Feykir - 04.05.2022, Síða 14
Frá æfingu á Pétri Pan. MYND AÐSEND
Úr sýningu á Hárinu. MYND: BERGLIND ÞORSTEINSDÓTTIR
VIÐTAL
Páll Friðriksson
14 17/2022
Á heimasíðu bandalagsins seg-
ir að eftir tveggja ára stopp af
völdum Covid hafi dómnefndin
ákveðið að velja ekki bara eina
heldur tvær leiksýningar. Björn
Ingi Hilmarsson úr dómnefnd
Þjóðleikhússins mætti á sam-
kunduna og tilkynnti valið. Leik-
félögunum stendur til boða að
sýna leikritin í Þjóðleikhúsinu
og mun Leikfélag Keflavíkur
ríða á vaðið fimmtudaginn 9.
júní en Leikflokkur Húnaþings
vestra sunnudaginn 12. júní.
Þetta er sérlega athyglis-
verður árangur hjá Leikflokki
Húnaþings vestra þar sem
aðeins eru þrjú ár liðin síðan
þeim veittist þessi sami heiður
með söngleikinn Hárið og
var það sýnt í Þjóðleikhúsinu
í júní 2019. Var það í fyrsta
skiptið sem söngleikur fær
þessa viðurkenningu og nú
um helgina í fyrsta skiptið sem
barnaleikrit hlýtur sama heiður.
„Þegar verið var að kynna
þetta og og tilkynnt að ákveðið
hafi verið að verðlauna tvö
leikrit, sem ekki hefur verið gert
áður, var fulltrúi frá Leikfélagi
Keflavíkur kallaður upp á svið,
sem manni þótti nokkuð líklegt
þar sem þetta er mjög gott
stykki, en svo þegar Leikflokkur
Húnaþings vestra var kallaður
upp þá datt af mér andlitið,
síðan kom fögnuðurinn og svo
sjokkið. Svo fór maður og fékk
sér bara einn koníak,“ segir
Arnar Hrólfsson kampakátur
aðspurður um viðbrögð sín við
verðlaunaveitingunni.
Ekki er langt síðan sama
viðurkenning veittist Leik-
flokknum og segir Arnar það í
raun vera síðast þegar verðlaun
voru veitt því engin athöfn hefur
verið haldin síðan. „Já, þannig
að það má segja sem svo að við
höfum fengið þetta tvö ár í röð
en það hafa svo sem fleiri gert.“
Arnar segir það sérlega
ánægjulegt að hafa fengið
viðurkenninguna fyrir barna-
leikrit sem mun vera í fyrsta
skipti í sögu bandalagsins. „Við
svona aðeins berjum okkur
á brjóst fyrir það og kannski
líka að Hárið var líka fyrsti
söngleikurinn sem valinn var
athyglisverðasta leiksýningin
þannig að það er loksins
kominn friður á heimilið hjá
Sigga og Gretu,“ segir Arnar
léttur í bragði en hjónin Sig-
urður Líndal Þórisson og Greta
Klough leikstýrðu hvoru stykki
fyrir sig, Hárinu og Pétri Pan.
Það er bara heildin
Það er eitt að vera með góða
leikstjóra en allir vita sem starfað
hafa í leikhúsi að það er heildin
sem skapar stemninguna. Arnar
er sammála því og segir það
hafa jafnvel verið það sem fleytti
Pétri Pan í þetta heiðurssæti.
„Við erum komin með rosalega
flott fólk, leikara, eins og Gerði
Rósu. Maður hefur stundum
hugsað það að hún ætti
alveg heima í leiklistinni og
fleiri alveg frábærir á áhuga-
mannasviðsskalanum. Svo
kemur þarna inn náttúrulega
allt, það sem maður segir,
baktjaldafólkið sem lætur allt
ganga upp á bakvið, það sem
enginn sér. Allir eru hlaupandi
rennsveittir fram og til baka
svo leikararnir geti verið alveg
rólegir. Svo held ég að sé eitt sem
þau Siggi og Greta eru bæði góð
í, og mér finnst standa upp úr í
mörgu, er hvernig þau skipta á
milli sena. Í gamla daga vara bara
blakkát og svo heyrði maður
fólk hreyfa til húsgögn. Þau
gera atriði úr senubreytingum
þannig að slitnar aldrei þó að
það sé verið að fara úr einhverju
risi í London yfir í eyju úti í
geim, þetta bara rennur. Svo
höfum við þarna tíu krakka með
okkur og það sem okkur finnst
svo skemmtilegt er að við erum
farin að stilla því upp að vera
með jólaleikritið þannig að við
getum tekið inn marga krakka.
Þau hafa mörg hver verið í SLÆ,
Leikflokkur Húnaþings vestra heiðraður á aðalfundi BÍL
Pétur Pan valin önnur af tveimur
áhugaverðustu leiksýningum ársins
Sýning Leikflokks Húnaþings vestra á Pétri Pan var valin sú
áhugaverðasta á leiktímabilinu hjá áhugaleikfélagi innan
Bandalags íslenskra leikfélaga, ásamt Fyrsta kossinum í
uppsetningu Leikfélags Keflavíkur, en valið var tilkynnt á
hátíðakvöldverði á aðalfundi BÍL sl. laugardagskvöld.
Björn Ingi Hilmarsson, úr dómnefnd Þjóðleikhússins, ásamt Brynju Ýr Júlíusdóttur og Guðlaugi Ómari Guðmundssyni, frá Leikfélagi
Keflavíkur, og Arnar Hrólfsson formaður Leikflokks Húnaþings vestra. MYND: LEIKLIST.IS
Sumarleikhúsi æskunnar, og
verið í þó nokkrum leikritum.
Þannig að þó við séum með
einhverja krakka þá eru þau
ekki endilega að stíga sín fyrstu
spor á sviðinu.
Og af hverju við fáum þessi
verðlaun, það er bara heildin,
það eru fáir veikir punktar.“
Arnar segir það ekki vera
vandamál að fá fólk til að
starfa við sýningar eða hjálpa
til þegar á þarf að halda. „Nei,
það myndi ég ekki segja. Ég var,
hvað á ég að segja, verkefnastjóri
sýningarinnar og ef mann
vantaði eitthvað var það í örfá
skipti sem einhver sagðist ekki
geta gert eitt eitthvað og þá var
bara bent á annan sem gat það.
Leikhús í svona sveitarfélagi
gengur náttúrulega ekki nema
allir séu jákvæðir gagnvart því.
Eins og með Hárið, við erum
1200 manna sveitarfélag og
fengum rúmlega 900 manns
á sýningarnar. Með Pétur
Pan, við vorum með fjórar
sýningar og gátum tekið 100
manns á sýningu vegna Kóvit
takmarkana og fengum 300
manns. Tvær sýningar voru
alveg uppseldar en tvær náðu
því ekki alveg.“
Páskasýningu frestað
Stefnt var á að setja upp söngleik
nú um páskana en ákveðið var í
upphafi árs að fresta því um ár.
Þar er á ferðinni frumsamið verk
Ármanns Guðmundssonar með
lögum Gunnars Þórðarsonar
og segir Arnar það hafa verið
komið svo langt að búið var að
útsetja lög og skipa í hlutverk.
„Það var gert í nóvember og svo
kom bara Kóvitið aftur í janúar.
Svo sá maður í byrjun febrúar
að þetta væri nú kannski ekki
eins alvarlegt og sýndist í fyrstu,
enda ekki komið hingað norður
og manni fannst þetta ekki vera
svo mikið í kringum mann. En
svo eftir veturinn höfðu allir
legið í Kóviti og flensum og
orðið mikið veikir.“
Arnar segir engan bilbug
á Leikflokknum sem stefnir
ótrauður á söngleikinn að ári
enda handritið klárt og bjart
framundan. Vildi hann að
lokum koma þakklæti til allra
sem á einhvern hátt hafa komið
nálægt starfsemi Leikflokksins
og ekki síður áhorfenda sem eru
jú bráðnauðsynlegir í þessum
bransa.