Feykir - 29.06.2022, Qupperneq 11
Við skulum finna upp framtíðina í stað þess að hafa
áhyggjur af því sem gerðist í gær. – Steve Jobs
KROSSGÁTUSMIÐUR Páll Friðriksson
SVÖR VIÐ VÍSNAGÁTU: Ragn-heiður.
Sudoku
Krossgáta
Vísnagátur Sveins
Víkings. Finna skal út
eitt kvenmannsnafn.
Ótrúlegt - en kannski satt...
Á Vísindavefnum segir að golfkúla nái lengstu flugi fyrir tiltekinn
upphafshraða ef henni er skotið undir 45° horni frá láréttu en flugferill
hennar verður alltaf fleygbogi (parabóla) og öll önnur skothorn bæði
stærri og minni gefa styttra flug. Ótrúlegt, en kannski satt, þá eru
336 spékoppar á venjulegri golfkúlu, sem hjálpa til við að yfirvinna
mótstöðuaflið þegar hún svífur í loftinu.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Hver vill eignast könguló.
FEYKIFÍN AFÞREYING F
Tilvitnun vikunnar
( FEYKIR MÆLIR MEÐ ) siggag@nyprent.is
UPPSKRIFT 1
Ofnbakað
Mac & Cheese
250 g makkarónupasta
1 msk. ólífuolía
150 g beikon, smátt skorið
300 g sveppir
1 rauð paprika
1 msk. smátt söxuð steinselja
1 msk. smátt saxað tímían
2 msk. smjör
1 laukur, sneiddur
500 ml matreiðslurjómi
200 ml grænmetissoð (soðið
vatn + 1 græntmetisteningur)
100 g rifinn Parmesan ostur
100 g rifinn Cheddar ostur
1 msk. smátt söxuð steinselja
salt og pipar
Aðferð: Hitið ofninn í 180°C.
Sjóðið makkarónupasta sam-
kvæmt leiðbeiningum á pakk-
anum. Hellið vatninu af og setjið
pastað í eldfast mót. Hitið olíu á
pönnu og steikið beikonið í
nokkrar mínútur, bætið sveppum
og papriku út á pönnu og steikið.
Kryddið til með salti og pipar.
Saxið niður ferskar kryddjurtir og
dreifið yfir. Blandið beikonblönd-
unni saman við makkarónupastað.
Hitið smjör á pönnu, sneiðið niður
einn lauk og steikið upp úr
smjörinu í nokkrar mínútur við
vægan hita eða þar til laukurinn
verður mjúkur í gegn. Hellið
matreiðslurjómanum og græn-
metissoðinu saman við og leyfið
sósunni að malla í nokkrar
mínútur. Rífið niður Parmesan ost
og Cheddar, setjið út í sósuna og
leyfið ostinum að bráðna í
rólegheitum. Kryddið til með salti
og pipar. Hellið sósunni yfir pastað
og blandið saman með skeið. Rífið
niður nóg af osti t.d. Mozzarella og
Cheddar og dreifið yfir formið.
Mynd og uppskrift tekið af
evalaufeykjaran.is
UPPSKRIFT 2
Hægeldað svínakjöt
með kjúklingabaunum
1 msk. chili flögur
1 msk. svört piparkorn
1 msk. fennelfræ
1,8 kg svínakjöt
2 msk. salt
4 msk. ólífuolía
1 meðalstór laukur, skorinn í
bita
1 hvítlaukshaus, skorinn í
helming
4 lárviðarlauf
2 bollar þurrt hvítvín
2 dósir kjúklingabaunir
½ sítróna
3 msk. steinselja, smátt söxuð
Aðferð: Myljið chili flögur, pipar-
korn og fennel fræ með mortar.
Saltið svínakjötið vel og kryddið
síðan með piparblöndunni. Nudd-
ið kryddinu vel inn í kjötið. Klæðið
svínakjötið í plastfilmu og passið
að hún sé mjög þétt. Leyfið kjötinu
að sitja í klukkutíma við stofuhita
eða í ísskáp yfir nótt. Hitið ofninn í
160°C. Hitið tvær matskeiðar af
olíu í potti og steikið kjötið á öllum
hliðum í 10 til 12 mínútur í heild.
Setjið svínakjötið á disk. Hellið
fitunni úr pottinum og bætið
restinni af olíunni saman við og
hitið yfir meðalhita. Eldið lauk og
hvítlauk og hrærið reglulega í um
tvær mínútur. Hrærið lárviðar-
laufum saman við og skellið svína-
kjötinu í pottinn. Hellið víninu
saman við sem og 2 bollum af
vatni. Setjið lok á pottinn og setjið
hann inn í ofn. Bakið í 2½ til 3
klukkutíma en passið að snúa
svínakjötinu á 45 mínútna fresti.
Setjið kjötið á disk og leyfið því að
kólna aðeins áður en það er skorið
í stóra bita. Setjið kjötið og kjúkl-
ingabaunir í pottinn og hitið yfir
lágum hita. Eldið með lok á
pottinum í 12 til 15 mínútur.
Kreistið síðan sítrónusafa yfir og
skreytið með steinselju.
Mynd og uppskrift tekin
af eldhussogur.com
Verði ykkur að góðu!
Tvær góðar
með grísakjöti
Feykir spyr...
Hvernig ís í vél
færðu þér?
Spurt á Facebook
UMSJÓN: klara@nyprent.is
„Í dollu með
karamellusósu og
lakkrískurli.“
Harpa Hrund Hafsteinsdóttir
„Ég fæ mér ís í boxi með
heitri súkkulaðisósu.“
Hjalti Vignir Sævaldsson
„Ég fæ mér oftast
bragðarref með
kókosbollum, jarðaberjum
og karamelludýfu.“
Sædís Bylgja
„Shake með
súkkulaðisósu.“
Atli Freyr Kolbeinsson
25/2022 11
Vísnagátur Sveins Víkings
Það gildir hið sama um þá öldruðu og ungu
að engum er sómi það hafa á tungu.
En annað gildir að allflestra dómi
að eiga það skilið er vafalaust sómi.