Feykir - 29.06.2022, Page 4
Rómaveldi af hörðum hroka,
hugðist sigra hverja þjóð.
Vildi ræna og undiroka,
öðrum tók því stöðugt blóð.
Þóttist ekkert þurfa að hræðast,
þekkja öll hin bestu ráð.
En þeir sem miklu valdi væðast
verða stundum sjálfir bráð!
Sóknin var úr suðri í norður,
sjálfstæð skipan hneppt í bönd.
En Rómarkúgun reisti skorður
rösk og öflug germönsk hönd.
Fremstur hinna frjálsu manna
fór og óf sín djúpu ráð,
höfuðkappi Kerúskanna,
kunnur fyrir marga dáð!
Hugmóð efldi Hermanns andi,
heill í tryggðum land sitt við.
Svo að vígður vá og grandi
Varus féll með allt sitt lið.
Sigurvarði sá var hlaðinn
sem í öllu gildi fann.
Tevtóborgarskógar skaðinn
skelfdi sjálfan keisarann!
AÐSENT | Rúnar Kristjánsson
Í minningu
Hermanns
AÐSENT | Sveinn Sigurbjörnsson skrifar
Frá Tónlistarskóla Skagafjarðar
Lokatónleikar og skólaslit
Tónlistarskóla Skagafjarðar
voru haldnir í Frímúrara-
salnum 20. maí kl.16. Þar
komu fram nemendur með
fjölbreytta og skemmtilega
dagskrá. Þá voru tveir
kennarar kvaddir vegna
starfsloka, þeir Rögnvaldur
Valbergsson, eftir 43 ár í
kennslu, og Thomas R.
Higgersson, eftir 30 ár við
kennslu.
Þá var veitt úr minningarsjóð-
um Aðalheiðar Erlu Gunnars-
dóttur frá Syðra-Vallholti og
Jóns Björnssonar frá Hafsteins-
stöðum. Úr minningarsjóði
Aðalheiðar Erlu fengu þær Agla
Rut Egilsdóttir og Þórunn Ásdís
Fjólmundsdóttir viðurkenningu
fyrir góðan námsárangur. Arna
Þorsteinsdóttir hlaut viður-
kenningu fyrir góðan náms-
árangur úr minningarsjóði Jóns
Björnssonar.
Þrír nemendur luku stigs-
prófi í píanóleik tveir í 2. stigi og
einn 1. stigi. Agla Rut Egilsdóttir
lauk grunnprófi í píanóleik, þá
luku einnig þær Arna Þor-
steinsdóttir og Þórunn Ásdís
Fjólmundsdóttir miðprófi í
tónfræðagreinum.
Hljóðfærahringekjan er
alveg ný grein innan skólans, en
hún byggist á því að nemendur
læra undirstöðuatriði á mörg
hljóðfæri yfir veturinn. Farið er
með þau í gegnum blásturs-,
strengja og rythmísk hljóðfæri
(slagverk, rafbassa og gítar) á
þremur tímabilum yfir veturinn,
átta vikur í senn. Kennt er í
litlum hópum, þrennt saman í
tíma í 30 mínútur, einu sinni í
viku. Þá skal geta þess að ný
kennslugrein, hljóðfærahring-
ekja, hentar mjög vel fyrir
byrjendur þar sem þrír nem-
endur koma saman í tíma og fá
kynningu á öllum þeim
hljóðfærum sem kennt er á í
skólanum.
Alls stunduðu 164 nám við
skólann í vetur og voru haldnir
fjölmargir tónleikar og tón-
fundir sem sjá má á með-
fylgjandi myndum.
Kveðja, Sveinn
Agla Rut og Þóranna. MYNDIR AÐSENDAR
Rögnvaldur Valbergsson og Thomas R. Higgersson.
Úr starfi Tónlistarskóla Skagafjarðar.
Allir með Feyki!
Þórhalla Guðbjartsdóttir
hefur verið ráðin skólastjóri
grunnskóla Húnabyggðar.
Þórhalla var áður skólastjóri
Blönduskóla en eftir
sameiningu Blönduósbæjar
og Húnavatnshrepps var
öllum stjórnendum grunn- og
leikskóla sagt upp í Blöndu-
ósbæ og Húnavatns-
hreppi.
Í apríl síðastliðnum var
auglýst eftir skólastjórn-
endum í sameinuðu sveitar-
félagi og var starf skólastjóra,
aðstoðarskólastjóra, leik-
skólastjóra og aðstoðarleik-
skólastjóra auglýst.
Á sveitarstjórnarfundi 21.
júní staðfesti sveitarstjórn
Húnabyggðar ráðningu Þór-
höllu í starf skólastjóra en
frestaði staðfestingu á ráðn-
ingu aðstoðarskólastjóra þar
til gengið hafi verið frá
ráðningunni við Þórhöllu
sem þá verður falið að ganga
frá ráðningu aðstoðarleik-
skólastjóra með hliðsjón af
gögnum ráðningafyrirtæk-
isins Hagvangs.
Þá ákvað sveitarstjórn að
auglýsa stöður leikskólastjóra
og aðstoðarleikskólastjóra
aftur. / IÖF
Skólastjórnarmál í Húnabyggð skýrast
Þórhalla ráðin skólastjóri
Þórhalla verður fyrsti skólastjóri Grunn-
skóla Húnabyggðar. MYND AF FB
4 25/2022