Feykir


Feykir - 04.05.2022, Blaðsíða 11

Feykir - 04.05.2022, Blaðsíða 11
Sveinn Margeirsson, framkvæmdastjóri nýsköpunar og loftslagsmála hjá Brim hf. er Lýtingur í húð og hár, alinn upp á heimaslátruðu lamba- og hrossakjöti og segir aðspurður heimili sitt vera út um allt en þó að talsverðu leyti skógurinn á Mælifellsá. Eftir að hafa komist í kast við kvennavistina í Varmahlíðarskóla skrapp hann til Reykjavíkur og víðar til að afla sér menntunar. „Var forstjóri Matís þangað til stjórn Matís fann upp á því að reka mig, aflaði mér þá lögfræðireynslu með skemmtilegu einvígi við lögregluna á Norðurlandi vestra og Matvælastofnun og gerðist síðan verkefnis- stjóri Nýsköpun í norðri í Þingeyjarsýslu. Það leiddi mig í átt að sveitarstjóra Mývatnssveitar árið 2020. Ég bý með Örnu Björgu Bjarnadóttur, frumkvöðli frá Ásgeirsbrekku, og eigum við samtals fimm börn,“ segir Sveinn sem svarar hér spurningum í Liðinu mínu í Feyki. Hvert er uppáhalds liðið þitt í enska boltanum og af hverju? -Everton - aðallega af því að þeir eru svo miklu skemmtilegra lið en Liverpool. Hvernig spáir þú gengi liðsins á tímabilinu? -Er ekki bara best að kjósa Framsókn? Ertu sáttur við stöðu liðsins í dag? -Tímabil uppbyggingar krefjast ávallt fórna, þ.a. ég geng sáttur til hvílu dag hvern. Hefur þú einhvern tímann lent í deilum vegna aðdá- unar þinnar á umræddu liði? -Þegar rússneskir ólígarkar höfðu keypt upp flest óæðri lið deildarinnar, og ég benti aðdáendum Rússanna á þá staðreynd, þurfti stundum að rifja upp gamla slagsmálatakta frá böllunum í Árgarði um versl- unarmannahelgina. Hver er uppáhaldsleik- maðurinn fyrr og síðar? -Gary Lineker verður aldrei toppaður! Hefur þú farið á leik með liðinu þínu? -Saklausir sveitadrengir myndu nú varla hætta sér í sömu borg og Liverpool FC. Áttu einhvern hlut sem tengist liðinu? -Átti lengi vel trefil sem ég keypti í Hagkaup en held örugglega að Hrafn bróðir hafi nappað honum einhvern tímann. Hann hefur kannski skilað treflinum á upprunastað. Hvernig gengur að ala aðra fjölskyldumeðlimi upp í stuðningi við liðið? -Tja! Hefur þú einhvern tímann skipt um uppáhalds félag? -Aldrei dottið það í hug. Íhaldssemi er dyggð, segja Lýtingar og halda áfram sínum sauðfjárbúskap og styðja sín lið. Uppáhalds málsháttur? -Betra er að sofa hjá en sitja hjá. Einhver góð saga úr bolt- anum? -Skólakeppni Steins- staðaskóla, Varmahlíðar- skóla og Akraskóla 1989 er ógleymanleg. Við Bjössi bróðir, Svenni Brynjar á Varmalæk, Tóti í Saurbæ, Sverrir á Reykjaborg, og fleiri villingar, tókum Arnar Kára og hans menn í Akraskóla 4-0. Varmahlíðarskóli sá aldrei til sólar í 8-0 sigri Steinsstaðaskóla. Síðan eru liðin mörg ár… Einhver góður hrekkur sem þú hefur framkvæmt eða orðið fyrir? -Það gerðist nú ýmislegt á heimavistinni í Varmahlíð sem er varla prenthæft. Spurning frá Hrafni Mar- geirssyni: -Forest hefði nú seint farið niður með þáverandi landsliðsmark- vörð innanborðs. -„Ef og hefði“ skiptir litlu. Everton er í efstu deild. Er þetta „Forest“ þar? Hvern myndir þú vilja sjá svara þessum spurning- um? -Fyrst að fyrrverandi bekkjarsystur minni, Höllu Rut Stefánsdóttur, hefur tekist að kristna nokkra Hofsósinga verður henni auðvelt að svara þessum laufléttu spurningum. Hvaða spurningu viltu lauma að viðkomandi? -Hvort er betra: Matur hjá mömmu eða 4-0 sigur Arsenal á Man City? Tekið á því í skóginum á Mælifellsá í fyrrum Lýtingsstaðahreppi en Sveinn segist verja talsverðum tíma þar. MYND AÐSEND Þurfti stundum að rifja upp gamla slagsmálatakta frá böllunum í Árgarði um verslunarmannahelgina LIÐIÐ MITT | palli@feykir.is Sveinn Margeirsson | Everton Góðar fréttir frá Noregi Rakel Sif varð norskur meistari í U16 körfubolta Sjaldan fellur eplið langt frá eikinni segir einhvers staðar. Nú á sunnudaginn varð lið Kjelsås norskur meistari í U16 körfu- bolta kvenna þegar liðið lagði Ulriken Eagles í æsispennandi úrslitaleik, 84-82. Liðin eru skipuð stúlkum sem eru fæddar árið 2006 og ein þeirra sem hampaði bikarnum í leikslok var Rakel Sif Ómarsdóttir, dóttir Siglfirðingsins Báru Pálínu Oddsdóttur og körfubolta- kappans og Króksarans Ómars Sigmarssonar sem er þjálfari liðsins. Kjelsås er úthverfi norður af Osló en fjölskyldan hefur búið í Osló í fjölda ára. „Rakel er fædd 2007 og spilar með þessu 06 liði og 07 liðinu og líka með 05,“ segir Ómar þegar Feykir hefur samband. Rakel Sif gerði fimm stig í leiknum. „Hún er leik- stjórnandi með mikla boltatækni og gott auga fyrir sendingum,“ segir pabbinn. Á heimasíðu norska körfu- boltasambandsins segir að Kjelsås hafi unnið leikinn með góðu boltaflæði, samspili og sterkri einstaklingsframmistöðu og þrátt fyrir stórleik Önnu Hovig Wikström í liði Arnanna en hún gerði 49 stig í leiknum. „Anna er besti 06 leikmaður sem ég hef séð en það er gott að lið sigri einstakling. Við erum með sex leikmenn sem halda mjög háu stigi,“ sagði Jørn Nordal, í þjálfarateymi Kjelsås, eftir lokasigurinn í Benterud- hallen í Hønefoss. Ómar, sem er fæddur 1976, var einn leikstjórnenda Tinda- stóls árin 1992 til 2001 og gerði á sínum ferli 1.759 stig fyrir Stólana. Flest stig í einum og sama leiknum gerði hann í úti- leik gegn Keflvíkingum 27. nóv- ember 1994 en þá skellti kappinn í 33 stig, þá 18 ára. Það dugði þó ekki til sigurs því heimamenn unnu leikinn 105-97. Þá voru kappar á borð við Torrey John, Palla Kolbeins, Arnar Kára Mar og Hinna Gunn meðal máttar- stólpa í liði Tindastóls. Ómar er bróðir Guðrúnar Sigmars sem er mamma Arnars Björnssonar sem skorar nú körfur í öllum regnbogans litum fyrir lið Tindastóls. Ómar missir ekki af leik hér heima, er með áskrift að Stöð2Sport, og fylg- ist spenntur með Stólunum. „Auðvitað sendi ég baráttu- kveðjur til strákanna og ég er 100% viss um að þeir klára þetta Valslið!“ /ÓAB Flott feðgin. Rakel Sif og Ómar með bikarinn á lofti. MYND AÐSEND 17/2022 11

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.