Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 10.09.2021, Blaðsíða 3

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 10.09.2021, Blaðsíða 3
2 Framkvæmdafréttir nr. 713 5. tbl. 29. árg. Framkvæmdafréttir nr. 713 5. tbl. 29. árg. 3 ↓ Mynd frá framkvæmdum. Gamli og nýi vegurinn mætast. Ekki fornt heiti Sumir gætu haldið að Biskupsbeygjan dragi nafn sitt af fornum biskupum eða náttúrufyrirbrigðum á Holtavörðuheiði en svo er víst ekki. Sagan segir að biskup Íslands hafi eftir miðja síðustu öld lent þar útaf í hríð og snjó og setið fastur. Þá hafi komið þar Fundu gamla brú Reynir segir framkvæmdir hafa gengið nokkuð vel og framkvæmdatími hafi staðist nokkurn veginn. Spurður hvort eitthvað óvænt hafi gerst rifjar hann upp að verktakinn hafi þurft að fara yfir námu sem ekki var vitað af áður. Þar hafi fundist gömul steypt brú. „Brúin hafði verið urðuð í námunni og þessi fundur kom okkur dálítið á óvart. Við þurftum að fjarlægja brúna og farga henni.“ Hann segir að einn lærdóm hafi menn dregið af framkvæmdinni. „Við þurfum að standa okkur betur í að hanna og leggja hjáleiðir,“ segir hann en hjáleiðin var lögð og klædd áður en frost fór úr jörðu. „Þegar hlýnaði fór hún illa og erfitt var að halda henni við enda nokkur þungaumferð um heiðina.“ Umferðin gekk hægt um framkvæmdasvæðið en sett var á 30 km hámarkshraði vegna ástands hjáleiðarinnar. Framkvæmdin hafði því töluverð áhrif á ökumenn, sér í lagi þegar umferðarþungi var mikill en samkvæmt umferðartölum frá árinu 2018 er umferðin á þessum stað 2.400 bílar á sólarhring yfir sumartímann. að bílstjóri Norðurleiðar og bjargað biskupi. Varð þá til þetta heiti sem síðan hefur ratað víða, meðal annars í samgönguáætlun og dagbækur lögreglunnar enda tíð slys á vegkaflanum. ↑ Opnað var fyrir umferð á nýja kaflanum í júlí.

x

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar
https://timarit.is/publication/1142

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.