Heimdallur - 20.01.1954, Blaðsíða 8

Heimdallur - 20.01.1954, Blaðsíða 8
8 HEIMDALLUR - VIRKJUN SOGSFOSSA - írafossstöðin, sem tók til starfa í október. A U S T U R við Sogsfossa gerðist í októbermánuði s.l. einn þeirra at- burða er markað hafa einna dýpst spor í framfarasögu íslenzku þjóð- arinnar. Hin nýja írafossvirkjun var vígð og rafstraumi frá henni hleypt á veitukerfi hennar. 31 þúsund kw. aflstöð var tekin 1 notkun. Heildaar- kostnaður við byggingu stöðvarinnar varð 167 millj. kr. Með byggingu þessarar stöðvar hafði tvöfaldazt sú orka sem raforkuver Reykjavíkur framleiða. Gert er ráð fyrir að þessi orka nægi Reykjavík til 1957, en þá ei' áformað að lokið verði virkjun Efri-Sogsfossa. Þá mun Sogið full- virkjað og orkuver þess framleiða 96 þús. kw. raforku. Hin glæsilegu orkuver við Sog sem nú framleiða 47000 kw raforku eru ávöxtur rúmlega tveggja áratuga þrotlausrar baráttu Sjálfstæðis- flokksins og forráðamanna Reykja- víkurbæjar. Vegna þessa stórhugar og fram- taks berst í dag ljós, ylur og orka frá orkuverunum við Sog um suð- vesturhluta landsins. — Irafossstöðin gerir Áburðarverksmiðjunni og kleift að hefja framleiðslu. En það var við ramman reip að draga. — Tillögur Sjálfstæðismanna mættu harðri andstöðu á Alþingi, er þær voru bornar fram 1931. Fram- sóknarflokkurinn gerði þær að einni af ástæðum sínum fyrir þingrofi og nýjum kosningum og rök þeirra skammsýnu manna voru að þessar framkvæmdir stefndu hag landsins í voða!! Kommúnistar snerust einnig' gegn byggingu írafossstöðvarinnar. Kleift var að reisa stöðina vegna samvinnu íslendinga við vestrænar þjóðir. j samræmi við dagskipan Moskva- Valdsins snerust kommúnistar hér gegn framkvæmdunum, sem nú veita yl, orku og aukna atvinnu inn á mik- inn hluta landsins. Og á hverju ein- asta þessara heimila mun þess verða minnzt, að til voru menn, sem börð- ust gegn þessum glæsilegu umbótum. -------------- Ljósafossstöðin. Þaðan hafa Reykvíkingar fengið raforku frá 1937.

x

Heimdallur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimdallur
https://timarit.is/publication/1807

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.