Feykir


Feykir - 16.02.2022, Blaðsíða 11

Feykir - 16.02.2022, Blaðsíða 11
Nú tekur Tón-lystin hús á Elvari Loga Friðrikssyni (árgerð 1984), tónlistarkennara við Tónlistarskóla Austur-Húnvetninga, en hann býr á Hvammstanga, starfar á Blönduósi og Skagaströnd en er Skagfirðingur. Það er varla hægt að tikka öllu betur í boxin á Norðurlandi vestra. „Ég er alinn upp í fallegustu sveit landsins eða Lýtingsstaðahreppi hinum forna. Í báðum ættum eru Lýtingar svo langt sem elstu menn muna en móðir mín er Lovísa Sveinsdóttir frá Varmalæk og faðir er Friðrik Rúnar Friðriksson frá Laugarhvammi. Á framhaldskólaárunum kynntist ég heimasætu frá Grafarkoti í Vestur-Húnavatnssýslu og við fluttum saman í V-Hún fyrir einhverjum 15 árum og eignuðumst tvö börn en hættum að nenna að búa saman fyrir þremur árum og erum í sitt hvoru húsinu á Hvammstanga,“ segir Elvar Logi. Hann kennir á gítar, ukulele og bassa en spilar undir fyrir söngnemendur á gítar og píanó. Hann segir það hafa verið sitt helsta afrek á tónlistarsviðinu að hafa klárað framhaldsprófið í klassískum söng. Nú nýverið var Elvar Logi á fullu með Jólahúnum og þá voru örugglega margir sem sáu kappann spilandi og syngjandi í hreint ágætum þorrablótsþætti Lýtinga. En vindum okkur í spurningarnar... Hvaða lag varstu að hlusta á? Summer of 69. Uppáhalds tónlistartímabil? 80's. Hvaða tónlist fær þig til að sperra eyrun þessa dagana? Tónlist með góðum textum. Hvers konar tónlist var hlustað á á þínu heimili? Amma var bara alltaf með Rás 1 og 2 í gangi en það var sungið mikið við eldhúsborðið á Varmalæk og mjög oft sem maður sofnaði við fallega raddaðan söng. Lög með Ragnari Bjarna og Ellý Vilhjálms heyrðust oft en svo bara margt mikið eldra og mörg lög sem fáir kunna orðið í dag. Hver var fyrsta platan/diskur-inn/ kasettan/niðurhalið sem þú keyptir þér? Veit ekki af hverju en það var geisladiskur með Sléttuúlfunum. Hvaða græjur varstu þá með? Bara veit það ekki. Elvar Logi Friðriksson | tónlistarmaður Hlustaði á Skref fyrir skref með ástarhjörtu í augunum ( TÓN-LYSTIN ) oli@feykir.is Hvert var fyrsta lagið sem þú manst eftir að hafa fílað í botn? Ætli það hafi ekki verið Skref fyrir skref með Eyjólfi Kristjáns. Var ógurlega skotinn í stúlku í sveitinni um tíma og hlustaði á þetta lag með ástarhjörtu í augunum. Hvaða lag getur eyðilagt fyrir þér daginn? Held að ég geti ekki hlustað á Last Christmas með Wham! nokkurn tíman aftur og ég hata lagið Ef ég nenni með Helga Björns. Þú heldur dúndurpartí í kvöld, hvað læturðu hljóma í græjunum til að koma öllum í stuð? París norðursins með Prins Póló. Þú vaknar í rólegheitum á sunnudags- morgni, hvað viltu helst heyra? Mjög oft fer hljómsveitin Nightwish í gang hjá mér. Þú átt þess kost að fara hvert sem er í heiminum og skella þér á tónleika. Hvert færirðu, á hvaða tónleika og hvern tækirðu með þér? Til Finnlands á tónleika með finnsku rokkhljómsveitinni Nightwish. Er svo heppinn að eiga marga góða vini sem ég myndi vilja fara með en ég myndi klárlega taka Múdda í Laugarholti með mér. En Eyþór organisti og vinnufélagi þyrfti sennilega að koma líka þar sem við deilum þessum áhuga á Nightwish. Hvaða músík var helst blastað í bílnum þegar þú varst nýkominn með bílpróf? Nýjustu skífur Álftagerðisbræðra, Metallica, Rammstein og Offspring. Hvaða tónlistarmaður hefur þig dreymt um að vera eða haft mest áhrif á þig? Egill Ólafs hefur alltaf verið í miklum metum hjá mér. Ótrúlega fjölhæfur listamaður. Hver er að þínu mati besta plata sem gefin hefur verið út eða sú sem skiptir þig mestu máli? Black Album með Metallica. Sex vinsælustu lögin á Playlistanum þínum? Thunderstuck / AC DC Du hast / Rammstein This is Me / The Greatest Showman Wish I Have An Angel / Nightwhish Öldurót / Ásgeiri Trausti Söknuður / Villi Vill Elvar Logi Friðriksson með börnunum sínum. AÐSEND MYND Vetrarmótaröð Þyts Fleinn og Herdís Einars sigruðu í gæðingatölti Fyrsta mótið í Hestamannafélagsins í Húnaþingi vestra var haldið í Þyts- höllinni föstudagskvöldið 11. febrúar. Keppt var í gæðingatölti og segir á heimasíðu félagsins að þátttaka hafi verið ágæt. Úrslit urðu þau að Fleinn frá Grafarkoti og Herdís Einarsdóttir sigruðu í 1. flokki með einkunnina 8,550, Brynjar frá Syðri-Völlum og Ingunn Reynisdóttir í 2. flokki með 8,583 og Óskar Einar Hallgrímsson og Frosti frá Höfðabakka í 3. flokki með einkunnina 8,342. Í unglingaflokki báru þeir Indriði Rökkvi Ragnarsson og Vídalín frá Grafarkoti sigur úr bítum með einkunnina 8,517 og Ayanna Manúela Alves og Kiljan frá Múla báru sigurorð af Herdísi Erlu Elvarsdóttur og Esju frá Grafarkoti, með einkunnina 7,700. /PF 07/2022 11

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.