Kaupsýslutíðindi


Kaupsýslutíðindi - 24.04.1940, Qupperneq 2

Kaupsýslutíðindi - 24.04.1940, Qupperneq 2
hér á eftir gengi þess erlends gjaldeyris, Sem skráning fer nú fram á hér á landi, miðvikudaginn 24. þ. m. og til samanburð- ar 17. þ. m. og 26. marz þ. á.: 24./4. 17./4. 26./3. Sterlingspund . . 23.05 22.82 24.44 Fr. frankar .... 13.07 12.95 14.02 Belgar .......... 109.48 109.35 111.19 Sv. frankar .... 146.10 146.10 146.41 Gyllini . ....... 345.90 345.90 346.65 Mánudaginn 22. þ. m. kom ekkert gengis- skeyti hingað og mun gengið þá hafa verið skráð hér óbreytt. Gengi sterlingspundsins hefir farið daghækkandi síðan skráning hófst á ný og fr. frankinn fer einnig stig- andi. Aftur á móti hefir belgan lækkað snögglega. Ýms stéttartíðindi. Félag íslenzkra iðnrekenda hélt aðal- fund sinn 15. þ. m. í stjórn voru kosnir: Sigurjón Pétursson, Álafossi, formaður, J. B. Pétursson, frkvstj., ritari, og Magnús Thorsteinsson, frkvstj., gjaldkeri. í félaginu eru nú 54 iðnfyrirtæki. Skrifstofa þess er í Skólastræti 3. Victor Kr. Helgason, áður prókúruhafi fyrir h.f. Veggfóðrarann, liefir nýlega opn- að veggfóðurverzlun í Hafnarstræti 5. Magnús Kjaran stórkaupm. varð fimmtug- ur 19. þ. m. Kjaran er einn af bezt metnu mönnum íslenzku kaupmannastéttarinnar. Hefir hann gegnt ýmsum ábyrgðarmiklum störfum, bæði fyrir stétt sína og þjóð, og hlolið sóma af. Hann er nú framkvæmda- stjóri sambands isl. innflytjenda, jafnframt því sein hann rekur sína eigin heildverzlun. Félagsprentsmiðjan á fimmtíu ára afmæli 1. mai n. k. Stofnandi hennar var Sig- mundur Guðmundsson prentari. Prentsmiðj- an var rekin sem sameignarfélag til árs- ins 1937, að henni var breytt í hlutafélag. Hefir hún verið í stöðugum vexti og er nú einhver fullkomnasta og vinsælasta prent- smiðja landsins. Núverandi prentsmiðju- stjóri er Hafliði Helgason. Gullið. Eftirfarandi tölur sýna heimsframleiðsl- una á gulli síðustu tíu ár (Sovét-Rússland er undanskilið): Ár Þús. dollarar Ár Þús. dollarar 1930 401.088 1935 882.533 1931 426.424 1936 971.514 1932 458.102 1937 1.041.576 1933 469.257 1938 1.132.856 1934 823.003 1939 1.206.331 Af samanlögðum gullforða heimsins er nú um 17.600 milj. dollara verðmæti, eða nálægt 62% af gullbirgðum heimsins, í Bandaríkjunum. Gullflutningur þangað, ein- göngu síðastliðið ár, nam að verðmæti um 3.500 milj. dollurum. Ein únsa af skíru gulli var inetin á 20.67 dollara fram til ársins 1934, en síðan í byrjun þe'ss árs hefir hún verið metin á 35 dollara. Js. i: KAUPHÖLLIN <; zv miösföð vEröbrÉfaviöskiptanns í landinu. Leiðbeinir fóiki með ávöxtun fjár á öruggum grundvelli. <\ Öll viðskipti skoðuð sem einkamáL Íj 5ími 3780 KAUPHÖLLIN iiaínarsfp. 23 »♦»♦»»♦♦♦♦♦♦»♦♦♦♦♦»♦♦»♦»♦♦»»»»♦♦»♦»»♦♦♦♦»♦♦♦»♦»♦♦♦♦♦»»♦♦♦♦♦»♦♦» 106 kaupsýslutíðindi

x

Kaupsýslutíðindi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kaupsýslutíðindi
https://timarit.is/publication/1798

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.