Feykir


Feykir - 20.07.2022, Side 4

Feykir - 20.07.2022, Side 4
VERKFRÆÐISTOFA BIFREIÐAVERKSTÆÐI KILJAN G U E S T H O U S E www.kiljanguesthouse.com Eldur í Húnaþingi hefst formlega í dag með setningarhátíð við Félagsheimilið á Hvammstanga klukkan 17:30. Eftir setningar- athöfnina verður alþjóðamatur í Félagsheimilinu, í boði hinna ýmsu þjóðarbrota Húnaþings vestra. Þá munu harmonikkuspilarar Húnaþings vestra sömuleiðis stíga á stokk. Forskot var tekið á gleðina í gær þegar unglistarmót í pílukasti fór fram en fjöldi atburða verður á dagskrá alla daga fram á sunnu- dag sem of langt mál er að nefna hér. Áhugasömum er bent á að kynna sér hina glæsilegu dagskrá á heimasíðu hátíðarinnar, eldurihun.is, eða á Facebooksíðu. Einnig er dagskrárblaði dreift í hús í Húnaþingi vestra í Elds- vikunni. Þetta ku vera í 20. skiptið sem hátíðin er haldin en hún hefur farið fram árlega allt frá árinu 2003. Á heimasíðu Eldsins kemur fram að fyrst um sinn hafi hátíðin verið sett upp sem unglistahátíð og þá bæði skipulögð og fram- kvæmd af ungi fólki í Húnaþingi vestra. „Með tímanum fékk hátíðin á sig fjölskyldu- og bæjarhátíðar- blæ og hefur dagskráin verið breytileg með ári hverju en hún ræðst oftar en ekki af áhugasviði stjórnenda. Dagskráin hefur oftar en ekki innihaldið fjölmarga tón- listarviðburði, námskeið, dans- leiki, viðburði með íþróttalegu ívafi, svo eitthvað sé nefnt. Mikil áhersla hefur verið lögð á að fólk á öllum aldri geti fundið eitthvað við sitt hæfi og að sem flestir viðburðir séu gestum að kostn- aðarlausu,“ segir á eldurihun.is. Þar kemur jafnframt fram að Eldur í Húnaþingi hafi mikið gildi fyrir íbúa Húnaþings vestra en hátíðin einkennist af mikilli sam- heldni meðal íbúanna þar sem þátttaka er lykilatriði. „Undirbúningur hefur gengið mjög vel, felst aðallega í að setja saman dagskrá bæði heimatil- búna sem og aðkeypta, fá skemmtikrafta á helstu stórvið- burði o.s.frv. og hefur það gengið framar vonum,“ segir Þórunn Ýr Elíasdóttir, ein umsjónarmanna hátíðarinnar en undirbúnings- nefndin samanstendur af nokkr- um íbúum Hvammstanga sem brenna fyrir því að halda góða og skemmtilega héraðshátíð. Hún segir það einstaklega ánægjulegt hvað allt heimafólk sé jákvætt gagnvart hátíðinni, hvort sem snýr að þátttöku í viðburð- um, setja saman viðburði eða annað. „Gaman að fá eldri- borgarastarfið sterkt inn með okkur þetta sumarið. Þau hafa verið með sitt eigið afdrep í hinu svokallaða VSP húsi í allan vetur og þar verður dagskrá allan Eldinn á þeirra vegum. Má þar sérstaklega nefna heimsmeistara- mótið i Kínaskák, boðið upp á kennslu í púkk, prjónakeppni og fleira, frábært að hafa þau með í liðinu. Er eitthvað nýtt sem boðið er upp á í ár og er eitthvað sem má segja að sé hápunktur hátíðar- innar? „Pílumót og -námskeið er haldið í fyrsta skipti í ár sem og áður nefnd spila- og keppnis- dagskrá og ekki hefur verið keppt í prjóni áður. Einnig verður sú nýbreytni að bjóða upp á messu í lok Elds og kvenfélögin bjóða svo til kökuhlaðborðs fyrir lítið fé sem rennur beint í þeirra góðu málefni. Fyrir mér eru allir punktarnir hápunktar.“ Þórunn Ýr segir það frábært að Eldur í Húnaþingi verði nú haldið í 20. sinn og alltaf með frábærlega flotta og góða dagskrá „Fullt af námskeiðum fyrir börn og fullorðna og öll námskeiðin fólki að kostnaðarlausu og má þá þakka stórfyrirtækjunum hér á svæðinu sem og Húnaþingi vestra ötulan stuðning í þágu hátíðar- innar sem gerir það kleift að halda öllum verðum í lágmarki.“ Tuttugasta hátíð Elds í Húnaþingi „Fyrir mér eru allir punktarnir hápunktar,“ segir Þórunn Ýr Við óskum íbúum Húnaþings vestra góðrar skemmtunar á Eldi í Húnaþingi 20.–24. JÚLÍ 2022 Í HÚNAÞINGI VESTRA ELDUR Í HÚNAÞINGI VIÐTAL Páll Friðriksson Í vor var íslenska snjallforritinu HorseDay hleypt af stokkunum en með forritinu fæst mikilvæg yfirsýn yfir þjálfun hesta og umhirðu, bein tenging við World- Feng og GPS skráning við þjálfun hesta og á hesta- ferðum líkt og þekkist innan annarra tómstunda auk samfélagsumhverfis fyrir íslenska hestinn. Rannsóknar- og menntastofnunin Háskólinn á Hólum á sér langa og virta sögu en háskólinn hefur gengið til formlegs samstarfs við HorseDay ehf. um að þróa áfram og nota snjallforritið HorseDay við þjálfun og kennslu við hestafræðideild háskólans. Snjallforritið er tól til utanumhalds um hestahaldið og til samskipta hestafólks eins og áður segir og opnar nýjan heim gagna og upplýsinga fyrir umhirðu hestsins sem getur skipt sköpum fyrir eigendur hesta. Um er að ræða nýsköpunarverkefni sem hefur verið í þróun sl. 2 ár. Hólmfríður Sveinsdóttir, rektor Háskólans á Hólum, og Oddur Ólafsson, framkvæmdastjóri HorseDay ehf., innsigluðu samstarfið á landsmóti hestamanna í liðinni viku. „Það er virkilega ánægjulegt að nútíminn mæti þessum gamla kjarna íslensku hestamennskunnar með þessum tæknilega hætti en ég hef trú á því að þannig náum við að byggja enn frekar undir áhuga á íslenska hestinum,“ segir Hólmfríður. Ætlunin er að aukin útbreiðsla notkunar á HorseDay hafi jákvæð áhrif á hestamennskuna og verði grunnur til eflingar rannsókna- og þróunar- verkefna við skólann. /Fréttatilkynning Íslenska smáforritið HorseDay Notað við kennslu í Háskólanum á Hólum 4 28/2022

x

Feykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.