Feykir


Feykir - 29.06.2022, Blaðsíða 9

Feykir - 29.06.2022, Blaðsíða 9
Þegar áskorunin um að skrifa í Feyki barst mér vildi svo til að ég var stödd úti á Tenerife með fjölskyldunni. Þegar kom að því að byrja að skrifa ræddi ég við manninn minn um hvað ég ætti mögulega að skrifa um og sagði honum að ég nennti eiginlega hvorki að skrifa um skóla- eða sveitarstjórnarmál (vanalega fyrsta val), enda í fríi og það er mikilvægt að taka fríin sín alvarlega. En hvað í ósköpunum gæti ég þá skrifað um? Það er gott að spyrja hann, hann fær bestu hugmyndirnar (ég fæ flestar, en alls ekki allar góðar). „Máttu skrifa um hvað sem er?” Já, hvað sem er svaraði ég. „Af hverju skrifar þú þá ekki um go kart ferðina okkar frá því í dag? Hún gekk svo ljómandi vel.“ Ég urraði smá á hann og sneri upp á mig því ég var ennþá örlítið krumpuð eftir ævintýri dagsins. Þetta átti bara að vera gaman. En það endar ekki alltaf þannig. Og eftir á að hyggja þá hefðum við átt að vita betur. Ferðin byrjaði vel. Allir voru spenntir og glaðir. Það var ákveðið að drengirnir myndu bara fara í bílana og við fullorðnu myndum horfa á og hvetja. Opinbera skýringin til drengjanna var að ég væri í svo fínum kjól og að ég vildi ómögulega óhreinka hann. En raunverulegu skýringuna vita flestir sem mig þekkja. Ég og kappleikir hvers konar eigum ekki vel saman. Keppnisskapið er gífurlegt og þrátt fyrir góðan vilja þá tekst mér ekki alltaf að hemja skapið í hita leiksins og þarna voru alveg líkur á að ég hefði getað endað leikinn stórsködduð á líkama og sál. Maður verður að vera meðvitaður um eigin takmarkanir og leyfa skynseminni stundum að ráða. Vandinn er bara sá að annar sonur minn, almennt hinn mesti ljúflingur og geðprýðismaður – alveg eins og pabbi hans – hefur því miður erft keppnisskap móður sinnar. Hann byrjaði rúntinn vel. Það var greinilegt að aksturinn átti vel við hann. En okkar ólukka var sú að á sama tíma þutu um brautina þrír breskir óþokkar á svipuðum aldri sem virtust hafa það takmark eitt að taka fram úr litla ljósablóminu hennar mömmu sinnar. Og þá fór heldur að þykkna í okkar manni (og mömmu hans líka). Við það æstust óþokkarnir heldur og það sem byrjaði sem notalegur rúntur var orðin barátta upp á líf og dauða! Ekki bætti úr skák að uppi á áhorfenda- pöllunum stóðu foreldrar óþokkanna, tannlausir og tattúeraðir með óskiljanlegan hreim, og hvöttu þá áfram. Að lokum var mér nóg boðið þegar liðið gargaði og fagnaði eftir að einn af óþokkunum hafði náð að þvinga minn mann út af brautinni og út á gras. Ég gat ekki stillt mig lengur og hvæsti á liðið „yeah go on. Cheer him on for ruining another kid's day. Great parenting!” Einhverjir hefðu kannski ekki lagt í að hvæsa á þennan hóp en já….. Það virkaði allavega því nú dró heldur úr liðinu og þau hvöttu sína bara pent ÁSKORENDAPENNINN | bladamadur@feykir.is Anna Margrét Sigurðardóttir Blönduósingur Af ökuþórum og óþokkum Anna Margrét Sigurðardóttir.. AÐSEND MYND og mátulega það sem eftir var. Þessum þrekraunum ætlaði aldrei að ljúka en þegar að því kom tókum við á móti köppunum okkar, ég tilbúin að stappa stálinu í minn mann - ég vissi jú upp á hár hvernig honum leið. Yngra eintakið kom valhoppandi út af braut- inni brosandi allan hringinn. Enda hafði hann ekki verið í neinni keppni. Hann var þarna kominn til þess að njóta þess að rúnta um kappakstursbrautina í eigin heimi, hring eftir hring og vék sér fimlega frá í hvert skipti sem annar bíll nálgaðist og tók fram úr. Óþokkarnir höfðu lítið gaman af þessum furðufugli. En sama gilti ekki um elsku mömmulinginn. Froðufellandi og sótsvartur af reiði kom hann til okkar og sagði bara eitt orð. Förum. Ég knúsaði drenginn og minnti hann á það að hann hefði ekki verið í neinni keppni. Hann hefði bara átt að víkja eins og litli bróðir hans gerði. Ég bætti því svo við í mínum umhyggjusamasta og móðurlegasta tón að hann væri líka bara barn ennþá og þetta sturlaða keppnisskap myndi örugglega eldast af honum. Fyrir aftan mig heyrði ég niðurbælt fliss í eiginmanninum. Nú þyngdist heldur á mér brúnin og ég hafði bara eitt að segja. Komum! * Þessi örsaga er skrifuð með samþykki allra sem í henni eru, stórra sem smárra. - - - - Anna Margrét skorar á Viktoríu Blöndal að taka við áskorandapennanum. þjóðarinnar að beita sér fyrir því að stöðva stríðið í Króatíu. Fyrir ofan varamannabekk Cibona höfðu leikmenn liðsins hengt borða sem á stóð: Stop the war in Croatia. Birtist sú mynd bæði í íslenskum og erlendum fjölmiðlum og er hún mjög táknræn fyrir ákall króatísku þjóðarinnar til heimsbyggðarinnar um að stöðva þann hildarleik sem átti sér stað á þeim landsvæðum sem Serbar og Króatar deildu um. Sjálfstæð þjóð Vonir Króata glæddust mikið þegar leið á desember 1991. Þann 15. desember ákvað ríkisstjórn Íslands á fundi sínum að viðurkenna sjálfstæði Króatíu og Slóveníu, fyrst ríkja heimsins. Ísland sem smáríki bar ekki jafn mikla ábyrgð og stærri ríki Evrópu og Bandaríkin á alheimsvísu. Yfirlýsing Íslands leiddi ekki til nýrra styrjalda eða röskunar á valdajafnvægi heimsins, en var þó tekin af fullri alvöru enda Ísland aðili að NATO og Sameinuðu þjóðunum. Evrópubandalagið, forveri Evrópusambandsins, tilkynnti síðan tveimur dögum síðar að bandalagið myndi viðurkenna sjálfstæði Króatíu og yrði landið viðurkennt stjórnvaldsríki frá 15. janúar 1992. Fyrstu sveitir friðargæsluliðs Sameinuðu þjóðanna komu til Króatíu þann 17. janúar 1992. Eftir komu friðargæslunnar skrif- uðu Króatar og Serbar undir friðarsamning og í kjölfarið var Króatía samþykkt af alþjóðasamfélaginu sem sjálf- stætt ríki. Þjóðernisátökum á Balkanskaganum var þó hvergi nærri lokið þar sem Serbar reyndu með hernaðarmætti sínum að halda hinum sam- bandslýðveldunum í einni sæng. Átök geisuðu því áfram á Balkanskaganum þó íbúar Króatíu væru verndaðir af Sameinuðu þjóðunum. Átökin í Bosníu-Hersegóvinu ein- kenndu stríðið á Balkanskag- anum næstu árin og lauk stríð- inu ekki fyrr enn 1995. Körfuboltinn í Króatíu Króatar voru loks árið 1992 sjálfstæð þjóð eftir áratuga sameiningu við önnur lönd Balkanskagans og afskipti stórvelda öldum saman. Ekki er því að undra að stolt þeirra var mikið. Körfubolti er stór hluti af menningu Króata og framganga körfuboltalandsliðs þeirra á Ólympíuleikunum 1992 í Barcelona var meiri- háttar áfangi í sögu ungs ríkis. Lið Króata, með þá Drazen Petrovic, Toni Kukoc, Dino Radja o.fl. innanborðs, afrekaði það að lenda í öðru sæti á Ólympíuleikunum þar sem þeir töpuðu á móti hinu goðsagnakennda Draumaliði Bandaríkjamanna í úrslitaleik. Körfuboltaþjóðin Króatar hugsaði árin eftir viður- kenningu Íslendinga á sjálf- stæði þeirra ákaflega hlýtt til smáríkisins í Norður- Atlantshafi. Tengsl mynduðust milli Molduxa og þessa unga lýðveldis þegar króatíski körfu- boltaþjálfarinn Peter Jelic þjálf- aði lið Tindastóls tímabilið 1993-94. Æfði Jelic með Mold- uxum og var það upphafið að ferðahug félagsmanna og þátttöku á alþjóðamóti í höfuð- borg Króatíu, Zagreb. Í ljósi hlýhugar Krótata til íslensku þjóðarinnar er ekki að undra að körfuboltaliðið Molduxar frá Sauðárkróki hafi fengið móttökur sem sæmdu höfðingjum þegar þeir heimsóttu Króatíu í maímánuði 1994 þegar lýðveldið Króatía var aðeins tveggja ára gamalt. Liðsmenn Molduxa héldu dagbók meðan á dvöl sinni á Balkanskaganum stóð og eiga því öruggar heimildir um ferð sína sem gerir frásögn þeirra, sem hér fer á eftir, nákvæmari en ella um ævintýri þeirra. Má fullyrða að Molduxar sem eru frægir fyrir skemmtana- og lífsgleði hafi verið réttir menn á réttum stað því í engu var til sparað í veisluhöldum og viðkynningu af hendi gestgjafa þeirra. Helstu heimildir: Banac, Iov. The National Question in Yugoslavia. Origins, History, Politics. Cornwell University Press, 1984. Íslendingar taki frumkvæðið og viðurkenni sjálfstæði Króatíu. Morgunblaðið, 1. október 1991. Overy, Richard, ritstj. History of the 20th Century. Times Books, 2003. 25/2022 9

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.