Feykir - 22.06.2022, Side 4
AÐSENT | Heyr himna smiður
Í aðsendri grein Sigrúnar
Öldu Sighvats í seinasta
Feyki vantaði endi
svarbréfsins sem Þorkell
Sigurbjörnsson, tónskáld,
sendi henni þar sem hann
sagði frá því hvernig lagið
Heyr himna smiður varð til.
Birtum við því svarið aftur
og biðjumst velvirðingar á
þessum mistökum.
8. maí 2001
Ágæta Sigrún Alda
Þú gafst ekki upp neitt
nákvæmt heimilisfang – en ég
treysti því að þú eigir ekki
margar alnöfnur í bænum svo
að þessar línur komist til skila.
(Prentarinn var bleklaus í dag
og ég vona að þú getir lesið
hrafnasparkið.)
Þegar ég var unglingur í
Gagnfræðaskóla Austurbæjar
að læra undir landspróf, þá
var íslenskukennarinn
Guðrún Helgadóttir (síðar
skólastýra Kvenna-skólans)
dásamlegur og strangur
kennari. (Þá voru þéringar við
lýði).
Hún lét okkur læra og leggja á
minnið óteljandi ljóð og
tilvitnanir úr íslenskri
tónmenntasögu og þ.á.m.
þennan fyrsta sálm, sem við
vitum að Íslendingur reyndi
að yrkja á móðurmálinu.
Svo líða árin og
„ u n g l i n g a g r a f t a r b ó l u r
hverfa“.
Vorið 1972 var ég í nefnd
með gamla kennaranum
mínum úr Tónlistarsk. í Rvík.
Honum var tíðrætt um
þennan sálm Kolbeins
Tumasonar.
Þ að var orðið seinfært heim
eftir þennan fund – upp
Öskjuhlíðina – bílar að renna
og spóla o.s.frv. Þá varð lagið
til í mínum huga, (seinasta
hendingin fyrst). Þegar ég
komst svo heim í Kópavog, var
ekkert annað eftir en að hripa
þessar nótur á blað.
Nokkrum dögum seinna
sýndi ég dr. Róbert þessar
nótur. Hann varð svo glaður,
að hann hreinritaði með sinni
listaskrift lagið og sendi til
organista og söngstjóra.
Blessuð sé minning hans.
Textinn er aðalatriðið.
Með fullri virðingu fyrir þeim
Sigurði og Gunnari, sem báðir
voru fyrrverandi nemendur
mínir til Tónlistask. í Rvík. –
þá finnst mér að þú ættir að
spila fyrir Framfarafélagið
frumgerð lagsins t.d. með
Hamrahlíðar, Langholts, eða
Mótettukórunum.
Bestur óskir og kveðjur,
Þorkell Sigurbjörnsson
Leiðrétt svarbréf
Hluti bréfs Þorkels Sigurbjörnssonar til Sigrúnar MYND AÐSEND.
AÐSENT | Gunnar Rögnvaldsson, Löngumýri
Vígslubiskup á Hólum
Hólar í Hjaltadal er okkur
Norðlendingum helgur staður
að fornu og nýju. Kirkju og
skólasagan, náttúran og
veðursældin hafa markað
umgjörð sem lætur þá ekki
ósnortna sem annaðhvort
hafa búið þar eða kynnt sér til
hlítar hve djúpt rætur
menningar og þekkingar
liggja á Hólum. Og enn er
sáð til þeirrar uppskeru.
Innan fárra daga verður
gengið til kosninga um nýjan
vígslubiskup á Hólum í Hjalta-
dal. Kosið verður á milli þeirra
tveggja presta sem flestar
tilnefningar fengu en það eru
þeir sr. Gísli Gunnarsson í
Glaumbæ og sr. Þorgrímur
Daníelsson á Grenjaðarstað.
Ég hef þekkt og unnið með
séra Gísli mjög lengi. Hefur
hann allt það til að bera sem
vígslubiskup þarf að búa yfir.
Hann er vel menntaður, góður
kennimaður og snjall predikari
og gjörkunnugur málefnum
kirkjunnar, ytri sem innri.
Þekking hans á innviðum
Hólastiftis er mjög yfirgrips-
mikil og hann á auðvelt með að
kynnast fólki og setja sig inn í
málefni, tillögugóður og
sanngjarn og það sem er
mikilvægast, hjarta hans slær
fyrir Hólastað. En hann er ekki
einn á ferð. Eiginkona Gísla,
Þuríður Þorbergsdóttir, er
einstök sómakona. Gestrisin og
glaðvær og hefur sem prestfrú
og bóndi í Glaumbæ staðið fyrir
stóru og gestkvæmu heimili
ásamt því að vera lykilmanneskja
í kirkjukórnum og safnaðarstarfi
prestakallsins. Af áratuga
kynnum mínum af prest-
hjónunum í Glaumbæ þeim
Þuríði og Gísla veit ég að þau
munu sitja Hóla með virðingu
og væntumþykju að leiðarljósi
og bera merki staðarins með
sæmd.
Hjónin Gísli Gunnarsson og Þuríður Þorbergsdóttir. MYND AÐSEND.
Gunnar Rögnvaldsson. MYND AÐSEND.
Prjónaðar brúður og furðuverur
Vöktu mikla lukku á leikskólanum
Nokkrar góðar konur sem eru
íbúar á Heilbrigðisstofnun
Vesturlands á Hvammstanga og
konur sem eru í dagdvöl gerðu
sér lítið fyrir og prjónuðu brúður.
Einnig voru framleiddar nokkrar
furðuverur. Var svo ákveðið að
gefa þær í leikskólann hér á
Hvammstanga.
,,Brúðurnar og furðuverur-
nar vöktu mikla lukku hjá
börnunum sem tóku við þeim,
og fengum við fallegan söng í
staðinn. Svo fara brúður í
sjúkrabílinn okkar hér. Nú er
svo komið að fleiri fyrirtæki
vilja gjarnan fá brúður svo við
verðum að halda áfram að
framleiða. Það er svo gaman að
geta lagt samfélaginu lið og gera
eitthvað sem gagn og gaman er
að." / FREYJA ÓLAFSDÓTTIR
Hér eru prjónakonurnar ásamt starfsstúlkum dagþjónustu. Aníta Ellertsdóttir, Erla Eðvaldsdóttir, Ása Guðmundsdóttir, Björg
Emilsdóttir, Rósbjörg Blöndal, Freyja Ólafsdóttir og Sigfríður Jónsdóttir. MYNDIR AÐSENDAR.
4 24/2022