Feykir


Feykir - 29.06.2022, Qupperneq 8

Feykir - 29.06.2022, Qupperneq 8
Feykir hefur í sínum fórum skemmtilega ferðasögu frá því Molduxar heimsóttu stríðsþjáða Króatíu árið 1994. Sagan er það löng að skipta þarf birtingu hennar á nokkur tölublöð Feykis. Skrifin önnuðust Ágúst Guðmundsson og Margeir Friðriksson en formálann ritaði Ágúst Ingi Ágústsson, sagnfræðingur. FORMÁLI Ferðalag íþróttafélagsins Molduxa frá Sauðárkróki í maímánuði 1994 var nokkuð sérstakt fyrir þær sakir að liðsmenn félagsins heimsóttu Balkanskagann, n.t.t. Króatíu, skömmu eftir að þjóðin öðlaðist sjálfstæði og sagði skilið við sambandsríkið Júgóslavíu. Auk Króata samanstóð Júgóslavía af sex sambandslýðveldum: Serbíu, Slóveníu, Makedóníu, Svartfjallalandi og Bosníu- Hersegóvínu. Mikið hafði því gerst á þeim slóðum sem Molduxar heimsóttu vorið 1994 og samtímis sá ekki fyrir endann á þeim hildarleik sem reið yfir Balkanskagann á 10. áratug síðustu aldar, voru því körfuknattleiksmennirnir frá Sauðárkróki á jaðri átakasvæða stríðsins. Júgóslavía varð fyrst viður- kennt ríki árið 1929 þó kon- ungsdæmi Króatíu, Serbíu og Slóveníu hafi verið sjálfstætt frá 1918 eða frá lokum fyrri heimsstyrjaldar. Hafði það verið draumur margra íbúa Balkanskagans að mynda sterkt sjálfstætt ríki sameinaðra Slava eftir aldalanga yfirgöngu Ottómanveldisins úr suðri og Habsborgara austurríska keisaradæmisins frá norðri. Staða Júgóslavíu styrktist til muna eftir seinni heimsstyrj- öldina þegar ríki Austur- Evrópu störfuðu eftir hug- sjónum kommúnismans austan megin Járntjaldsins. Broz Tító, forseti Júgóslavíu frá 1945, varð sameiningartákn eftir seinna stríð og ríkti allt til dauðadags árið 1980. Tító og hans stjórn hélt ólíkum þjóðernum saman undir merkjum kommúnismans með öflugum verkalýðsfélögum ásamt hæfilegum afskiptum FRÁSÖGN Ágúst og Margeir Keppnis- og kynnisferð Molduxa til Evrópu 1994 - Fyrsti hluti Ísland viðurkennir sjálfstæði Króatíu og Slóveníu Körfuboltakappar af Króknum í ævintýraferð í Króatíu. Fv. Alfreð Guðmundsson, Ingimundur Guðjónsson, Margeir Friðriksson, Óttar Bjarnason, Peter Jelic, Ágúst Guðmundsson, Geir Eyjólfsson og Sævar Hjartarson. MYNDIR: PF yfirvalda í Sovétríkjunum. Hrikta fór í stoðum sam- bandsríkisins Júgóslavíu undir lok 9. áratugs síðustu aldar. Mikhael Gorbatsjov, síðasti aðalritari Sovétríkjanna, gang- setti umbótastefnu1 sem átti að auka frelsi og lýðræði í fjölmiðlun og stjórnmálum meðal hinna kommúnísku ríkja Austur-Evrópu. Afleiðingar þessarar umbótastefnu urðu að spilling og óstjórn stjórnvalda ríkja kommúnismans birtust ljóslifandi. Ólgan jókst í ríkjum Austur-Evrópu sem margar hverjar gerðu uppreisn gegn sitjandi stjórnvöldum og ófriðarský lúrði yfir Balkan- skaganum. Þjóðerniskennd Til viðbótar við hið aukna frelsi í stjórnmálum og fjölmiðlun höfðu þær sex þjóðir sem mynduðu júgóslav- neska ríkið færst fjær hver annarri eftir andlát Tító, og botninn datt endanlega úr samheldninni á Balkanskaganum þegar kommún- isminn í Evrópu leið undir lok. Króatar héldu því fram að komm- únisminn hafi hamlað framþróun í Júgóslavíu, auk þess sem framleiðsla og fjármagn Króatíu og Slóveníu hafði verið notað til þess að halda uppi veikum efnahagi fátækari hluta ríkjasambandsins í suðri. Um 70% allra ferðamanna sem komu til Júgóslavíu dvöldu í Króatíu og þjóðin stóð fyrir 25% af iðnaðarframleiðslu Júgóslavíu. Einn liður af um- bótastefnu Gorbatsjovs voru frjálsar kosningar en áður var þjóðum Austur-Evrópu skylt að hafa flokk á bandi Sovét- kommúnista við stjórnar- taumana. Í fyrstu frjálsu kosn- ingunum í Júgóslavíu, í apríl 1990, héldu kommúnistar velli í Serbíu en töpuðu fyrir hægri flokkum í Króatíu og Slóveníu. Hugmyndafræðilegar andstæður lýðveldanna jukust enn þegar Króatar og Slóvenar tóku að endurskipuleggja efnahagskerfi sitt í anda mark- aðshagkerfis að vestrænni fyrirmynd eftir kosningarnar. Hugur króatísku þjóðarinnar var einnig skýr varðandi framtíð Júgóslavíu en í þjóðar- atkvæðagreiðslum kaus mikill meirihluti þjóðarinnar með sjálfstæðisyfirlýsingu. Málið var þó ekki svo einfalt því íbúar Balkanskagans höfðu fært sig um set á meðan þjóðirnar voru sameinaðar undir sama fána og sest að um alla Júgó- slavíu, t.a.m. bjuggu árið 1991 um 600.000 Serbar á því landsvæði sem Króatar töldu sitt föðurland. Sjálfstæðisyfirlýsing Í ljósi sögunnar hefur myndun nýrra ríkja verið í mörgum til- fellum blóðug barátta enda oft miklir hagsmunir í húfi. Serbar lögðu allt kapp á að halda sambandslýðveld- unum sex áfram í einni sæng, enda sáu þeir fram á mikinn tekjumissi fyrir júgóslavneska þjóðarbúið sem myndi missa tolla við landamærin að Austurríki ef Slóvenía lýsti yfir sjálfstæði og ferða- mannaþjónustu og iðnað Króata ef þeir gerðu slíkt hið sama. Ótti Serba við upplausn Júgóslavíu varð að veruleika þann 25. júní 1991 þegar Króatar og Slóvenar lýstu yfir sjálfstæði eftir staðfestingu þinganna í Zagreb og Ljubljana. Samdægurs skipaði þing Júgóslavíu í Belgrad hernum að skerast í leikinn og ráðist var inn í Króatíu og Slóveníu. Úr varð borgarastríð milli þessara þjóðarbrota, Króatar fóru þess á leit við alþjóðasamfélagið að viðurkenna sjálfstæði þjóðarinnar svo friðargæslulið Sameinuðu þjóðanna gæti skorist í leikinn. Evrópuþjóðir og Bandaríkin voru hikandi í aðgerðum sínum við að stöðva stríðið og töldu slíkt inngrip gæti valdið frekari óróa á Balkanskaganum. Borgarastríð með öllum sínum hörmungum geisaði því seinni hluta árs 1991 í Króatíu og Slóveníu. Ísland viðurkennir sjálfstæði Króatíu og Slóveníu Króatar leituðu til alþjóða- samfélagsins eftir viðurkenn- ingu sjálfstæðis síns og vernd. Eftir að hafa átt fund með Sameinuðu þjóðunum í New York kom Zvonimir Separo- vic, utanríkisráðherra Króatíu, og fundaði með þeim Davíð Oddssyni, forsætisráðherra, og Jóni Baldvini Hannibalssyni, utanríkisráðherra, í lok septem- ber 1991. Separovic fór þess á leit við þá að Íslendingar viðurkenndu sjálfstæði Króata fyrstir þjóða. Engin tilviljun réði því að Separovic leitaði á náðir íslenskra stjórnvalda því nokkru áður höfðu Íslending- ar, fyrstir þjóða, viðurkennt sjálfstæði Eystrasaltsríkjanna. Heimsókn Separovic var ekki eina króatíska viðkynningin sem Íslendingar fengu haustið 1991 en Íslandsmeistarar Njarðvíkur í körfubolta dróg- ust gegn króatíska liðinu Cibona Zagreb í Evrópukeppni meistaraliða í körfuknattleik. Báðir leikirnir voru leiknir í Njarðvík vegna ástandsins í Króatíu. Fyrir fyrri leikinn var flutt ávarp fyrir hönd Cibona Zagreb á íslensku þar sem biðlað var til íslensku 8 25/2022

x

Feykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.