Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 10.09.2021, Page 5
4 Framkvæmdafréttir nr. 713
5. tbl. 29. árg.
Framkvæmdafréttir nr. 713
5. tbl. 29. árg.
5
↑
Fundarherbergi á annarri hæð heita eftir fornum leiðum og
höfnum. Fróðleikur fylgir um nafn hvers fundarherbergis.
↓
Nýtt mötuneyti fékk nafnið Veganesti.
←
Básar á kaffistofu þriðju hæðar.
Fundað í vitum, veðri og
fornum leiðum
Samkeppni um nöfn á fundarherbergi var haldin
meðal starfsmanna Vegagerðarinnar. Niðurstaðan
var sú að hver hæð er tengd ákveðnu þema í anda
Vegagerðarinnar. Á fyrstu hæð heita fundarherbergi
eftir veðurlýsingum, til dæmis Éljagangur, Snjókoma,
Skafrenningur og Sunnanvindur. Á annarri hæð er
þemað fornar leiðir á sjó og landi. Þar má finna nöfn á
borð við Kiðagil, Kóngsveg, Maríuhöfn og Orrustukamb.
Á þriðju hæð er vitaþema þar sem fundarherbergi heita
eftir vitum á borð við Gróttuvita, Straumnesvita og
Hornbjargsvita.
Þrjú félagsrými eru í húsinu. Mötuneytið ber
heitið Veganesti, á annarri hæð má finna Hafnakaffi
og á þeirri þriðju Vitakaffi. Í miðju hússins er fallegur
innigarður, pallalagður með tveimur trjábeðum.
Flutningur starfseminnar hefur staðið yfir í sumar.
Flutt var í skrifstofuhlutann í júlí en smám saman er
unnið að því að flytja lagerinn og allt sem tilheyrir
grófrýmum og útisvæði. Vaktstöð Vegagerðarinnar
hefur fengið andlitslyftingu með nýjum tækjabúnaði og
er stefnt að því að starfsemin verði komin í fullan gang í
lok september.