Feykir


Feykir - 22.06.2022, Qupperneq 9

Feykir - 22.06.2022, Qupperneq 9
Samnefni við þetta nafn munu aðeins vera tvö á landinu: Marbæli í Óslandshlíð og Marbæli í Eyjafjarðarsýslu. Þar hjet í öndverðu Hanatún, eftir Eyvindi túnhana, sem bygði þar fyrstur (Landnámabók, bls. 155). (Í nýju jarðabókinni 1861 finst þó hvorugt nafnið). Marbæli í Óslandshlíð er meðal annars nefnt í Kúgildaskrá Hólastaðar frá 1449, og í Sturlungu (I., bls. 193). Jafnvel þótt Marbæli á Langholti finnist á hinn bóginn í yngri heimildum (sjá Sigurðarregistur, árfært 1525, Dipl, Ísl. IX., bls. 301), er engin ástæða til að efast um, að þetta sje hin upprunalega mynd nafnsins, eða a.m.k. mjög nærri því upphaflega. Nafni þessu er þannig háttað, að mjög erfitt er að ákvarða hina rjettu merkingu þess. Um Marbæli í Óslandshlíð má þó segja, að sje mjög líklegt, að dragi nafn af sjó = mar. Enda hefir víst orðið „mar“ í þeirri merkingu verið allmikið notað í fornmáli, sbr. marbakki í nútíðarmáli og Marbæli á Langholti TORSKILIN BÆJARNÖFN | palli@feykir.is RANNSÓKNIR OG LEIÐRÉTTINGAR MARGEIRS JÓNSSONAR líklega Marland (á Skaga) fyrir Malland, sem ávalt er nú sagt. Vel geta fleiri nöfn geymt sömu merkingu, þótt mjer sje ekki kunnugt um. (Ef til vill Margróf nálægt Jörfa, í Haukadal?). Á hinn bóginn tel jeg fráleitt, að Marbælisnafnið á Langholti eigi skylt við þetta. Nema dregið væri af landinu neðan við, sbr. lýsingarorðið marflatur. Og það virðist Finnur prófessor álíta (sjá ritgerð hans í Safni t.s. Ísl. IV. b., bls. 425). En þetta er þó ólíklegt, því landslag er þar ekki flatara en annarsstaðar á Langholti. Og bærinn stendur alllangt frá sjó. Í öðru lagi er hestkenningin marr vel þekt í eldra máli, og nafnið gæti alveg eins verið dregið af því - þ.e. staður þar sem hestur hefir legið. Hugsanlegt væri líka, að nafnið hefði upphaflega verið Márbæli af Márr, mannsnafn, en samt liggur það nokkru fjær en fyrri tilgáturnar. Og loks gæti nafnið hafa verið upprunalega, sem örnefni, myndað af nafnorðinu mar (s. merja), þ.e. marið land = troðið og sundursparkað (orustustaður?). En þetta er alt óvíst, og óþarft að fara lengra í þá sálma. Marbæli 10. júlí 2000. Horft til norðausturs yfir Hegranes til Óslandshlíðafjalla en Ásgeirsbrekkufjall til hægri. MYND: BYGGÐASAGA SKAGAFJARÐAR II. BINDI. Spjallað við Rögnvald Valbergsson Flutti 23 ára til Sauðárkróks til að kenna tónlist VIÐTAL Ingólfur Örn Friðriksson Flestir á Sauðárkróki (og víðar í firðinum) þekkja Rögnvald Valbergsson. Hvort sem fólk þekkir hann sem organista í Sauðárkrókskirkju eða sem tónlistkennara í tónlista- skólanum, þá er víst að flestir hafa heyrt af honum (eða í honum). En nú er komið að tíma- mótum, Rögnvaldur er að hætta að kenna við tón- listarskólann eftir 43 ár og fannst blaðamanni Feykis þá tilvalið að heyra í honum og vita hvernig þetta legðist í hann. Rögnvaldur var aðeins 23 ára þegar hann fluttist til Sauðárkróks til að taka að sér kennslu við tónlistarskólann og hefur tónlistarskólinn verið á fjórum stöðum í bænum síðan hann hóf að kenna. Hann var í tónlistar- námi í Reykjavík en fékk boð um að kenna á Króknum áður en því námi lauk og ákvað að slá til. Það þýddi að hann þyrfti að keyra til Akureyrar hálfsmánaðarlega og stunda þar nám í tvo klukkutíma í senn. Þetta hægði á náminu en að eigin sögn kom þetta smátt og smátt. Hann kláraði það nám sem hann ætlaði sér en það tók nokkur auka ár í þessu nýja fyrirkomulagi. Aðspurður hvort eitthvað standi upp úr segir hann að það sé svo margt sem komi upp í hugann en nefnir dæmi um ferð sem farin til Køge í Danmörku vinabæjar Sauðárkróks. Farið var með hóp úr tónlistarskólanum til að spila á tónleikum ásamt fjölmörgum tónlistarskólum í Køge. Þetta voru blásarar, gítar, bassi, trommur og hljómborð og allir höfðu eitthvert hlutverk. Það sem var samt eftirtektarvert var að nemendurnir sem komu héðan voru lang yngstir, en Rögnvaldur segir að það hafi ekki komið að sök og að þau hafi staðið sig með prýði. Svo voru þau lang flottust í tauinu, þar sem búið var að sauma sér föt fyrir tónleikana. Aðspurður hvort eitthvað annað komist að en tónlist eftir að hafa lært, kennt í tónlistarskólanum, verið organisti í kirkjunni og spilað með hinum og þessum í gegnum tíðina nefnir hann að hann hafi mikinn áhuga á veiðiskap á smábát og stundi það grimmt þegar til þess viðrar. Það var að sjálfsögðu ekki hægt að sleppa honum án þess að spyrja hvað væri framundan. Hann sagðist vera með útsetningar- verkefni í haust en viður- kenndi að það myndi væntanlega vera aðeins meiri frítími framundan. Að lokum viljum við þakka Rögnvaldi fyrir að hjálpa svo mörgum okkar að hafa tónlist sem virkan þátt í okkar lífi og óskum honum velfarnaðar í öllu því sem hann tekur sér fyrir hendur. Rögnvaldur Valbergsson fyrir framan Hammond orgelið sitt. MYND AÐSEND. 15. júní síðastliðinn opnaði gestasýning 1238 í Víkinga- heimum, Reykjanesbæ. Það er skemmtileg tilviljun að það gerist þann dag, þegar þrjú viðburðarík ár eru liðin frá því að sýningin opnaði á Sauðárkróki. Víkingaheimar hýsa víkingaskipið Íslending en einnig eru þar spennandi sýningar sem fjalla m.a. um siglingar og landnám víkinga í Norður-Ameríku, fornleifar á Suðurnesjum, norræna goðafræði og kynning á helstu söguslóðum Íslands auk þess sem á útisvæði í nánasta umhverfi er starfræktur landsnámsdýragarður á sumrin. Á sýningu 1238 mun verða hægt að kynna sér stuttlega sögu Sturlungaaldarinnar áður en gestum er boðið að beinlínis stíga inn í söguna og taka þátt í Örlygsstaðabardaga í sýndar- veruleika. /ÓAB 1238 – Baráttan um Ísland opnar gestasýningu í Víkingaheimum, Reykjanesbæ Þremur árum síðar Freyja Rut Emilsdóttir og Þórður Grétar Árnason frá 1238 ásamt Paulinu Gunnlaugsson Fricova og Johannesi Gunnlaugssyni Fric, frá Víkingaheimum við opnun sýningarinnar. MYND: AF FACEBOOKSÍÐU 1238. 24/2022 9

x

Feykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.