-61 og í kjölfarið kom
þristur frá Arnari og frumkvæðið færðist yfir til
gestanna. Bess sá til þess að Stólarnir héldu
forystunni með tveimur þristum. Ragnar Ágústs
minnkaði muninn í 68-70 fyrir sína menn í Þór
þegar um hálf mínúta var eftir af þriðja en Viðar
bróðir hans svaraði með þristi. Pétur náði í
framhaldinu að stela boltanum af Keely og átti
síðan stoðara á Bess sem negldi niður þristi rétt
fyrir lok þriðja leikhluta og staðan skyndilega orðin
68-76.
Taiwo jók muninn í tíu stig snemma í
lokafjórðungnum og hann var drjúgur fyrir Stólana
Taiwo Badmus var öflugur í leiknum gegn Þór. MYND: HJALTI ÁRNA
Körfuknattleiksdeild Tindastóls
Ingigerður til liðs við Stólastúlkur
Í tilkynningu frá körfuknattleiksdeild
Tindastóls segir að Ingigerður
Hjartardóttir hafi gengið til liðs við
kvennalið mfl.Tindastóls. Ingigerður
kemur frá Snæfelli, þar sem hún
spilaði upp alla yngri flokkana. Hún
hefur verið í 16 manna landsliðshópi
U16 og er í dag í úrtaki fyrir u18 þrátt
fyrir að vera aðeins 16 ára gömul.
Tindastóll fagnar því að ungur og
efnilegur leikmaður gangi til liðs við
félagið og ljóst að koma Ingigerðar
mun styrkja hópinn fyrir seinni hluta
tímabilsins.
Dagur Baldvins og Ingigerður handsala samninginn. MYND AF NETINU
á þessum kafla. Þórsarar komu muninum niður í
sex stig, 79-85, þegar rúmar sex mínútur voru eftir
en stuttu síðar fékk Dúi Jóns dæmt á sig tæknivíti
og þar sem hann hafði áður fengið dæmda á sig
óíþróttamannslega villu var honum vikið út úr
húsi - og krækti í annað tæknivíti fyrir sitt lið á
leiðinni út! Bess skilaði vítunum rétta leið og
Stólarnir náðu fljótlega að auka muninn í 14 stig.
Þórsarar gáfust ekki upp en lið Tindastóls var
ekkert á þeim buxunum að leggjast í lazyboyinn og
hleypa heimamönnum í nammipokann – sigldu
bara einbeittir mikilvægum mórölskum sigri í
örugga höfn.
Þórsarar tóku örlítið fleiri skot í leiknum og
fráköstuðu betur (46/39) auk þess sem þeir fengu
talsvert fleiri villur (27/19) og komust gestirnir því
töluvert oftar á vítalínuna. Í liði Tindastóls var
Taiwo í stuði og gerði 30 stig, tók sjö fráköst og
fiskaði tíu villur á Þórsarana. Bess var stigahæstur
með 34 stig og hann skilaði sömuleiðis sjö
fráköstum. Sigtryggur Arnar gerði 15 stig og átti
sjö stoðsendingar og þá gerði Pétur sjö stig, tók sjö
fráköst og átti ellefu stoðsendingar. Í liði Þórs voru
Atle Ndiaye og Reginald Keely stigahæstir með 32
og 24 stig en Keely hirti einnig 14 fráköst.
Nú á föstudaginn halda Stólarnir að Hlíðarenda
þar sem lundléttir Valsmenn bíða eftir þeim en svo
fáum við loks heimaleik 20. janúar. Þá koma KR-
ingar norður í Síkið. /ÓAB
Covid setur nú strik í reikninginn í körfu-
boltanum en lið Tindastóls átti að spila um síð-
ustu helgi en leiknum var frestað. Miðað við
upplýsingar á heimasíðu KKÍ er næsti leikur
stúlknanna ekki fyrr en 19. janúar en þá mæta
Stólastúlkur liði ÍR í Breiðholtinu. /ÓAB
Kormákur Hvöt
Arnór áfram í 3. deildinni
„Faxvélin heldur áfram að
rymja hjá Kormáki Hvöt!“
segir í tilkynningu frá
fjölmiðlafulltrúa liðsins en
meistaraflokkur Kormáks
Hvatar heldur áfram að safna
að sér meisturum fyrir
sumarið og næstur í röðinni
er leikmaður sem er
aðdáendum að góðu einu
kunnur.
Í tilkynningunni segir að
skagfirski Húnvetningurinn,
Arnór Guðjónsson, hafi söðl-
að um og njóti nú útsýnis-
ins vestan megin Þverárfjalls.
Arnór spilaði með Kormáki
Hvöt sumrin 2018 og 2019 og
tekur nú slaginn á ný með
Húnvetningum í 3. deildinni
eftir að hafa spilað tvö síðustu
sumur með liði Tindastóls í
sömu deild.
„Arnór er miðjumaður
með næmt auga fyrir spili og
fellur því vel inn í hópinn,
enda nóg um næm augu í
leikmannahópnum. Hjartan-
lega velkominn í bleikt
Arnór!“ segir í skeyti Hún-
vetninga. /PF
Guddy leggur upp síðasta mark Tindastóls á heimavelli í 3. deildinni síðasta
sumar; lagði hann snyrtilega á Jóhann Daða sem dúndraði í markið. MYND: ÓAB
Knattspyrnudeild Tindastóls
Sextán sömdu við Stólana
Sextán leikmenn skrifuðu
undir tveggja ára samning við
Knattspyrnudeild Tindastóls í
síðastliðinni viku. Undirrit-
unin fór fram í vallarhúsinu á
Króknum áður en leikmenn
héldu á æfingu en þeir hafa
flestir æft með liðinu frá því í
október.
„Þetta er frábær blanda af
ungum leikmönnum sem eru
að stíga sín fyrstu skref í
meistaraflokksfótbolta í bland
við leikmenn sem hafa spilað í
mörg ár og eru aðeins eldri og
reynslumeiri,” segir Halldór
Jón Sigurðsson (Donni), aðal-
þjálfari meistaraflokka Tinda-
stóls og yfirmaður knatt-
spyrnumála hjá félaginu.
Leikmennirnir sem skrif-
uðu undir eru: Anton Helgi
Jóhannsson, Arnar Ólafsson,
Benedikt Kári Gröndal, Bragi
Skúlason, Einar Ísfjörð Sigur-
pálsson, Emil Óli Pétursson,
Eysteinn Ívar Guðbrandsson,
Hólmar Daði Skúlason, Ísak
Sigurjónsson, Jóhann Daði
Gíslason, Jón Gísli Stefánsson,
Jónas Aron Ólafsson, Kristó-
fer Rúnar Yngvason, Sigurður
Pétur Stefánsson, Svend Emil
Busk Friðriksson og Sverrir
Hrafn Friðriksson.
Sjá nánar á Feykir.is. /ÓAB
Fríður hópur undirskrifara ásamt Donna þjálfara. MYND: TINDASTÓLL.IS
02/2022 5