Feykir - 22.06.2022, Page 2
Svo segir í frétt á RÚV fyrir
helgi að viðbúið sé að fólk
fari að leita í ódýrari
matvöru, eins og reykt
bjúgu og fiskibollur í dós,
vegna hækkandi verðbólgu
en verð á matvöru hefur
hækkað töluvert síðustu
vikur og hætt við enn frekari
verðhækkunum. Þetta eru
einhver svakalegustu tíðindi sem ég hef heyrt í
langan tíma.
Það virðist því vera sem svo að fólk sé farið að
þurfa að spá í aurinn eins og sagt er, velta því
fyrir sér hvort það hafi efni á hinu eða þessu.
Þetta segir mér reyndar að flestir hafi haft það
bara bærilegt undanfarin misseri og ár. Ég er alls
ekki að mæla aukinni verðbólgu bót en sé ekkert
að því að þurfa af og til að velja á milli reyktra
sperðla, fiskibolla í dós, kjötfars ofan á brauð,
pylsupasta, samloka eða brauðs í ofni. Þetta er
hluti af því að vera til. Dýran mat kaupir maður af
og til, ef maður tímir því þá!
Við ættum af og til að hugsa um það hvað við
höfum það í rauninni gott en í nokkurn tíma hefur
mér fundist íslenskt samfélag hafa að miklu leyti
snúist um hluti sem litlu breyta í stóra
samhenginu. Af hverju er allt að hækka? Jú, það
er stríð í Evrópu. Innrás Rússa í Úkraínu,
matarkörfu Evrópu, með skelfilegum afleiðingum
fyrir marga. Líklega eru margir í Úkraínu sem
myndu þiggja reykt bjúgu með kartöflustöppu
eða uppstúf, grænum baunum og rauðrófum og
líklega yrði ekki fúlsað við laufabrauði með. Þá
væri nú ekki amalegt heldur að fá sér fiskibollur
í karrísósu, kartöflur og hrísgrjón með gulrófu-
og gulrótarsalati.
Við skulum bara vona að stríðinu ljúki sem fyrst
og heimsbyggðin sleppi við heimstyrjöld. Það er
stóra málið í dag.
Góðar stundir!
Páll Friðriksson
Ritstjóri
LEIÐARI
Bjúgu og fiskibollur
Hafðu samband!
Hafðu samband í síma 455 7176
eða sendu Feyki póst á feykir@feykir.is
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á miðvikudögum
Útgefandi: Nýprent ehf., Borgarflöt 1, Sauðárkróki
Póstfang Feykis: Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur
Ritstjóri & ábyrgðarmaður:
Páll Friðriksson, palli@feykir.is & 861 9842
Blaðamenn:
Ingólfur Örn Friðriksson, bladamadur@feykir.is | Óli Arnar Brynjarsson, oli@feykir.is
Sigríður Garðarsdóttir, siggag@nyprent.is | Klara Björk Stefánsdóttir, klara@nyprent.is
Prófarkalestur: Dóra Ingibjörg Valgarðsdóttir
Auglýsingastjóri: Sigríður Garðarsdóttir, siggag@nyprent.is
Áskriftarverð: 649 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 795 kr. m.vsk.
Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171.
Umbrot og prentun: Nýprent ehf.
Þjóðhátíðardagurinn 17. júní var
í gær og að sjálfsögðu var haldið
upp á þann mæta dag um allt
land og þótt víðar væri leitað. Í
nýja sveitarfélaginu Húnabyggð
var eðlilega haldið upp á daginn
í fyrsta sinn. Bæði Húnvetningar
og Skagfirðingar fengu raunar
pínu löðrung frá veðurguðunum
sem skelltu í rigningu og rok í
tilefni dagsins.
Það var því víða farið með
hátíðarhöldin inn í hús þar sem
því varð við komið og þannig
fór á Blönduósi. Þar hófst
dagskrá á því að íslenski fáninn
var dreginn að húni kl. 8 en í
hádeginu var sala á ýmsum
varningi tengdum deginum og
krakkar gátu fengið andlits-
málningu. Skrúðgangan hélt af
stað kl. 13:30 og hátíðardagskrá,
sem vera átti á skólalóð
Blönduskóla, var færð inn í
íþróttahúsið og þar var blásinn
upp hoppukastali og boðið upp
á fjölbreytta dagskrá í tali og
tónum. Sr. Edda Hlíf flutti
ávarp og fjallkonan,
Blönduósingurinn Hjördís
Þórarinsdóttir, flutti ljóð svo
eitthvað sé nefnt. Boðið var upp
á vöfflur og kaffi að dagskrá
lokinni og gestir skemmtu sér
fram á kvöld. Róbert Daníel
Jónsson, ljósmyndari, var að
sjálfsögðu á staðnum og gaf
Feyki góðfúslegt leyfi til að
birta nokkrar myndir frá
deginum. / IÖF
Hoppukastali og vöfflur
17. júní í sameinaðri Húnabyggð
Frá skrúðgöngu í tilefni 17. júní á Blönduósi. MYND: RÓBERT DANÍEL .
AFLATÖLUR | Dagana 12. - 18. júní á Norðurlandi vestra
Landað 136 sinnum í síðustu viku
SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG
Blíðfari HU 52 Handfæri 3.170
Blær HU 77 Handfæri 2.211
Daðey GK 777 Lína 9.431
Daðey GK 777 Handfæri 2.295
Dagrún HU 121 Handfæri 1.483
Elfa HU 191 Handfæri 3.149
Elín ÞH 82 Handfæri 2.782
Fengsæll HU 56 Handfæri 2.740
Guðrún Petrína HU 107 Handfæri 3.177
Hallbjörg HU 713 Handfæri 3.214
Hjalti HU 313 Handfæri 3.173
Hrund HU 15 Handfæri 3.284
Jenny HU 40 Handfæri 2.199
Jón Ásbjörnsson RE 777 Lína 2.727
Kambur HU 24 Handfæri 2.007
Kópur HU 118 Handfæri 2.031
Kristín HU 168 Handfæri 2.342
Loftur HU 717 Handfæri 2.367
Steini HU 45 Handfæri 684
Svalur HU 124 Handfæri 1.466
Sæunn HU 30 Handfæri 2.228
Valur ST 43 Handfæri 2.237
Venni SI 67 Handfæri 2.196
Viktor Sig HU 66 Handfæri 1.788
Viktoría HU 10 Handfæri 541
Víðir EA 423 Handfæri 2.513
79.024
HOFSÓS
Geisli SK 66 Handfæri 181
Rósborg SI 29 Handfæri 1.131
Þorgrímur SK 27 Handfæri 1.572
2.884
SAUÐÁRKRÓKUR
Assa SK 15 Handfæri 2.990
Fannar SK 11 Handfæri 1.622
Gammur SK 12 Þorskfisknet 897
Gjávík SK 20 Handfæri 2.145
Greifinn SK 19 Handfæri 1.481
Kristín SK 77 Handfæri 860
Lundey SK 3 Þorskfisknet 5.504
Maró SK 33 Handfæri 2.031
Málmey SK 1 Botnvarpa 111.723
Skvetta SK 7 Handfæri 619
Uni Þór SK 137 Grásleppunet 755
Vinur SK 22 Handfæri 1.851
Ösp SK 135 Handfæri 546
133.024
SKAGASTRÖND
Alda HU 112 Handfæri 3.281
Arndís HU 42 Handfæri 1.723
Auður HU 94 Handfæri 1.737
Bergur Sterki HU 17 Handfæri 1.641
Bjartur í Vík HU 11 Handfæri 3.207
Á Skagaströnd var landað rúmum 133
tonnum í 98 löndunum. Aflahæstur aðra vikuna í
röð var línubáturinn Daðey GK 777 með rúm 9
tonn. Tuttugu og níu bátar voru á strandveiðum
og lönduðu tæpum 67 tonnum. Aflahæst var
Hrund HU 15 með 3.284 kg í fjórum löndunum.
Á Króknum var landað rúmum 133 tonnum í
33 löndunum. Aflahæst var Málmey SK 1 með
tæp 112 tonn. Einn bátur var á grásleppuveiðum,
Uni Þór SK 137, og landaði 755 kg. Tveir voru á
veiðum með þorskfisknet og lönduðu samtals
6.401 kg en níu bátar voru á strandveiðinni.
Aflahæst var Assa SK 15 með 2.990 kg í fjórum
löndunum. Enginn landaði á Hvammstanga í síðustu viku
en þrír bátar lönduðu á Hofsósi, tæpum 3 tonnum,
allir á strandveiði.
Alls var landað 214.932 kg á Norðurlandi vestra í
136 löndunum í síðustu viku. /SG
2 24/2022