Súgandi - 01.01.2014, Blaðsíða 2
2
SÚGANDI 2014
Ný stjórn tók við í Súgfirðinga-
félaginu í vor og hana skipa
Friðbert Pálsson gjaldkeri,
Kristján Pálsson briddsari, Elsa
Eðvarðsdóttir ritstjóri, Alda
Karlsdóttir meðstjórnandi, Eydís
Aðalbjörnsdóttir ritari, Gyða
Halldórsdóttir varaformaður og
Eyþór Eðvarðsson formaður.
Súgfirðingafélagið er nú á 64.
aldursári. Blómlegt starf er sem
fyrr og framundan ekkert annað
en góðir tímar. Það er eðli átt-
hagafélaga að félagsmenn eru á
öllum aldri og margir á hinum
efri árum. Félagsstarfið verður
því að vera á breiðum grunni og
ná til sem flestra.
Einnig er mikilvægt að huga
að því að ná inn unga fólkinu og
halda því. Farið var af stað með
nýjar uppákomur og má m.a.
nefna myndakvöldin síðasta vetur
sem tókust afar vel. En Sturla
Eðvarðsson fór yfir fjölmargar
gamlar ljósmyndir og sagði
frá þeim. Viðburðirnir voru vel
sóttir og vitað er að áhugi er á
að halda fleiri myndakvöld. Í
öðrum átthagafélögum er þetta
vinsælt efni.
Í vetur var haldin spurninga-
keppni í anda Pub Quiz sem
tókst mjög vel. Atli Þorvalds-
son sem er eiginmaður Hafdísar
Halldórsdóttur, dóttir Halldórs
Bernódussonar og Kristínar
Gissurardóttur, hélt utan um
keppnina og framhald verður á
henni næsta vetur.
Í fyrra kom fram hugmynd
frá félagsmönnum um að halda
golfmót og viðbrögðin við því
voru vonum framar. Við fengum
ókeypis aðgang að einum af
bestu golfvöllum landsins við
Laugarvatn hjá Guðmundi
Sigmundssyni og félagarnir
Guðmundur Hermannsson og
Páll Bjarnason tóku að sér skipu-
lagið. Það var vel mætt og að-
gangseyrinn var notaður til að
greiða niður af láninu okkar.
Stefnt er að því að halda annað
golfmót í sumar/haust og við
náum vonandi að gera þetta að
föstum viðburði í félaginu.
Kristján Pálsson heldur vel
utan um briddsið. Reglulega er
spilað yfir veturinn og fjöldi fólks
mætir. Allir eru að sjálfsögðu
velkomnir og þó vissulega
sé kapp í keppendum þá er
félagsskapurinn og vináttan
mikilvægari.
Síðasta vetur var farið í stefnu-
mótun um hlutverk Viðlagasjóðs
og skoðað hvort ástæða væri til
að breyta hlutverkinu. Ákveðið
var að halda áfram því góða
starfi sem sjóðurinn sinnir sem er
að styðja við bakið á þeim sem
lent hafa í erfiðleikum. Sjóðurinn
er nær eingöngu fjármagnaður
með Kirkjukaffinu sem stjórn
Viðlagasjóðs sér um og er alltaf
vel sótt. Úthlutanir úr sjóðnum
eru trúnaðarmál og tilllögur um
úthlutun þurfa að koma til stjór-
nar Viðlagasjóðs sem síðan me-
tur þær.
Þorrablótið okkar tókst vel
eins og fyrri ár og létt var yfir
fólki og mikil stemmning.
Skuldin á Súgfirðingasetrinu
er á hraðri niðurleið þökk sé
samtakamættinum í félaginu.
Mikið verk hefur verið unnið í
húsnæðinu en vinna þarf í nokkrum
atriðum í kjallaranum og næsta
vetur munu sjálfboðaliðar fara
vestur. Íbúðin og húsið allt er í
góðu standi og full ástæða til að
minna félagsmenn á að panta
tímanlega hjá Önnu Bjarna.
Framundan er spennandi tími,
sumarið og sólin. Njótum lífsins
Súgfirðingar.
Frá stjórn