Heimdallur - 20.01.1954, Side 7

Heimdallur - 20.01.1954, Side 7
HEIMDALLUR 7 menn og skemmtileg. Var farið úr bænum á laugardag og gist í Múla- koti og komið aftur í bæinn á sunnu- dag. Þriðja ferðin var á héraðsmót ungra Sjálfstæðismanna í Arnes- sýslu, sem haldið var í Hveragerði. í þeirri ferð var tækifærið notað til að skreppa austur að Sogsfossum og skoðað hið stórkostlega raforkuver, sem þá var verið að reisa. í þeirri ferð hittum við félaga okkar frá Vestmannaeyjum sem voru á skemmtiferð um Suðurland. Urðu þar fagnaðarfundir og deginum eitt með skemmtilegum félögum. Fjórða ferðin var fyrirhuguð aust- ur í Vík í Mýrdal, en þar sem ekki var hægt að hýsa hinn fjölmenna hóp þar var haldið til í Skógarskóla undir Eyjafjöllum og skemmtisam- koma haldin að Skarðshlíð. Næsta ferð var sú lengsta sem far- in var á sumrinu. Var þá ráðist þ að fara norður til Akureyrar og í þæinn aftur á aðeins tæpum þrem dögum. Var lagt af stað héðan frá Reykja- vík á föstudagskvöld og ekið í ein- um áfanga til Akureyrar með ein- um af Skandiabifreiðum Landleiða h. f. Daginn eftir var ekið út í Vagla- skóg og að Goðafossi. Um kvöldið hélt Vörðum, félag ungra Sjálfstæðis- manna á Akureyri skemmtisamkomu að Hótel Norðurlandi. Seinni hluta sunnudags var haldið í bæinn og hingað var komið aðfaranótt mánu- dags eftir erfiða en ógleymanlega ferð. Sjötta ferðin var farin austur að Laugarvatni. Var gist þar í tjöldum. Síðasta ferðin á sumrinu var far- in á haustmót ungra Sjálfstæðis- manna á Akranesi, sem haldið var í hinu glæsilega samkomuhúsi Sjálf- stæðismanna á staðnum. A heimleið- inni var ekið um Uxahryggi og Þing- velli. Sumarstarfsemi félagsins eykst nú ár frá ári og eru hópferðir Heimdall- Frá Vestmannaeyjaferð. ar með afbrigðum vinsælar hjá félög- unum, jafnframt því, sem þær auka mjög kynningu og treysta samstarf ungra Sjálfstæðismanna í Reykjavík og öðrum landsfjórðungum. Eins og áður er getið sá ferðadeild Heimdallar um ferðalög félagsins 1 sumar. Félagslíf deildarinnár hefur einnig verið með mjög miklum blómá í vetur. Haldnir hafa verið margir stjórnar og félagsfundir þar sem ferðafélagarnir koma saman og end- urnýja kunningsskapinn og rifja upp ljúfar endurminningar frá liðnu sumri og ræða um fyrirhugaðar ferð- ir næsta sumar. Deildin hefur auk þess haldið þrjár kvöldvökur og nokkra dansleiki. En umfram allt er það ósk stjórn- ar ferðadeildarinnar, að félagarnir standi saman um að gera þær ferð- ir sem farnar verða á sumri komanda og í framtíðinni, jafn glæsilegar og ferðir þær, sem þegar hafa verið farnar. „RÁÐSTJÓRNARRÍKIN ERU HIÐ EINA FÖÐURLAND“ „En því betur sem sósíalisminn með framkvæmdinni í Sovétríkjun- um sýnir yfirburði sína yfir hið hrörnandi auðvald, því betur skilst öllum verkalýð, að ráðstjórnarríkin eru hið eina föðurland hans í veröld- inni og sósíalisminn eina framtíð hans og von.“ Verkalýðsblaðið 3. nóv. 1931. Úr grein- inni „Tveir heimar“. HEIMDELLINGAR! — Fjölmennið á spilakvöld Heimdallar í Sjálfstæðis- húsinu annað kvöld (fimmtudag). — HEIMDALLUR FYLGIRIT MORGUNBLAÐSINS Ritstj. og ábyrgðarmaðúr Halldór Þ. Jónsson Prentsmiðja Morgunblaðsins

x

Heimdallur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimdallur
https://timarit.is/publication/1807

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.