Súgandi - 01.01.2014, Blaðsíða 36
36
SÚGANDI 2014
Rífandi stemmning var á Þorra-
blóti Súgfirðingafélagsins sem
haldið var í Versölum 22. febrúar
2014. Ungir og gamlir hittust,
vinir föðmuðust og árgangar
tóku sig saman og rifjuðu upp
liðna tíð. Á matseðlinum var
eitthvað fyrir alla hjá meisturum
þorramatsins Múlakaffi, bæði
þorramatur, glóðarsteikt lamba-
læri, nautapottréttur og saltkjöt
með uppstúf.
Formaður Súgfirðingafélagsins
setti blótið og síðan tók veislu-
stjóri kvöldsins, Tryggvi Rafns-
son sonur Ástu Eyjólfsdóttur, við
og stýrði veislunni af sinni ein-
stöku snilld.
Hæfileikaríkt fólk steig í pontu
og skjallaði kynin. Minni karla
flutti Soffía Guðmundsdóttir
dóttir Sillu og Guðmundar Her-
manssonar en um minni kvenna
sá Björn Þór Jóhannsson sonur
Hildar Guðbjörnsdóttur.
Happdrætti var haldið en allur
ágóðinn rann til Súgfirðinga-
setursins. Um 30 stórglæsilegar
vinningar voru í boði og það
verður að segjast Súgfirðingum
til hróss að það voru allir boðnir
og búnir að leggja félaginu lið
og gefa vinninga af góðum hug
og velvilja.
Sturla Gunnar Eðvarðsson var
skipaður vísubotnadómari og
valdi nokkra botna en fyrri-
partana samdi sem fyrr Snorri
Sturluson.
Zumba dívurnar með Ingrid
Kuhlman í broddi fylkingar stigu
á svið og sýndu nokkra dansa við
góðar undirtektir. Söngfuglarnir
Stjáni og Geiri (Kristján Pálsson
og Siggeir Siggeirsson) sáu um
fjöldasönginn. Dansbandið hélt
síðan uppi rífandi danssveiflu-
stemmningu.
Blótið sýndi að við Súgfirðingar
erum ekki margir en við erum
samheldinn, traustur hópur sem
hefur gaman af því að njóta líf-
sins í góðra vina hópi. Alltaf er
Súgfirðingar hittast er mikið fjör
og gaman.
Árgangar eru hvattir til að taka
sig saman fyrir næsta blótið og
rifja upp gamlar minningar.
Mikið fjör og gaman á Þorrablóti
Súgfirðingafélagsins