Þingtíðindi um starf Sósíalistaflokksins á Alþingi - 07.05.1941, Blaðsíða 4
4
ÞINGTIÐINDI
Efefeí nóg í ílofekssjóöínn
Spillingin í embættakerfi ríkisins
er á flestra vitund. „Embætti eöa
stöðu fær þú ekki karl minn, nema
þú gerist minn maöur“ er viðkvæðf
valdhafanna. Um hæfni manna
í stöður og embætti er yfirleitt ekki
lengur spurt. Borgirðu nóg í flokks-
sjóð — sértu með þjóðstjórninni í
gegnum þykkt og þunnt og sértu
með í að ofsækja kommúnista —
þá er allt í lagi.
Nýjasta afhjúpunin á kerfi þess-
arar spillingar er að finna í erindi
sem Einar M. Einarsson fyrrv. skip-
herra á Ægi, sendir Alþingismönn-
um og dagsett er 21. apríl 1941.
Á bls. 20 segir Einar meðal ann-
ars:
„Hinn 20. desember 1939 átti ég
símasamtal við herra alþingismann
Jónas Jónsson. Snerist samtalið um
frávikningu mína úí skipherra-
stöðu á varðskipinu „Ægi“. Vék
hann meðal annars að tiiefninu til
þeirrar ráðstöfunar og sagði að
mér hlyti aö vera það ljóst, að
„framkoma þeirra“ — eins og hann
sagði orðrétt — gagnvart mér staf-
aði af því einu, að ég hefði ekki
viljað láta nóg í flokkssjóð þeirra
af mínum háu launum. Með orðinu i
þeirra, á síðari staðnum, getur þar
sem alkunnugt er í hvaða stjórn-
málaflokki Jónas Jónsson er, ekki
verið átt við aðra en Framsóknar-
flokksmenn.
Ég lýsi því yfir að viðlögðum
drengskap mínum, að ofangreind
frásögn sé rétt í alla staði, enda er
ég fús til að staðfesta hana með
eiði fyrir rétti, ef þörf gerist“.
Á bls. 2 segir svo:
„Eftir því sem Pálmi Loftsson
forstjóri talaði oftar við mig um að
víkja af ,,Ægi“, varð sókn hans á-
kveðnari og harðvítugri, og loks
þegar ég aftók með öllu að fara af
skipinu í kyrrþey t. d. með því,
eins og forstjórinn ráðlagði mér, að
látast vera veikur, eða biðja um
tveggja til þriggja mánaða frí,
hafði hann í hótunum við mig,
meðal annars með því að stöðva
launagreiðslu til mín o. fl.“
Einar M. Einarsson, skipherra
hefur síðan í des. 1937, eða í rösk
3 ár setið í landi aðgerðarlaus og
á eftir að sitja í önnur þrjú á full-
um skipherralaunum, en krefst 1
bréfi sínu að fá að vinna fyrir
launum sínum, þar eð hann af á-
stæðulausu hafi verið látinn ganga
úr skiprúmi.
Auk þess að ríkið missir, við þetta
tiltæki Jónasar og kumpána, með
Einari einn sinna ötulustu og sam-
vizkusömustu starfsmanna, verður
ríkissjóður að greiða honum full
laun 1 6 ár.
Ríkið bíður stórtjón, en af erindi
Einars verður ekki betur séð, en að
það sé fyrir atbeina brezkra tog-
araútgerðarfélaga, sem kvörtuðu
við ríkisstjórnina undan því að
Einar ynni þeim ógagn vegna trú-
mennsku í starfi sínu, að hann var
látinn hætta. Það spursmál er að-
eins óupplýst hvort Framsóknar-
flokkurinn og forsprakkar hans,
hafa beðið fjárhagslegt tjón vegna
mannaskiptanna.
Enn þegja þjóðstjórnarblöðin um
þetta mál. Hvað veldur?
Fjárlög fyrír 1942 af-
greídd fíl þrídju um-
rasðu
Annari umræðu fjárlaganna lauk
í gær. Þingmenn Sósíalistaflokks-
ins báru fram ýmsar breytingartil-
lögur til hækkunar framlagi til
verklegra framkvæmda, en þær
voru allar kolfeldar.
Mesta athygli vakti, að tillaga
fjárveitinganefndar um dýrtíðar-
uppbót á útgáfuíyrirtæki Þjóðvina-
félagsins, fékk ekki nema 24 atkv.,
11 greiddu atkvæði gegn, en aðrir
þingmenn sátu hjá eða voru fjar-
verandi. Túlka menn undirtektirn-
ar við tillögu þessa á þann veg að
gengi Jónasar frá Hriflu sé lækk-
andi, jafnvel meðal þingmanna.
Píngmenn Sósíalísta-
flokksíns fara fram á
útvarpsumræöur um
fjárlögín
Þingmenn Sósíalista hafa skrifaö
forseta sameinaðs þings bréf,- þar
sem þeir fara þess á leit að hann
leiti samþykkis þingflokkanna fyrir
því, að útvarpsumræður verði hafð-
ar við 2. eða 3. umræðu fjárlag-
anna. í bréfi þessu benda þeir á
að þeir telji brotin lög á sér, ef
þessar útvarpsumræöur verða ekki
leyfðar, þar sem þingsköp Alþingis
mæli svo fyrir að útvarpa skuli
framhaldi 1. umræðu fjárlaga, en
það var ekki gert að þessu sinni.
Annari umræðu fjárlaganna er
nú lokiö, en aðeins tveir flokkar
hafa svarað, það eru Alþ.fl. og
Bændaflokkurinn. Svar Alþýðufl.
kemur engum á óvart, þar sem
hann hefur gert það að einu aðal-
áhugamáli sínu, að vama Sósíalist-
um máls.
„Þjóðviljinn“, blað Sósíalista-
flokksins hefir nú verið bannað og
blaðamenn þess fluttir úr landi,
sem stríðsfangar. Alþingi hefir mót-
mælt þessu mjög eindregið, og
Morgunblaðiö heldur því fram, að
með þessu tiltæki hafi lýðræöið
hlotið svo þungt áfall, að frágang'-
sök sé að hafa lýðræðislegar kosn-
ingar að þessu sinni.
Maður skyldi því ætla að þing-
flokkunum væri ljúft, að gefa Só-
síalistaflokknum tækifæri til að
túlka málstað sinn í útvarpinu
nokkrar mínútur, eins og hann
hefir rétt til að lögum.
Hitt mun öllum þeim, sem tekið
hafa af heilum hug undir mótmæli
Alþingis gegn banni „Þjóðviljans“
koma á óvart, ef hið sama Alþingi
bætir nú gráu ofan á svart og svift-
ir Sósíalista lagalegum rétti sínum
til málfrelsis í útvarpi, eftir að þeir
hafa verið rændir ritfrelsi því, sem
þeim ber, samkvæmt stjómarskrá
íslands.
Víkingsprent h. f.