Súgandi - 01.01.2014, Page 11
11
SÚGANDI 2014
Hverra manna ertu?
Berglind Sveinbjörns- og Elínar-
dóttir. Dóttir Sveinbjörns Jóns-
sonar og Elínar Bergsdóttur.
Fjölskylduhagir?
Mjög góðir.
Starf/Nám?
Ég er í doktorsnámi i Atferlis-
greiningu (Behavior Analysis) og
starfa sem ”Program Specialist”
i skóla fyrir börn greind med ein-
hverfu.
Hvar býrðu?
Ég bý í Boston, nánar tiltekið
Allston.
Helsta menningarsjokkið við
að búa erlendis?
Að koma aftur heim í frí.
Helsti munur á Bandaríkja-
mönnum og Íslendingum?
Ameríkanar eru mjög reglu-
samir, það myndi t.d. ekki ganga
ad segja “það reddast” hérna.
Íslendingar eru sveigjanlegri.
Aðalmunurinn er samt að Amerí-
kanar hata lakkrís!!!
Síðasta heimsókn þín til
Suðureyrar?
Sumarið 2009 minnir mig.
Hver er þinn helsti áhrifa-
valdur?
Mamma og pabbi ólu mig upp
þannig að þau hafa séð um að
móta mig framan af - svo eru
það systur, ömmur og afar, vinir,
vinnufélagar, kennarar...
Hver eru þín framtíðaráform
næstu 5 ár?
Ég er með nokkur plön - eitt
af þeim er að útskrifast...svo
byrja öll hin plönin á: “eftir út-
skrift...”
Eitthvert lífsmottó?
Veit nú ekki hvort þetta sé lífs-
mottó en það hefur yfirleitt
reynst mjög vel að fara eftir “just
do it” mottóinu.
Hver er þinn uppáhaldsstaður?
Margir staðir. Hérna i USA er
Newport, Rhode Island í miklu
uppáhaldi. Heima finnst mér
bara sá staður mjög góður sem
ég get tjaldað og verið með
skemmtilegu fólki.
Ertu með einhverja skemmtilega
sögu úr vinnunni/skólanum?
Ég er mjög oft misskilin, t.d.
þegar ég sagði fólki frá því að
ég hefði unnið í „fish factory“
þegar ég var yngri þá misskildu
mig margir og héldu að ég hefði
unnið í „fist factory“. Svo var
ég einu sinni að vinna með
íslenskri stúlku sem missti eitt-
hvað í gólfið og sagði á krútt-
legri íslensku „obbossi“. Þetta
var hins vegar ekki svo krúttlegt í
Ameríkunni þar sem þau heyrðu
bara „oh pussy!“
Ef þú gætir breytt einhverju
einu atriði, hvað myndi það
vera?
Reyni að velta mér ekki upp úr
því sem ekki er hægt að breyta.
Hver er draumurinn?
Held ég sé bara að lifa drauminn
minn.
Ertu eitthvað á leiðinni að
flytja aftur til Íslands?
Ég byrja að plana eftir útskrift.
SÚGFIRÐINGAR Í ÚTLÖNDUM
Berglind
Sveinbjörnsdóttir