Feykir


Feykir - 29.06.2022, Side 5

Feykir - 29.06.2022, Side 5
ÍÞRÓTTAFRÉTTIR F 147 áhorfendur mættu á Blönduósvöll sl. laugardag og væntanlega hafa þeir flestir verið á bandi heimamanna í Kormáki/Hvöt sem tóku á móti Elliða úr Árbæ í 3. deildinni í knatt- spyrnu. Eftir fjóra tapleiki í röð var eiginlega alveg nauðsynlegt fyrir Húnvetningana að spyrna við fótum og krækja í sigur. Það var einmitt það sem þeir gerðu en úrslitin voru 3-2 og Ingvi Rafn Ingvarsson fór mikinn í leiknum og gerði öll þrjú mörk heimamanna. Hann kom sínu liði yfir á fjórðu mínútu og bætti um betur þegar rúmur stundarfjórðungur var eftir. Pétur Óskarsson minnkaði muninn fyrir Elliða á 42. mínútu og staðan 2-1 í leikhléi. Ingvi Rafn fullkomnaði þrennuna á 66. mínútu en gestirnir héldu áfram að sprikla og þeir minnkuðu muninn í eitt mark á ný þegar Daníel Steinar Kjartansson kom boltanum í markið framhjá Jose Luis Villar Alcaniz. Fleiri urðu mörkin ekki og þrjú stig í hús hjá Húnvetningum. Við þennan sigur þéttist pakkinn í neðri hluta 3. deildar enn frekar. Lið 3. deild | Kormákur/Hvöt – Elliði 3–2 Lið Tindastóls og Augnabliks mættust í Lengjudeildinni í knattspyrnu á Króknum sl. fimmtudagskvöld. Leikurinn var bragðdaufur framan af en gestunum gekk betur að nota boltann þó ekki hafi þeir skapað mikla hættu við mark Stólanna. Föst leikatriði reyndust heima- stúlkum drjúg og snemma í síðari hálfleik var ljóst að Stóla- stúlkur tækju stigin þrjú. Loka- tölur 3-0 og Stólastúlkur deila nú efsta sæti deildarinnar með liði FH sem á leik til góða. Það var kalt, blautt og norðangola meðan á leik stóð en það virtist ekki koma mikið að sök. Stólastúlkum gekk þó heldur verr að vinna með boltann enda oft á tíðum erfitt að senda langa og nákvæma bolta við þessar aðstæður. Kópavogsstúlkurnar voru duglegri í stutta spilinu en vörn Tindastóls gefur ekki mörg færi á sér og þannig var það þetta kvöld. Ísinn var brotinn skömmu fyrir hlé en þá tók Hannah Cade horn- spyrnu sem virtist ætla að svífa yfir á æfingasvæðið en María Dögg flengdi hausnum í bolt- ann utarlega í teignum og boltinn sveif yfir alla í teignum og í bláhornið, óverjandi fyrir Herdísi Höllu í marki Augna- bliks. Herdís er reyndar aðeins Lengjudeild kvenna | Tindastóll – Augnablik 3–0 Aldís María kom liði Stólastúlkna í 2-0 snemma í síðari hálfleik. MYND: ÓAB. Góður sigur á Augnabliki Ingvi Rafn með þrennu í mikilvægum sigurleik KH er neðst með sex stig en þar fyrir ofan koma sex lið með níu til ellefu stig. Kormákur/ Hvöt er með níu stig líkt og KFS og ÍH og er sem stendur í tíunda sæti á markatölu en tólf lið leika í 3. deildinni. Næstkomandi laugardag skjótast Húnvetn- ingar í Garðabæinn og spila við lið KFG sem er eitt af sterkari liðum deildarinnar. /ÓAB Ingvi Rafn eftir að hafa klikkað á dauðafæri á Sauðárkróksvelli fyrr í sumar. Hann klikkaði ekki á laugardaginn og setti þrjú. MYND: ÓAB 15 ára gömul og mikið efni en hún er Króksari í báðar ættir; dóttir Jónu Árna Stefáns (fyrrum landsliðsmarkmanns og þjálfara Tindastóls) og Guðbjarts Halla Guðbergs en Bjartur lék lengi með Stól- unum. 1-0 í hálfleik. Hafi gestirnir ætlað að koma baráttuglaðir til leiks þá voru þeir barðir niður í blábyrjun því dómarinn var varla búinn að flauta til leiks þegar Aldís María var búin að bæta við öðru marki fyrir Stólastúlkur. Nú var mikill kraftur í liði heimastúlkna og það kom ekkert á óvart þegar þriðja markið bættist í sarpinn fáeinum mínútum síðar, þá eftir klafs í teignum eftir fast leikatriði og Murr átti síðustu snertinguna áður en boltinn fór í netið. Eftir þetta jafnaðist leikurinn nokkuð en áfram voru Stólastúlkur hættulegri þó svo að gestirnir hafi einnig átti nokkur hálffæri. Enn sem fyrr var það vörn Tindastóls sem hélt og liðið aðeins fengið á sig fjögur mörk í átta leikjum. Það vantar ekki kraftinn í sóknina en það vantar aðeins upp á gæðin og það er kannski eitthvað sem þarf að skoða þegar leik- mannaglugginn opnar á ný. Baráttan og liðsheildin eru í toppklassa og alltaf gaman að sjá liðið leika af krafti og áræðni. /ÓAB Tindastólsmenn skelltu sér suður nú á mánudagskvöldið og léku við lið heimamanna á Stokkseyri í sjöundu umferð B-riðils 4. deildar. Það er skemmst frá því að segja að Stólarnir buðu upp á marka- veislu og sáu heimamenn í liði Stokkseyrar aldrei til sólar í leiknum því Jóhann Daði kom gestunum yfir á fyrstu mínútu og þegar upp var staðið hafði markvörður heimamanna hirt boltann níu sinnum úr netinu. Lokatölur því 0-9. Reyndar var nokkur bið í mark tvö en blaðra heima- manna sprakk á 34. mínútu því Stólarnir gerðu fjögur mörk á tíu mínútna kafla. Addi Ólafs gerði annað markið, Jónas Aron bætti við þriðja markinu á 39. mínútu, Jóhann Daði gerði annað markið sitt tveimur mínútum síðar og Basi komst loks á lista yfir markaskorara á 44. mínútu. Staðan því 0-5 í hálfleik. Svo hélt veislan áfram í síðari hálfleik því Eysteinn Bessi gerði sjötta mark Stólanna á 55. mínútu og Benedikt Gröndal það sjöunda á 64. mínútu. Svíinn Óskar Örth skoraði á 73. mínútu og Basi kórónaði síðan sigur gestanna með marki eftir hjólhestaspyrnu. Úrslitin þýða að lið Tinda- stóls er á toppi riðilsins að lokinni fyrri umferð með 17 stig. Lið KFK úr Kópavogi getur jafnað stigafjölda Stól- anna þegar það mætir SR í kvöld en hæpið er að þeir jafni markatölu Tindastóls því þar munar 17 mörkum. Toppliðin mætast síðan í næstu umferð í Fagralundi í Kópavogi en leikurinn fer fram nk. mánudag. /ÓAB 4. deild | Stokkseyri – Tindastóll 0–9 Stólar í stuði á Stokkseyri Það er stórleikur framundan í körfuboltanum en nú á föstudag mætir Ísland liði Hollendinga í Ólafssal í Hafnarfirði í undankeppni HM. Einn leikmaður Tinda- stóls er í 16 manna æfingahóp hjá Craig Petersen landsliðs- þjálfara en það er Sigtryggur Arnar Björnsson. Tólf leikmenn verða síðan valdir á endanum fyrir leikinn. Sigurður Gunnar Þorsteinsson, leikmaður Tindastóls, gaf ekki kost á sér að þessu sinni skv. upp- lýsingum Feykis. Þá er Baldur Þór Ragnarsson, þjálfari Tindastóls, sem fyrr annar aðstoðarþjálfara landsliðsins. Góð úrslit í leiknum tryggja betri stöðu Íslands í næsta undanriðli fyrir HM. Norðurlandamótið í körfubolta U16 og U18 landsliða drengja og stúlkna fer fram nú um mánaðamótin í Kisakallio í Finnlandi og er hinn bráðefnilegi leikmaður Tindastóls, Orri Már Svavars- son, í tólf manna lokahópi U-18. Þá hefur Eyþór Bárðarson verið valinn í tólf manna lokahóp karlalandsliðs Ís- lands í körfubolta sem þátt tekur í Evrópumóti FIBA U20 í næsta mánuði. Mótið fer fram dagana 15.-24. júlí í Tbilisi í Georgíu og leikur íslenska liðið í A-riðli með Eistlandi, Hollandi, Lúxem- borg og Rúmeníu. /ÓAB & IÖF Körfuknattleikur Landsliðs-Stólar Vallaraðstæður eru mismunandi í 4. deildinni en sennilega óvíða eins spes og á Stokkseyrarvelli. MYND AF FB 25/2022 5

x

Feykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.