Feykir - 02.02.2022, Qupperneq 9
Kormákur Hvöt
Pepelu passar markið
í 3. deildinni í sumar
Meistaraflokksráð Kormáks
Hvatar heldur áfram að safna
liði til að styðja við markmið
liðsins í sumar en framundan er
spennandi sumar í nýrri deild og
sem nýliðar í stóru tjörninni er
ljóst að sú vegferð hefst aftast á
vellinum, segir í tilkynningu frá
ráðinu.
„Það er því með mikilli
ánægju að tilkynna að José Luis
Villar Alcaniz, sem gengur undir
vinnuheitinu Pepelu, hefur
ákveðið að slá til og verja mark
Húnvetninga í sumar. Pepelu
þessi er hokinn af reynslu í
faginu og hefur spilað í b-deild
Spánar auk mýgrútar leikja í
þriðju efstu deild, svo hér eru á
ferðinni löðrandi gæði! Pepelu
kemur til okkar frá Cartagena í
Múrsíuhéraði.
Velkominn í bleikt Pepelu!“
/PF
Eða bara Pepelu.
Kjarnafæðismótið í knattspyrnu
Stuð á Stólunum þegar
þeir mættu KA3
Lið Tindastóls lék þriðja leik
sinn í B-deild Kjarnafæðis-
mótsins sl. miðvikudag þegar
þeir mættu liði KA3 á
KA-vellinum. Illa gekk að
skora framan af leik en
síðustu tíu mínútur fyrri
hálfleiks reyndust Stólunum
gjöfular en þá gerðu
strákarnir út um leikinn með
fjórum mörkum. Lokatölur
leiksins voru 6-1 og lið
Tindastóls með fullt hús stiga
eftir þrjár umferðir.
Það var Benedikt Kári
Gröndal sem opnaði marka-
reikninginn með marki á 38.
mínútu og tveimur mínútum
síðar bætti Konni (bróðir
Donna) við öðru marki. Jónas
Aron gerði þriðja markið á
markamínútunni alræmdu
(43) og Bragi Skúla sprautaði
glassúrnum yfir góðan kafla
Stólanna með marki á 45.
mínútu.
Markamaskínan Jóhann
Daði (!) bætti við fimmta
marki Stólanna á 55. mínútu
en á 77. mínútu lagaði Breki
Baldursson stöðuna fyrir
Akureyringa. Jón Gísli
Stefánsson átti þó síðasta
orðið í leiknum og kórónaði
góðan sigur Stólanna með
marki á 81. mínútu.
Tindastóll og Hamrarnir
eru bæði með níu stig að
loknum þremur leikjum og
eiga eftir að mæstast í úr-
slitlaeik en leik liðanna var
frestað í janúar. Hann verður
spilaður nk. föstudag ef allt
gengur að óskum. /ÓAB
ÍÞRÓTTAFRÉTTIR F
Mjólkursamlag KS
Skagfirðingabraut 51 Sauðárkróki Sími 455 4600 www.ks.is
Skagfirskir gæðaostar
Goðdalir eru heitið á gæðaostunum Feyki, eldri
bróður hans Feyki 24+, Gretti, Reyki og Vesturós.
Hver um sig kinkar kolli til Skagafjarðar
á sinn einstaka hátt.
Jóhann Daði skorar í fyrra. MYND: ÓAB
Körfubolti
Þráfelldar
frestanir
Það gengur brösuglega fyrir
Stólana að spila leiki sína í
Subway-deildinni í körfubolta
og er þar Covid hinn eini sanni
sökudólgur.
Leikjum var frestað í
kringum áramótin en svo
spiluðu strákarnir tvo leiki um
miðjan janúar áður en veiran
poppaði upp að nýju og hefur
nú þremur síðustu leikjum
Stólanna verið frestað. Liðið
hefur nú aðeins spilað tvo leiki
á síðustu sex vikum; unnu Þór á
Akureyri en féllu fyrir Vals-
mönnum í höfuðborginni.
Gárungarnir vilja reyndar
meina að Stólunum hafi sjaldan
gengið jafn vel í janúar og nú en
janúar mánuður hefur alla jafna
dregið fá stig í Stólahús og hafa
menn þá helst kennt gómsætri
jólasteikinni um.
Ef Covid lofar þá mæta
strákarnir liði Grindavíkur
suður með sjó annað kvöld en á
laugardag eiga Stólastúlkur
heimaleik gegn Stjörnunni. /ÓAB
05/2022 9