Kaupsýslutíðindi


Kaupsýslutíðindi - 24.04.1940, Qupperneq 1

Kaupsýslutíðindi - 24.04.1940, Qupperneq 1
KAUPSYSLUTIÐINDI ÚTGEFANDl: UPPLÝSINGASKRIFSTOFA ATVINNUREKENDA Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Geir Gunnarsson, Laugavegi 19, sími 5314. Viðtalstími kl. 1—2 daglega. — Blaðið kemur út vikulega nema þegar réttarhlé standa yfir. Árgangurinn (ca. 40 tbl.), kostar kr. 27.00, eða kr. 28.00, ef greitt er ársfjórðungslega eða hálfsárslega. — Meðlimir Félags íslenzkra stórkaupmanna fá Kaupsýslutíðindi ókeypis samkvæmt samningi við stjórn félagsins. — HERBERTSprení prentar. Nr. 14. REYKJAVÍK, 24. APRÍL 1940. 10. ÁRG. YFIRLIT Utanríkismái. Undanfarandi stríðsatburðir virðast ætla að verða þess valdandi að um helmingur innflutnings- og útflutningsmarkaða okkar lokist. Eftir fregnum að dæma eru siglinga- leiðir til og frá Danmörku og Þýzkalandi al- geriega lokaðar og vafalaust er, að viðskipti okkar við Noreg og Svíþjóð faila niður á meðan barizt er í landi, í lofti og legi Nor- eg's. Og því verður ekki neitað, að við- skiptasambönd okkar við önnur lönd Ev- rópu eru mjög ótraust á timum sém þessum og óvíst hve lengi þeim verður haldið. Athyg'li íslendinga hefir því mjög beinzt að stofnun nýrra sambanda við Ameríku og þá einkum hin auðug'u Banda- riki, enda hafa viðskipti vor við þau vaxið mjög ört frá því stríðið skalt á og orðið fjölbreyttari með hverjum mánuði, sem líð- ur. Amerika hefir fram að bjóða því nær allar vörutegundir, sem við þurfum á að halda. Útfiutningsvörur okkar, sem að miklu leyti eru neyzluvörur, ætti að vera hægt að selja eingöngu þangað, ef kapp er Iagt á að afla þeirra markaða og þær gerðar útgengi- legar fyrir amerískan markað. Á síðasta ári nam samanlagður útflutn- ingur Bandaríkjanna 3.120 milj. dollurum, en innflutningur 2.300 milj. dollurum. Hag- stæður verzlunarjöfnuður nam því árið 1939 820 milj. doilurum, en árið á undan 2.034 milj. doil. Það er vafasamt hvort strið- ið hefir haft hagstæð áhrif á þjóðartekj- urnar í heild. Útflutningur til hernaðarþjóð- anna hefir ekki aukizt eins mikið og búizt hafði verið við. Þó er áætlað, að Banda- menn hafi um áramót verið búnir að semjá um kaup á hergögnum fyrir um 1 miljarð dollara og flugvélaiðnaðurinn hefir fjór- faldast að framleiðslugetu. Aftur á móti hefir útflutningur þeirra á vörum, sem ekki eru notaðar til hernaðar minnkað afar mik- ið og þýðingarmiklir markaðir þrengst mjög t. d. í Þýzkalandi. Álitið er þó, að Bandarík- in muni skapa sér nýja markaði í Suður- Ameríku í stað þeirra, sem Englendingar og Þjóðverjar hafa haft þar. Stríðið hefir hieypt nýju fjöri í atvinnufyrirtækin. At- vinnuieysingjar í Bandaríkjunum eru þó enn taldir vera um 8 miljónir, en voru 9—10 miljónir fyrir stríð. Mest hefir fram- ieiðslan aukizt á sviði stálsins. Er stál- framleiðsla þar meiri en hún hefir nokkru sinni fyrr verið. Byggingar hafa aukizt töluVert og bila- og járnbrautaframleiðsla hefir og aukizt til muna. Talið er að sala iðnframleiðslu hafi aukizt um 16% á öllu árinu, en á siðasta ársfjórðungi um 20—25%. Yfirleitt er talið að árið 1939 hafi verið hagstæðasta ár Bandaríkjanna síðan árið 1929 og útlit er fyrir að yfirstandandi ár verði enn hagstæðara þeim. Bandariskir bankar liggja inni með ónotað fjármagn meira en nokkru sinni fyrr og gullbirgðir þar í landi eru nú um 62% af gullbirgðum heiinsins. — Gengi erlends gjaldeyris. Gengisskráning hófst aftur hér á landi 16. þ. m. eftir skeytum frá New York. Fer

x

Kaupsýslutíðindi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kaupsýslutíðindi
https://timarit.is/publication/1798

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.