Feykir - 22.06.2022, Page 8
Heilir og sælir lesendur góðir.
það er Fía frú á Sandi sem leggur okkur
til fyrsta efnið í þessum þætti.
Ef út í buskann æskufjörið allt er rokið
gleði, þraut og þörfum lokið
þá er víst í skjólin fokið.
Ingólfur Ómar vildi hughreysta frúna og
orti.
Ævi manns er ekkert grín
ennþá fæ að tóra.
Ellin gæti orðið fín
ef ég hætti að þjóra.
Ekki var frúin viss um ágæti þess eftir
næstu vísu að dæma.
Auðvitað verður elli þung
eins og hroðaleg brekka,
þú heldur ég verði aftur ung
ef ég hætti að drekka.
Góður stuðningur fékkst við þennan efa
frúarinnar þegar Gústi Mar blandaði sér í
umræðuna.
Ölþreytan er ekkert grín
ósköp ljótt að heyra.
Ellin gæti orðið fín
ef ég drykki meira.
Kunnur maður á sinni tíð sem kallaður
var Gonsi og taldist heimilisfastur á
Snæfellsnesi fékkst talsvert við yrkingar
við mikinn fögnuð sinna sveitunga. Eitt
sinn er hann kom á bæ, þar sem hékk uppi
mynd af bóndanum sem hét Sæmundur og
fleiri myndir sem aðallega voru af hundum,
orti Gonsi.
Hér er mynd af hund og hund
hér er mynd af Sæmundi.
Elínborg er ágætt sprund
alveg laus af syndinni.
Bróðir Gonsa sem hét Hafliði og hafið dvalið
syðra eignaðist þar kærustu þegar hann
kom svo heim um vortíma lenti bátur þeirra
í svokallaðri Kofafjöru á Hellissandi, mun
Gonsi hafa tekið þar á móti bróður sínum
með þessari.
Helvítið hann Hafliði
hann fékk hana Sigríði.
Óð upp í klof eins og andskotinn
uppúr Kofafjörunni.
Bóndi nokkur í Laxárdal vildi yrkja um
sveitina sína og var það svo fallega gert.
Laxárdalur langur er
og liggur að Hrútafirði.
Kaffisopann sýpur ég
sé hann nokkurs virði.
Er þessi þáttur er í smíðum er mikið
áhyggjuefni hvenær hægt sé að ljúka
störfum hins háa Alþingis.
Held að það hafi verið í kringum árið 1996
sem séra Hjálmar Jónsson sem þá átti sæti
á Alþingi hélt því stíft fram að auka ætti
þorskkvótann um 20 þúsund tonn. Ekki
voru allir sammála þeirri sláturtíð, og mun
Jón Kristjánsson þá hafa ort eftirfarandi
vísu.
Vísnaþáttur 810
( GUÐMUNDUR VALTÝSSON ) bladamadur@feykir.is
Naglann ´ann Hjálmar á höfuðið hitti
og heiðraðir kjósendur fá þess að njóta.
Frelsarinn bauð aðeins fáeina titti
þegar færði hann sjómönnum viðbótarkvóta.
Okkar góði vinur og félagi og þá
félagsmálaráðherra Páll Pétursson yrkir
svo (verandi í tilefni af þessari góðu
matarveislu séra Hjálmars).
Heillakarlinn Hjálmar minn
höfðingsskapinn metur.
Hann er fremri en frelsarinn
og fiskar mikið betur.
Ekki mun séra Hjálmar hafa látið sannfærast
og svarað með eftirfarandi vísum.
Lítt af þekking lýsti þar
lokaðir viskubrunnar.
Vita þeir fátt um fiskveiðar
og fræði Biblíunnar.
Eitthvað mun prest hafa rámað í frásögn
af veiðiskap í Lúkasarguðspjalli og bætti
þessari við.
Skipið fyllt af fiski var
fagnað kvótum stærri,
þá voru fiskifræðingar
og Framsókn hvergi nærri.
Það mun hafa verið á hagyrðingakvöldi
sem haldið var á Vopnafirði, að ég held
sumarið 1995 og séra Hjálmar þá orðinn
alþingismaður, sem Hákon Aðalsteinsson
orti svo.
Dofnar húsi Drottins dvínar andans kraftur.
Séra Hjálmar fékk sér frí
og fór að syndga aftur.
Einhverju sinni var sagt frá því í
sjónvarpsfréttum að nú færðist í vöxt að
hryssur væru sæddar og stóðhestar fengu
nú ekki lengur að koma þar nærri. Þá mun
Sigurður Ó. Pálsson á Egilsstöðum hafa ort
svo.
Merunum gerist í hamsi heitt
heimta að þessu linni,
til gamans ei leyfist að gera neitt
með gömlu aðferðinni.
það er okkar forni félagi Kristján Runólfsson
sem mun vera höfundur að þessari.
Á Íslandi virðist enn um sinn
allt í þessu fína
síðan við fórum að flytja inn
framsóknarmenn frá Kína.
Um aldraðan samferðamann á lífsins leið
er þessi.
Ekki vantar í þig kraft
aldrei sparar letur,
endalaust með opinn kjaft
í áttatíu vetur.
Að lokum þessi frá Kristjáni.
Ég er fyrir gleði og gáska
galsa, hlátur allt í senn,
það sýnist gott í sálarháska
sefa og róa alla menn.
Veriði þar með
sæl að sinni.
Guðmundur
Valtýsson
Eiríksstöðum,
541 Blönduósi
Sími 452 7154
Í ár markar þau merkilegu tímamót
að það eru 20 ár frá því ég flutti frá
Sauðárkróki til Reykjavíkur. Finnst
eins og það hafi verið í gær að ég
var sveittur tölvunörd spenntur
að fá að taka þátt í hasarnum og
gleðinni sem fylgir því að búa í
Reykjavík. Í dag, 20 árum seinna,
er ég ekki sveittur tölvunörd heldur
miðaldra, þybbinn og sveittur
tölvunörd (vildi óska þess að ég
hefði farið eftir predikunum hans
Árna Stef um mikilvægi hreyfingar
þegar ég var í skóla).
Ég man, áður en ég flutti
suður, að margir sem bjuggu
þar töluðu um hvað það gæti
verið einmanalegt að búa í
Reykjavík. Ungi vitlausi ég fannst
það algjör fásinna, taldi ég eftir
alla stærðfræðiþekkinguna sem
ég var búinn að sanka að mér í
Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra,
að fleira fólk þýddi fleira fólk til að
tala og eiga samskipti við.
En eftir að hafa búið hér hálfa
ævina þá skil ég þetta fullkomlega.
Kannski er þetta leti af minni hálfu
að vera ekki duglegri að skreppa í
heimsókn til vina og vandamanna,
en þar sem allir eru eitthvað svo
voðalega uppteknir þá er það
voðalega erfitt.
Það eru alveg margir kostir og
ókostir við að búa í Reykjavík fyrir
fjölskyldufólk. En þar sem ég á
ekki konu, krakka, hund, grindverk
og allan þann pakka, og að flestir
hlutir sem ég geri dagsdaglega
felast í því að vera fyrir framan
tölvuskjá og vera með nettengingu,
þá væri líf mitt ekkert mikið meira
öðruvísi ef ég myndi flytja aftur
norður (nema kannski að ég fæ
ekki að upplifa þá gleði að vera
fastur í umferð í rúman hálftíma á
morgnana og bölva simpansanum
sem skipulagði gatnakerfið hérna í
sand og ösku).
Fyrir mig er eini kosturinn við
að búa hér sá að það er hægt að
fara í verslun eftir klukkan 10 á
kvöldin. Að hafa þann munað að
geta keypt Ritzkex eða þvottaefni
um miðja nótt er kannski ekki
eitthvað sem er lífsnauðsynlegt,
en ég hef lent í þeirri aðstöðu að
þurfa að kaupa Chili krydd klukkan
þrjú um nóttina. Þér finnst það
örugglega mjög kjánalegt að þurfa
Chili krydd klukkan þrjú um nóttina
og ég get fullvissað þig um það að
afgreiðslumaðurinn sem afgreiddi
mig grútsyfjaðan í náttbuxum er þér
sammála. Einnig er meira vöruúrval
hér og það er hægt að fara í fleiri
sérhæfðari og rándýrari búðir, en
eins og allir vita: ,,Ef það fæst
ekki í Kaupfélaginu, þá þarftu það
ekki”. Þannig að þau rök eru nú
bara dauð og ómerk. Ég hef oft velt
því fyrir mér að flytja aftur norður
í heimabæinn minn Sauðárkrók,
höfuðstað Norðurlands.
Ég veit að Akureyri er nú stærri og
er talinn höfuðstaður Norðurlands
en þar sem Kaupfélagið gæti nú
bara tekið sig til og keypt Akureyri
og skírt Sauðárkrókur 2, þá segi ég
að Sauðárkrókur sé höfuðstaðurinn.
En þar sem ég get ekki fundið
ÁSKORENDAPENNINN | bladamadur@feykir.is
Gísli Sigurðsson brottfluttur Króksari
Að búa í Reykjavík
Gísli Sigurðsson. AÐSEND MYND
neina vinnu tengda forritun, sem
er mínar ær og kýr, þá þarf ég
annað hvort að bíða eftir því að
hugbúnaðarhús á Króknum sé að
leita að kóðaöpum eins og mér eða
hreinlega koma með mitt fyrirtæki í
mína heimabyggð.
Áður en það gerist, þá þarf ég
bara að vera duglegri að kíkja
á allt frábæra fólkið sem býr á
Sauðárkróki og enda dvöl mína á
einni djúpri eða tveimur á Bláfelli.
- - - -
Ég skora á Jón Marz Eiríksson
8 24/2022