Feykir - 04.05.2022, Blaðsíða 2
Lokahátíð Stóru upplestrar-
keppninnar í Skagafirði var
haldin í sal FNV 26. apríl sl. Stóra
upplestrarkeppnin hefur verið
haldin í 21 skipti í Skagafirði, en
ein lokahátíð féll niður vegna
covid. Stóra upplestrarkeppnin
er miklu meir en keppni einn
dagpart því er markvisst unnið
með framsögn í skólastarfi allt
frá degi íslenskrar tungu á ári
hverju, en markmið Stóru
upplestarkeppninnar er að allir
nemendur fái þjálfun í því að
lesa upp, sjálfum sér og öðrum
til ánægju.
Á lokahátíðinni öttu kappi
ellefu lesarar úr öllum
grunnskólum Skagafjarðar og
lásu sögubrot og tvö ljóð. Fóru
leikar þannig að Iðunn Kolka
Gísladóttir úr Varmahlíðarskóla
hlaut fyrstu verðlaun, Helgi
Sigurjón Gíslason úr Árskóla
önnur og Lára Sigurðardóttir úr
Árskóla þau þriðju. Voru lesarar
og varamenn þeirra sem einnig
fluttu ljóð á hátíðinni til mikillar
fyrirmyndar og sjálfum sér og
skólum sínum til sóma.
Nemendur úr Tónlistarskóla
Skagafjarðar austan Vatna sáu
um tónlistarflutning af stakri
prýði og keppendur frá fyrra ári,
þær Bríet Bergdís, Heiðdís Pála
og Ingunn Marín stýrðu sam-
komunni styrkri hendi. Kaup-
félag Skagfirðinga gaf verðlaunin
á hátíðina og Forlagið færði
öllum keppendum bókina
Hingað og ekki lengra! eftir
Hildi Knútsdóttur og Þórdísi
Gísladóttur að gjöf.
/Laufey Leifsdóttir
Senn líður að sveitarstjórnarkosningum og framboðin öll
loksins komin undan feldi til að kynna sín stefnumál. Allir
eru með bestu stefnumálin og mörg þeirra sem hníga í
sömu átt enda vilja allir sínu samfélagi það besta en íbúar
klóra sér í höfðinu og íhuga hverja eigi að velja til forystu.
Kannski Skagstrendingar standi
best að vígi þar sem engin ágrein-
ingsmál trufla Skagastrandarlist-
ann sem einn er í boði og í Skaga-
byggð eru allir í kjöri sem ekki hafa
sérstaklega tilkynnt um annað.
Meira fjör verður væntanlega í
hinum sveitarfélögum þremur en í
Húnaþingi bjóða þrír listar fram; B
listi Framsóknar og annarra fram-
farasinna, D listi Sjálfstæðismanna
og óháðra og N listi Nýs afls í
Húnaþingi vestra.
Í sameinuðu sveitarfélagi Blönduóss og Húnavatns-
hrepps eru þeir fjórir; B-listi Framsóknar og annarra
framfarasinna, D-listi Sjálfstæðismanna og óháðra, G -listi
Gerum þetta saman og H-listi. Og í Skagafirði eru það B-listi
Framsóknarflokks, D-listi Sjálfstæðisflokks, L-listi Byggða-
Listans og V-listi VG og óháðra sem berjast um atkvæðin.
Ýmislegt er látið flakka á samfélagsmiðlum og þar fer oft
fram gagnleg umræða sem oftar en ekki er beint til
framboðslistamanna. Það er í sjálfu sér ágætt en miðað við
áhugann þar vekur það athygli mína hve dræm mæting er á
íbúafundi þar sem frambjóðendur hvers flokks bjóða fólki
að spyrja um hvað sem er eða segja frá áhyggjum sínum.
Það telst til tíðinda ef tíu manns sjá sér fært að mæta. Vert
er að hvetja fólk til að nýta sér þetta þar sem oft fást einföld
svör við flóknum spurningum.
Þá hafa þrír sameiginlegir framboðsfundir verið boðaðir
í Skagafirði og vert að hvetja íbúa til að mæta og kynna sér
málefni flokkanna og fyrir hvað þeir standa. Fyrsti fundurinn
verður í kvöld, miðvikudaginn 4. maí, á KK Restaurant á
Sauðárkróki kl. 20:00, á morgun, fimmtudag í Menningar-
húsinu Miðgarði í Varmahlíð kl. 20:30 og loks á sunnudaginn
í Höfðaborg á Hofsósi kl. 20:00.
Hvort öll þessi framboð hefðu einhver mál að stefna
sameiginlega að væri hægt að nefna þau nokkur eins og
atvinnumál, samgöngumál, umhverfismál og það sem alla
dreymir um; að laða að nýja íbúa. Því miður er fólksfækkun
enn að mælast hlutfallslega mest á Norðurlandi vestra af
öllum landshlutum á síðastliðnum fimm mánuðum eða um
0,6% sem er fækkun. Það eru samtals 43 íbúar en nú eru
skráðir alls 7381 maður í landshlutanum.
Mestu munar að 30 manns yfirgáfu Skagafjörð (4072),
níu fóru frá Skagaströnd (475), sex frá Blönduósi (923) og
fjórir úr Húnavatnshreppi (381). Íbúum Húnaþings vestra
fjölgaði hins vegar um sex (1236) en í Akrahreppi (204) og í
Skagabyggð (90) stóð íbúatalan í stað.
Með áframhaldandi þróun þarf líklega að fara að huga að
sameiningu allra sveitafélaganna á Norðurlandi vestra!
Góðar stundir!
Páll Friðriksson,
ritstjóri
LEIÐARI
Eitt sveitarfélag á
Norðurlandi vestra?
AFLATÖLUR | Dagana 24. til 30. apríl á Norðurlandi vestra
Rúm 63 tonn í grásleppunet!
SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG
Loftur HU 717 Handfæri 1.468
Sæfari HU 212 Landbeitt lína 4.301
Viktoría HU 10 Handfæri 1.010
Alls á Skagaströnd 53.925
SAUÐÁRKRÓKUR
Gjávík SK 20 Handfæri 1.568
Hafey SK 10 Grásleppunet 9.147
Kaldi SK 121 Grásleppunet 2.886
Lundey SK 3 Þorskfisknet 1.015
Óskar SK 13 Grásleppunet 4.477
Skotta SK 138 Handfæri 208
Skvettan SK 37 Grásleppunet 4.675
Alls á Sauðárkróki 23.976
HVAMMSTANGI
Steini HU 45 Grásleppunet 5.419 Alls á Hvammstanga 5.419
SKAGASTRÖND
Alda HU 112 Handfæri 2.889
Bjartur í Vík HU 11 Handfæri 1.547
Blær HU 77 Handfæri 847
Dagrún HU 121 Grásleppunet 10.278
Fengsæll HU 56 Grásleppunet 1.255
Guðrún Petrína Grásleppunet 11.111
Hjalti HU 313 Grásleppunet 5.040
Húni HU 62 Handfæri 5.344
Ísak Örn HU 151 Grásleppunet 531
Kambur HU 24 Grásleppunet 8.304
Á Króknum lönduðu sjö bátar tæpum 24
tonnum í 17 löndunum og var aflahæst Hafey
SK 10 með rúm 9 tonn.
Hvorki Drangey né Málmey lönduðu í þessari
viku á Króknum heldur lönduðu þær á
Grundarfirði. Samkvæmt fisk.is landaði Drangey
SK 2 tvisvar sinnum, í fyrra skiptið um 155
tonnum og var uppistaða aflans þorskur og karfi.
Í seinna skiptið landaði hún 173 tonnum þar sem
uppistaðan var karfi. Drangey var meðal annars
á veiðum á Eldeyjarbanka ásamt Málmey en
Málmey landaði 183 tonnum og uppistaðan var
þorskur og djúpkarfi. Nú eru aðeins fjórir bátar
skráðir á veiðar með grásleppunet á Króknum og
var heildarafli þeirra 21.185 kg.
Á Skagaströnd lönduðu þrettán bátar tæpum
54 tonnum í 21 löndun. Aflahæst var Guðrún
Petrína GK 107 sem var með rúm 11 tonn. Nú eru
sex bátar skráðir á grásleppuveiðar á Skaga-
strönd og lönduðu þeir samanlagt 36.519 kg.
Einn bátur landaði á Hvammstanga og var það
Steini HU 45 sem var á grásleppuveiðum og
landaði 5.419 kg í þrem löndunum.
Alls var landað 83.320 kg á Norðurlandi
vestra í síðustu viku. /SG
Stóra upplestrarkeppninni í Skagafirði
Iðunn Kolka Gísladóttir sigraði
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á miðvikudögum
Útgefandi: Nýprent ehf., Borgarflöt 1, Sauðárkróki
Póstfang Feykis: Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur
Ritstjóri & ábyrgðarmaður:
Páll Friðriksson, palli@feykir.is & 861 9842
Blaðamenn:
Óli Arnar Brynjarsson, oli@feykir.is
Sigríður Garðarsdóttir, siggag@nyprent.is | Klara Björk Stefánsdóttir, klara@nyprent.is
Prófarkalestur: Fríða Eyjólfsdóttir
Auglýsingastjóri: Sigríður Garðarsdóttir, siggag@nyprent.is
Áskriftarverð: 649 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 795 kr. m.vsk.
Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171.
Umbrot og prentun: Nýprent ehf.
Hvað viltu að sveitarfélagið þitt heiti?
Kosið milli þriggja nafna
Húnvetningar og Skagfirðingar hafa ákveðið
hvaða heiti verði lögð fyrir íbúa í ráðgefandi
skoðanakönnun samhliða sveitarstjórnar-
kosningum. Nýjar sveitarstjórnir taka ákvörðun
um heiti í upphafi nýs kjörtímabils.
Húnvetningar munu velja milli Blöndubyggð,
Húnabyggð og Húnavatnsbyggð meðan Skagfirð-
ingar velja á milli Hegranesþing, Sveitarfélagið
Skagafjörður eða Skagafjörður.
Fram kom í vetur að líklega þyrfti nafn á
sveitarfélagi að hafa viðskeyti líkt og Sveitarfélag-
ið, -byggð, -bær, -hreppur eða -þing en Ragnar
Róbertsson, hjá RR ráðgjöf sem leiddi sam-
einingarviðræður sveitarfélaganna, sagði það hafa
náðst í gegn hjá Örnefnanefnd að Skagafjörður
gæti staðið eitt og sér. „Þau leggjast ekki gegn
þeirri útfærslu. Það var svo afgerandi í hug-
myndasöfnuninni að þau gátu eiginlega ekki
hafnað,“ segir Róbert. /PF
Vinningshafar stóru upplestrarkeppninnar í Skagafirði; Helgi Sigurjón Gíslason og
Lára Sigurðardóttir úr Árskóla og Iðunn Kolka Gísladóttir úr Varmahlíðarskóla sem
hlaut fyrstu verðlaun. MYND: ÁRSKÓLI.IS
2 17/2022