Nýja skákblaðið - 01.06.1940, Qupperneq 11
5KÖKIR
SKÁKÞING ÍSLANDS 1940.
19. Drottningarbragð.
Hvítt: Jóhann Snorrason.
Svart: Sæmundur Ólafsson.
1. d2—d4 d7—d5
2. c2—c4 e7-—e6
3. Rbl—c3 5Ö CTQ CO 1 Hb 05
4. Bcl—g5 Bf8—e7
5. Rgl—f3 Rb8—d7
6. e2—e3 0—0
7. Bfl—d3 a7—a6
Þessi leikur er kenndur við
Iienneberger og gefur svörtu
góða möguleika svo fremi að
hvítt ekki leiki. 8. cXd5, en ef
hvítt gerir það, verður peða-
staða svarts á drottningarvæng
óheppileg fyrir endtafl.
8. b2—b3
Hvítt kannast ekki við regl-
una að drepa og fær því fljótt
ýmislegt að hugsa um.
8. —o— d5Xc4
9. b3Xc4 c7—c5!
Tilganginum með a7—a6 er
hér með náð, en það er að geta
með góðum árangri leikið c7—
c5 í stað þess venjulega að leika
c7—c6 og síðan e. t. v. c6—c5
10. o o b7—b6
11. Rc3—e4 Bc8—b7
12. Re4xf6 Rd7xf6
13. Hal—bl c5Xd4
14. e3Xd4 Bb7Xf3!?
39
Þessi leikur svarts er að
ýmsu leyti varhugaverður;
hann veikir að vísu miðpeðin
hjá hvítu og orsakar stakt tví-
peð á f-línuna, en hins vegar
getur opnun g-línunnar brugð-
ist til beggja vona, þar eð hvítt
á biskupapar, sem getur í sam-
vinnu við hrók á g-línunni orð-
ið hættulegt.
15. g2Xf3 h7—h6
16. Bg5—e3?
Vafalaust óheppilegur leikur,
betra var Bg5—h4 og síðan til
g3 til þess að tryggja kongs-
stöðuna. Hvítt vill hins vegar
styrkja miðpeðin, sem er held-
ur ekki ástæðulaust.
16. —o— Be7—d6
Svart vill auðvitað strax ráð-
ast á kongsstöðuna.
17. Ddl—d2? Rf6—h5
18. HblXb6
Hvítt verður nú þegar að fara
út í neyðarvörn. Hann fórnar
skiptamun til þess að ná svarta
biskupnum.
18. —o— Dd8xb6
19. c4—c5 Db6—c7
Verra var Bd6Xc5, því þá
fær hvítt frípeð, sem getur orð-
ið skeinuhætt.
20. c5xd6 Dc7Xd6
21. Be3Xh6 e6—e5!
Auðvitað ekki g7xh6 vegna
Dd2xh6 og svart kemst í
vanda.
22. Bh6—e3 e5xd4
NÝJA SKÁKBLAÐID