Nýja skákblaðið - 01.06.1940, Qupperneq 7

Nýja skákblaðið - 01.06.1940, Qupperneq 7
Nýr skákmeistarí og gamall. Flestix íslendingar, sem að einhverju leyti hafa fylgst með og viljað fylgjast með viðburð- um í athafnalífi þjóðarinnar, hafa vafalaust ekki komist hjá Eggert Gilfer. því að veita skáklífinu talsverða athygli, sérstaklega þegar þess er gætt, að þjóðin sem heild, er tilfinninganæm, listhneigð og framgjörn, og skáklistin er henni þar af leiðandi að nokkru leyti meðfædd og hefir með þróun sinni fest djúpar rætur í sál íslenzku þjóðarinnar. Meðal íslenzkra skákmanna munu sjálfsagt fáir finnast, sem eru jafn þekktir og vakað hafa á vörum þjóðarinnar um langt skeið og hinn gamli og nýi skákmeistari Eggert G. Gilfer, er nú um þessar mundir á 25 ára afmæli sem skák- meistari íslands, og hefir á því tímabili unnið þann titil átta sinnum, sem er alveg einstakt í sinni röð. Það væri vissulega of yfir- gripsmikið að rekja allan skák- feril Gilfers og lýsa skákstíl hans hér svo nokkru nemi. Skal því aðeins talið það helzta, þó hitt væri sannarlega bæði æski- legt og viðeigandi. Tíu ára gamall byrjaði Gilf- er fyrst að fást við skákiðkun. Þegar hann var 23 ára, vann hann titilinn „Skákmeistari ís- lands“ í fyrsta sinn. Síðan hefir hann unnið þann tilil árin 1917, 1918, 1920, 1925, 1927, 1929 og 1935 eða alls átta sinn- um. Ennþá sem komið er, hefir enginn unnið þennan titil eins oft og Gilfer. Þeir, sem næstir honum koma, hafa unnið hann þrisvar. Má það tvímælalaust kallast afreksverk og er óhætt að fullyrða, að „fáir munu eftir leika“. Gilfer hefir sem fulltrúi fyrir ísland á erlendum skákmótum æfinlega haft það hlutverk að tefla á I. borði. í Oslo 1928, Gautaborg 1929, Ham- NÝJA SKÁKBLAÐIÐ 35

x

Nýja skákblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýja skákblaðið
https://timarit.is/publication/1803

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.