Þjóðólfur - 01.03.1943, Síða 4
- 4 -
K V E U-F -ó L K I B.
Konan er hið stóra spurningarmerki
nútímans sagði enslmr spekingur, Stuart
Mill að nafni. Mikið felst í ]pessum
oroum. Konan er og verður hið stora
spurningarmerki allra tíma.
NÚ ætla ég að reyna að lýsa hinum
ungu og fallegu stulkum í Gagnfræðaslcóla
Eeykjavík±aga,lífi Jieirra og daglegum
háttum. Allar eru hsr fallegar, eins og
áður segir, allar eru þær nokkuð feitar
nema ein, er Hrefna heitir, eða í einu
orði sagt; Þær eru, prýddar öllum hinum
Irvenlegu dyggðum. Þær fara snemma á
fætur, koma aldrei of seint í skólann.
Þær eru vel lesnar undir hvern einasta
txma, eins og dæmin sýna. Á Þjóðólfs-
fundum komast strákarnir ekki að að tala,
því að stúlkurnar eru hinir mestu ræðu-
skörungar. Þær sskja svo vel fundi, að
piltarnir komast elcki einu sinni inn í
anddyri haðstofunnar; þar er svo yfir-
fullt af hinum ungu stúlkum. Meira
segja uppi á loftsbitunum í baðstofunni
sést ung stúlka ur lsta bekk, er Erna
heitir, vera að sýna "akrobatik",
Núverandi stjóm "Þjóðólfs" er mjög
hrædd um, að næsta stjórn málfundafélags-
ins verði eins og á Krít fyrir 2000 árum
vegna hinnar síauknu aðsóknar stúlloianna
að "Þjóðólfsfundum".
1 dansæfingar aftur á móti koma
£>ær varla. Þær hata allar skemmtanir,
heldur sitja þær heima og spinna á rokk
langömmu sinnar salugu eða lesa nolckra
kafla úr biblíunni, Ef svo skyldi fara,
að |>ær vildu "lyfta sór upp" og fara á
dansæfingar, þá er allt daður fordæmt,
og piltarnir eru búnir að gleyma hvernig
"vangadans", er, Þeir eru þess vegna
hættir að raka sig, áður en þeir fara á
dansæfingar á laugardagskvöldin, Kirkju-
ræknar eru þær með afbrigðum, og það er
gaman að sjá þær fara í hópgöngu £ kirkju
í nýjum ullarsokirum. Þær syngja sálma
og biðjast fyrir, áður en þær fara x
rúmið á kvöldin. Fjöldamargar eru í
K.F.U.K., Betaníu og að ógleymdum Hvíta-
sunnusöfnuðinum.
í daglegri umgengni eru þær lcurteis-
ar og alúðlegar með afbrigðum, og má með
sönnu segja, að hjá stúlkum þeim, er
nemendur eru £ G.R., fari allir hinir
kvenlegu kostir saman. Formaður mál-
fundafélagsins er búinn að koma nýjum
dagskrárlið inn í hina fjölbreyttu dag-
skrá "Þjóðólfs", en það er bæn, sem
hann biður fyrir hinum ungu stúlkum
"Þjóðólfs", og er svona; "Ó þér ungu
stúlkur í G.R.J Meðtakið lof og prís
fyrir jþað, hvað þið hafið sótt"Þjóðólfs
fundi vel í vetur", Bæn þessa biður
formaður í byrjun funda, og er tilkomu-
mikil sjón að sjá hamn gjéta tárvotúm
augum til himins (út um þakgluggan).
Þess skai getið, að bæn þessi er miklu
lengri, þegar hún er öll.
Pix Pammar.
-B Ó K A S A F N.
=3 =3 =3 = =: JS =3 = = = = = =3;S= es
Bokasafn vantar tilfinnanlega í
þennan skóla og vil ég nú beina því til
nemenda G.R. hvort ekki sé tiltækilegt
að stofna bókasafn sem nemendur gætu
leitað til í frístundum sínum. Mér
finnst orðið of áliðið þessa skólavetr—
ar svo hægt sé að hefjast handa nú um
stofnun bókasafns, og kemur þá til
kasta þeirra sem stjórna skemmtanalífi
skólans næsta vetur, eg vona að þeir
taki þetta til athugunar, þá sérstak-
lega stjórn Þjóðólfs. Ég legg til að
fjár til bókakaupa verði aflað á þann
hátts l) að ágóði blaðsins Þjóðólfs
verði varið í þessu skyni, 2) ágóðinn
af dansæfingum skólans og 3) að hver
nemandi léti 5 kr. af hendi rakna á
skólavetri. Ef þetta kæmist í fram-
kvæmd þyrfti að skipa sérstaka nefnd
sem væri hæf-^að velja bækur, sem nem-
endur hefðu ánægju af að lesa. Vonandi
tekst þessi stofnun bókasafns, ef ráð
er^í tíma tekið strax í byrjun næsta
skólavetrar.
Jón G.
Tapazt hefir harðjaxl úr Sigurði
Hauki. Finnandi vinsamlegast skili
honum til umsjónarmanns. II. A.
ooOoo