Nýja skákblaðið - 01.06.1940, Page 15

Nýja skákblaðið - 01.06.1940, Page 15
Guðbjartur V. Vigfússon. Minningarorð. Guðbjartur Vilberg Vigfús- son, skákmeistari, andaðist að Kristneshæli 27. febrúar síðast- liðinn, og var banamein hans hjartalömun. Hann var fædd- ur á Húsavík 4. febrúar 1912, sonur hjónanna Helgu Þórar- insdóttur og Vigfúsar Vigfús- sonar trésmiðs. Eftir því, sem mér hefir verið sagt, var Guð- bjartur heitinn allt frá fæðingu og til hins síðasta veill á heilsu, enda svo bæklaður, að hann var lítt fær til vinnu. Guðbjartur var góðum gáfum gæddur, vel- viljaður, réttsýnn og hvers manns hugljúfi er honum kynntist. Fyrstu kynni mín af Guðbjarti, sem manni og skák- manni, voru, er hann kom hing- að til Akureyrar árið 1935 til að taka þátt í skákþingi íslend- inga, er þá var hér háð. Komu þá þegar í ljós ágætir hæfileik- ar hans sem skákmanns, enda þótt hann næði ekki þeim á- rangri, sem efni stóðu til. Eftir þetta tók hann þátt í öllum skákþingum, sem hér hafa ver- ið haldin — og sótt voru af utanbæjarmönnum. Var hann jafnan með þeim efstu eða þá efstur. Skákmeistari Norðlend- inga var Guðbjartur 1938, en er hann kom hingað 1939, til að verja meistaratign sína, var hann orðinn maður sárþjáður, samt sem áður byrjaði hann sem þátttakandi í þinginu og vann allar þær skákir, er hann tefldi, mjög glæsilega. Ekki gat hann þó lokið þessari keppni, sem var hans síðasta, þar sem hann að læknisráði varð að hætta og fara sem sjúklingur að Kristneshæli, en þar andað- ist hann, eins og áður er getið, eftir eins árs dvöl. Við, sem um nokkurra ára skeið höfðum tækifæri til að kynnast Guð- bjarti heitnum — og að þreyta við hann kapp við skákborðið, munum æfinlega geyma minn- inguna um hann sem glæsileg- an skákmann og hinn bezta dreng í hvívetna. Guðm. Guðlaugsson. Skákin, sem hér birtist, var tefld á Skákþingi íslands, Akureyri 1937. Hvítt L. Engels. Svart: Guðbjartur Vigfússon. 25. Slavnesk vörn. 1. d2—d4 d7—d5 2. c2—c4 c7—c6 3. Rgl—f3 Rg8—f6 4. Rbl—c3 d5Xc4 5. e2—e4? Betra er a2—a4. 43 NÝJA SKÁKBLAÐIÐ

x

Nýja skákblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýja skákblaðið
https://timarit.is/publication/1803

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.