Feykir


Feykir - 29.06.2022, Page 7

Feykir - 29.06.2022, Page 7
25/2022 7 helst ofan á brauð. Annars er líka snilld að gera svona Deviled Eggs, þar sem rauðan er tekin úr harðsoðnum eggjum, blandað saman, krydduð og sprautað aftur í. Hægt að gera alls konar! Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari þínu? Ég held að það sé hvað ég get verið þrjósk - fer stundum aðeins út í smá þvermóðsku. Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari annarra? Þegar fólk getur ekki tekið til eftir sig eða klárað hluti sem það byrjar á. Finnst ekkert meira pirrandi en að þurfa að taka til eftir fólk. Uppáhalds málsháttur eða tilvitnun? Ég nota óspart: „Víða er pottur brotinn“. Hver er elsta minningin sem þú átt? Held það sé að vera niðri í fjárhúsum með geitunum og folaldinu sem ég átti. Þú vaknar einn morgun í líkama frægrar manneskju og þarft að dúsa þar einn dag. Hver værirðu til í að vera og hvað myndirðu gera? Ég væri til í að vera Amy Lee í uppáhalds hljómsveitinni minni, Evanescence. Svo myndi ég líklega bara nýta daginn í að semja einhver lög og syngja. Hver er uppáhalds bókin þín og/eða rithöfundur? Ég hef lesið svo margar bækur að það er erfitt að velja uppáhalds - en bók sem ég las um daginn sem var mjög góð var My Sister, The Serial Killer eftir Oyinkan Braithwaite. Hljómar kannski rosalega óhugnaleg, en mjög góð bók og lágstemmd miðað við titilinn. Orð eða frasi sem þú notar of mikið? Ég nota „jæja“ eins og mér sé borgað fyrir það. Ef þú gætir farið til baka í tímann, hvert færirðu? Já, það er alveg spurning. Ætli ég myndi ekki bara fara aftur til risaeðlu- aldar til að sjá hvað þær voru glæsilegar? Og reyna að verða ekki að kvöldmat fyrir þær! Hver væri titillinn á ævisögu þinni? Þegar ég kom út úr skápnum þá var sagt við vinkonu mína: „Af hverju getur hann ekki bara verið hommi eins og venjulegt fólk?“ sem ég hef hlegið að alla tíð síðan. Finnst það bara vera frekar lýsandi fyrir fáfræði fólks sem skilur ekki muninn á kynhneigð og kynvitund – en kynhneigð er hverjum þú laðast að og kynvitund hvernig þú upplifir þig. En já, ætli það verði ekki bara titillinn? Framlenging: Ef þú gætir hoppað upp í flugvél og réðir hvert hún færi, þá færirðu… Kannski ekki vinsæll ferðastaður en ég er búin að vera með Hjaltlandseyjar á heilanum undanfarið. Sá myndband þar sem stelpa var að bera fram alls konar gömul orð og það voru eiginlega bara sömu orð og við notum á íslensku. Hreimurinn þeirra er svona blanda af íslensku og skosku. Ugla Stefanía hér með Jóni pabba sínum en hún var að sjálfsögðu mætt í sauðburðinn nú í sumarbyrjun. MYND AÐSEND Um seinustu helgi, nánar tiltekið laugardaginn 25. júní, var Dalasetrið á Helgustöðum í Unadal opnað. Dalasetrið er heilsusetur með þremur gestahúsum og endalausri náttúru og við opnunina var boðið upp á veitingar í gróðurhúsinu á staðnum. Það eru Daníel Þórarinsson og Stefán Óskar Hólmarsson sem standa að Dalasetrinu ásamt foreldrum Daníels, þeim Þórarni Þórðarsyni og Helgu Hjálmarsdóttur. Feykir var að sjálfsögðu á staðnum og króaði Daníel Þórarinsson af og ræddi aðeins við hann um þetta glæsilega verkefni. Aðspurður hvað hafi kveikt hugmyndina að Dalasetrinu sagði Daníel að hugmyndin hafi kviknað fyrir um fimm árum og framkvæmdir hafi hafist 2019. Hann sé lærður jógakennari og nuddari og hafi mikinn áhuga á náttúru og heilsu svo hann hafi ákveðið að blanda þessu saman, náttúru og heilsu. Hann sagðist hafa viljað verða bóndi en ekki langað að vera með dýr svo hann ákvað að athuga hvort hann gæti ekki bara ræktað fólk (eða heilsu þess). Þegar talið barst að veitingum sagði Daníel að ætlunin væri að opna Dalakaffi næsta sumar í gróðurhúsinu og að unnusti hans, Stefán Óskar Hólmarsson, ætli að sjá um það. Um hver stefnan sé í fram- tíðinni sagði Daníel að hug- myndin sé að byggja Dalasetrið upp sem heilsusetur með að- stöðu fyrir jóga og nudd og að það verði góður staður fyrir fólk sem þarf að staldra við og hlaða batteríin. / IÖF Ótrúleg fegurð í Unadalnum Dalasetrið opnar Tvö af gistihúsunum og Helgustaðir í bakgrunni. Glæsileg og þægileg aðstaða umkringd náttúrufegurð. MYNDIR: IÖF

x

Feykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.