Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 10.09.2021, Blaðsíða 8

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 10.09.2021, Blaðsíða 8
8 Framkvæmdafréttir nr. 713 5. tbl. 29. árg. Framkvæmdafréttir nr. 713 5. tbl. 29. árg. 9 Mathilde er frá Bretaníu í Frakklandi en flutti til Íslands fyrir fjórum árum. Hún vinnur hjá leikmyndadeild Þjóðleikhússins en notar frítímann til ferðast um landið og mála myndir af vitum. „Ég keypti landakort af Íslandi síðsumars 2018. Við strandlengjuna voru merktar inn rauðar stjörnur sem vöktu strax athygli mína. Þegar ég uppgötvaði að stjörnurnar voru tákn fyrir vita ákvað ég að skoða þá alla og teikna myndir af þeim, sem ég mála síðan með vatnslitum,“ segir Mathilde, um tilurð þessa verkefnis sem hún kallar Viti Project. Kynnist landinu í gegnum vitana Málar vatnslitamyndir af vitum Franska listakonan Mathilde Morant hefur málað vatnslitamyndir af nær öllum vitum landsins. Hún fékk lista yfir vitana hjá Vegagerðinni áður en hún dró fram pensilinn og hófst handa við verkefnið. Hún hefur orð á því að tilgangurinn sé í raun tvíþættur; að kynnast landinu og æfa sig í teikningu. Fyrsti vitinn sem Mathilde málaði mynd af heitir Svörtuloftaviti en hann stendur við sjávarhamrana Svörtuloft, vestast á Snæfellsnesi. „Hver viti er einstakur. Þótt margir þeirra séu líkir hvað arkitektúr varðar er landslagið í kringum þá afar fjölbreytilegt. Það heillar mig að þeir eru úr alfaraleið, jafnvel á stöðum þar sem aðstæður geta verið hættulegar,“ segir hún. Heimild: Vitar á Íslandi, Leiðarljós á landsins ströndum 1878-2002. Höfundar: Guðmundur Bernódusson, Guðmundur L. Hafsteinsson og Kristján Sveinsson. Útgefandi: Siglingastofnun. ↓ Klofningsviti er á skerinu Klofningi vestan við Flatey á Breiðafirði. Hann var byggður árið 1926. Aðeins er hægt að komast að honum sjóleiðina.

x

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar
https://timarit.is/publication/1142

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.