FLE fréttir - 01.01.1978, Blaðsíða 2
FÉLAGSSTARFIÐ
VERK/fiKIPTING STJÖRNAR: A fyrsta stjörnarfundi hinnar nýkjörnu stjórnar
skipti hun með sér verkum þannig: Ölafur Nilsson formaður, Valdimar
Guðnason varaformaður, Þráinn S. Sigurjónsson ritari, Simon Hallsson
gjaldkeri og Sveinn Jónsson meðstjórnandi.
HADEGISFUNDIR: Hádegisfundir verða fyrsta miðvikudag í hverjum mánuði
í vetur nema í mars, en þá er hann annan miðvikudaginn í mánuðinum.
Fundirnir verða að Þinghóli, Hotel Holti 1. febrúar, 8. mars, 5. apríl,
3. maí og 7. júní.
Tveir fundir hafa verið haldnir á starfsárinu og voru bSðir vel sóttir.
Hinn 7. desember flutti Jakob Sigurðsson, deildarstjóri tölvudeildar
Flugleiða hf. erindi um notkun mikrofilmu, sem notaðar eru við tölvu-
útskriftir í stað pappírs. Sýndi hann slíkar filmur og tæki til að lesa
þær.
Hinn 4. janúar s.l. flutti Sveinn Jónsson erindi um hinar nýju reglur sem
heimila opnun innstæðureikninga í erlendum gjaldeyri við islenska banka
sem hafa heimild til gjaldeyrisviðskipta og dreifði hann gögnum varðandi
hinar nýju reglur.
Næsti félagsfundur verður helgaður skattamálum.
SKATTAHANDBOK: Stjórnin hefur hafið undirbúning að útgáfu skattahandbókar
sem verður lausblaðamappa með helstu lögum og reglugerðum er varða skatt-
lagningu og skattframtöl einstaklinga og félaga. Nánar tiltekið verður
efni handbókarinnar skipt i eftirtalda megin flokka:
Tekjuskattur og eignarskattur
Tekjustofnar sveitarfélaga
Launaskattur, atvinnutryggingar og sjúkratryggingagjald
Iðnlánasjóðsgjald, iðnaðargjald og iðnaðarmálagjald
Söluskattur
Vörugjöld
Aukatekjur rikissjóðs
Nokkur fleiri atriði eru enn til athugunar í þessu sambandi, sem ekki er
ástæða til að telja upp hér.
Nú liggur fyrir sérprentuð heildarútgáfa laga um tekjuskatt og eignar-
skatt og er ætlunin að hún verði í handbókinni. Ekki er hægt að segja
um það nú hvenær handbókin verður til afgreiðslu en vonast er til að það
geti orðið x febrúar n.k.
FELAGSHEIWIILIÐ: Félagsheimilið á Hverfisgötu 106a verður opið á mánu-
dögum kl. 17 - 19. Félagsmönnum skal bent á að meðal lesefnis, sem þar
liggur frammi, eru eftirtalin tímarit sem félaginu berast reglulega:
Tímarit lögfræðinga, Revision og regnskabsvæsen (danskt), Idébat (danskt),
Revisjon og regnskab (norskt), Balans (sænskt), Certified Accountant
(enskt), Accountancy (enskt), Journal of Accountancy (bandarískt),
International Journal of Government Auditing (bandarískt)
Félagsmenn eru hvattir til að líta inn.
FLE FRÉTTIR PÓSTHÓLF 945
121 REYKJAVÍK