Feykir - 20.07.2022, Blaðsíða 3
Hafðu samband!
Hafðu samband í síma 455 7176
eða sendu Feyki póst á feykir@feykir.is
Landsmót hestamanna á Hellu 2022
Góður árangur
Skagfirðinga
Landsmóti hestamanna lauk um
þar síðustu helgi og hafði þá
staðið yfir í vikutíma á Rangár-
bökkum við Hellu. Fjöldi knapa
og hrossa tók þátt í hinum ýmsu
greinum og fjölmargir úr
Hestamannafélaginu Skagfirð-
ingi buðu upp á flottar sýningar
og prúða framkomu. „Við erum
stolt af öllum okkar fulltrúum á
mótinu og óskum ykkur innilega
til hamingju með árangurinn,“
segir í færslu á Facebook-síðu
félagsins.
Þar eru tíndar til upplýsingar
um gott gengi félagsfólks á
mótinu sem eru eftirfarandi:
Félagið átti þrjá fulltrúa í
B-úrslitum í A-flokki: Björg
Ingólfsdóttir & Kjuði frá
Dýrfinnustöðum (8,75), Guð-
mar Freyr Magnússon og Rosi
frá Berglandi 1 (8,71) og Pétur
Örn Sveinsson með Hlekk frá
Saurbæ (8,61).
Í A-úrslitum voru félagarnir
Þórarinn Eymundsson og
Þráinn frá Flagbjarnarholti með
einkunnina 8,91 og hlutu þar
með fjórða sæti í flottum
úrslitum.
Í B-flokki ungmenna var
Katrín Ösp Bergsdóttir með
Ölver frá Narfastöðum (8,31)
og í A-úrslitum átti félagið tvo
fulltrúa; Freydísi Þóru Bergs-
dóttur og Ösp frá Narfastöðum
(8,49) og Stefaníu Sigfúsdóttur
með Lottó frá Kvistum (8,60).
Í barnaflokki var Hjördís
Halla Þórarinsdóttir í B-úrslit-
um og stóð sig vel með hestinn
sinn, Flipa frá Bergsstöðum.
Í skeiðgreinum voru veður-
aðstæður ekki upp á sitt besta
en Daníel Gunnarsson og
Eining frá Einhamri 2 voru í
fjórða sæti í 250m skeiði og fóru
á tímanum 7,86 í 100m skeiði.
Mette Mannseth og Vívaldi frá
Torfunesi fóru 100 metrana á
7,76 sekúndum sem var sjöunda
sæti.
Í tölti átti Skagfirðingur þrjá
fulltrúa; Finnbogi Bjarnason og
Katla frá Ytra-Vallholti voru
næst inn í B-úrslit með
einkunnina 7,37, Þórdís Inga
Pálsdóttir og Fjalar frá Vakurs-
stöðum (6,83) og Mette Mann-
seth með Skálmöld frá Þúfum
(6,80).
Í fjórgangi voru Mette
Mannseth & Skálmöld frá
Þúfum (7,17), Eyrún Ýr
Pálsdóttir & Veröld frá Dalsholti
(7,17) og Lea Busch & Kaktus
frá Þúfum (6,97).
Í slaktaumatölti voru Mette
Mannseth & Blundur frá Þúfum
í A-úrslitum (7,63).
Í gæðingaskeiði var Guðmar
Freyr með Vináttu frá Árgerði í
fimmta sæti með einkunnina
7,17 og Bjarni Jónasson með
Elvu frá Miðsitju með 6,63,
Gísli Gíslason með Trymbil frá
Stóra-Ási og Daníel Gunnars-
son með Strák frá Miðsitju.
Sem ræktendur stóðu félags-
menn sig einnig vel, með hátt
dæmd hross í öllum aldurs-
flokkum. Skagfirskir stóðhestar
stóðu sig vel og tóku fjórir
hestar við afkvæmaverðlaunum.
Fyrstu verðlaun fyrir afkvæmi
hlutu Knár frá Ytra-Vallholti (3.
sæti) og Lord frá Vatnsleysu (6.
sæti). Heiðursverðlaun fyrir
afkvæmi hlutu Hrannar frá
Flugumýri og Trymbill frá
Stóra-Ási.
Einnig hlaut Björg Ingólfs-
dóttir Øder Cup en það eru
sérstök verðlaun til minningar
um Einar Øder. / PF
Björg Ingólfsdóttir og Kjuði frá Dýrfinnustöðum með Øder Cup, sérstök verðlaun til
minningar um Einar Øder. MYND AF FB-SÍÐU SKAGFIRÐINGS
Í ár verður Druslugangan gengin í fyrsta sinn á Sauðárkróki.
Föstudagurinn 22. júlí klukkan 20:00 - Daginn fyrir göngu
Prepp kvöld á Grand-Inn Bar and Bed. Þar verður hægt að búa til skilti fyrir
gönguna og kaupa einhvern varning. Til staðar verður efniviður í skiltagerð -
spjöld, prik, málning, tússpennar, osfrv. Það má líka koma með sitt eigið.
Laugardagurinn 23. júlí - Druslugangan
Mæting klukkan 11:30 á planið við Árskóla þar sem gosdrykkir í boði
Hlíðarkaups verða á boðstólum, seldur varningur og deilt út skiltum ef einhver
verða afgangs.
Gengið verður frá Árskóla að Kaffi Krók klukkan 12:00. Að göngu lokinni verða
haldnar ræður, ljóðalestur og tónlistaratriði. Þau sem hafa áhuga á að halda
ræðu, flytja ljóð, syngja, spila og chanta geta haft samband við Tönju Ísfjörð í
gegnum samfélagsmiðla @tanjaisfjord eða á tanjaisfjord@gmail.com. "
Í ár verður Druslugangan gengin
í fyrsta sinn á Sauðárkróki
laugardaginn 23. júlí kl. 12:00.
Föstudagurinn 22. júlí
- Daginn fyrir göngu
Prepp kvöld kl. 20 á Grand-Inn Bar and Bed. Þar verður hægt
að búa til skilti fyrir gönguna og kaupa einhvern varning.
Til staðar verður efniviður í skiltagerð - spjöld, prik, málning,
tússpennar, osfrv. Það má líka koma með sitt eigið.
Laugardagurinn 23. júlí
- Druslugangan
Mæting kl. 11:30 á planið við Árskóla þar sem gosdrykkir í
boði Hlíðarkaups verða á boðstólum, seldur varningur og
deilt út skiltum ef einhver verða afgangs.
Gengið verður frá Árskóla að Kaffi Krók kl. 12:00.
Að göngu lokinni verða haldnar ræður,
ljóðalestur og tónlistaratriði.
Þau sem hafa áhuga á að halda ræðu, flytja ljóð,
syngja, spila og chanta geta haft samband við
Tönju Ísfjörð í gegnum samfélagsmiðla
@tanjaisfjord eða á tanjaisfjord@gmail.com
2022
Auglýsing um skipulagsmál
Byggðaráð Skagafjarðar samþykkti á 6. fundi sínum þann 13. júlí 2022
að auglýsa skipulagslýsingu fyrir gerð deiliskipulags íbúðarbyggðar á
Steinsstöðum í Skagafirði 40 gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Framlögð skipulagslýsing fyrir deiliskipulag íbúðarbyggðar á Steinsstöðum
í Skagafirði unnin af Stoð ehf. verkfræðistofu. Skipulagssvæðið nær yfir 3,8
ha svæði sem afmarkast af landamerkjum Steinsstaða og Reykja að norðan,
Steinsstaðarskóla og félagsheimilinu Árgarði að vestan, Merkigarðsvegi (7575)
að austan og hnitsettum landamerkjum að sunnan. Innan skipulagssvæðisins er
íbúðarbyggð sem samanstendur af einbýlishúsum auk grænna svæða.
Skipulagslýsingin er auglýst frá 20. júlí til og með 24. ágúst 2022.
Skipulagslýsingin mun liggja frammi til kynningar á skrifstofu skipulagsfulltrúa,
Skagfirðingabraut 17-21, Sauðárkróki á skrifstofutíma frá 10-12 og 12:30-15 og á
heimasíðu Skagafjarðar www.skagafjordur.is. Ábendingar varðandi tillögugerðina skulu
vera skriflegar og berast afgreiðslu ráðhússins, Skagfirðingabraut 17-21, 550 Sauðárkróki
eða á netfangið skipulagsfulltrui@skagafjordur.is
í síðasta lagi 24. ágúst 2022.
28/2022 3