Lýðfrelsið - 28.02.1941, Síða 2
LÝÐFRELSIÐ
Vaxandi samtök -
Vaxandi störf -
Stofnþing Sambands sjálf-
stæðisverkamanna og sjómanna
var haldið i Reykjavík dagana 9.
og 10. júní 1940 og er því
enn ekki órsgamalt.
Stofnun sambandsins var
brýn nauðsyn fyrir málfundafé-
lög sjálfstæðisverkamanna og
sjómanna. Með því skópu þeir
órjúfandi heild þeirra manna, er
drengilegast vildu berjast gegn
því ófremdar ástandi, er ríkti,
innan verkalýðssamtakanna, og
skapa fullkomið jafnrétti og
lýðræði innan þeirra. Þær von-
ir, sem málfundafélög sjálf-
stæðisverkamanna og sjó-
manna, tengdu við sambandið
hafa ekki brugðizt.
Á hinum stutta tíma frá
stofnun þess, hefir það sýnt
mikið og ótrautt starf í frelsis-
baráttu verkamannanna og
komið í veg fyrir, með beinum
og óbeinum óhrifum, að verka-
mennimir og sjómennirnir
væru niðurlægðir svo mjög,
innan sinna eigin samtaka, sem
forustu-sveit Alþýðuflokksins
óskaði. Tíminn mun leiða í ljós,
að framtíðarstarf sambandsins
fer vaxandi og mun af þvi hljót-
ast mikið gagn, alþjóðar.
Enda munu allir beztu menn í
alþýðustétt, til lands og sjávar,
einnig þeir, sem enn standa ut-
an sambandsins, fylkja sér und-
ir merki þess og ganga gunn-
reifir og sigurvissir til orustu
móti hverskonar spillingu og
rangindum.
Tilgangi sambandsins er lýst
í 2. gr. sambandslaganna.
Þar segir svo:
„Tilgangur sambandsins er
að vinna að framgangi þeirra
mála, sem miða til hagsmuna
og menningarbóta verkamönn-
um og sjómönnum, einkum ber
að efla, styrkja og útbreiða sam-
tök sjálfstæðisverkamanna og
vinna að því að koma á full-
komnu lýðræði og jafnrétti
innan verkalýðssamtakanna."
Auk þess var strax á stofn-
þingi sambandsins samþykktar
tillögur í verkalýðsmálum og at-
vinnumiálum, sem marka nánar
stefnu sambandsins í einstökum
átriðum. Voru þessar tillögur
birtar í helztu dagblöðum Rvik-
ur á sínum tíma og því mörgum
kunnar. Því verða þær ekki
teknar upp hér að svo stöddu,
en verða seinna birtar í blaðinu,
eða gefið glöggt yfirlit yfir þær,
eftir þvi sem ástæða þykir til.
Sambandsstjórninni varð
r.nemma Ijós, að nauðsyn krafði
r
r *
Verkamannafél. Dagsbrún og
Reykjavíkurbær hafa gert með
sér samning „um kaup og kjör
verkamanna er timakaup taka“.
Þetta er í fyrsta skipti, sem
Dagbrún og bærinn gera með
sér slíkan samning. Samningur-
inn var undirritaður af Bjarna
Benediktssyni, borgarstjóra,
fyrir hönd bæjarins og stjórn
Dagsbrúnar þ. 12. febr. s. 1.
Samningur þessi er mikið til
samhljóða samningi Dagsbrún-
ar við Vinnveitendafél. íslands,
sem undirritaður var þ. 9. jan.
s. 1. Nokkur nýmæli eru í samn-
ingnum, sem ekki eru í samn-
ingum við aðra aðilja.
Verkamenn fá sumarfri með
fullu kaupi samkvæmt eftirfar-
andi reglum:
Verkamenn fá sumarfri fyrir
8—15 vikna vinnu 2 daga.
16—25 — — 3 —
26—35 — — 4 —
36—45 — — 5 —
46—52 — — 6 —
Um flutning verkamanna til
og frá vinnustað eru eftirfar-
andi ákvæði:
Þegar unnið er utanbæjar
skal flytja verkamenn á vinnu-
stað og til baka. Fer flutningur
að vinnustað fram í vinnutíma,
en flutningur frá vinnustað ut-
an vinnutíma.
Um vinnutíma er eftirfarandi
í samningnum:
„Raunverulegar vinnustundir
skulu ekki vera fleiri en 9 á
<legi hverjum, nema að unnin
sé eftirvinna, þó telzt ekki eft-
irvinna yfir sumarmánuðina þó
byrjað sé (kl.) 6)4 f.h. og liætt
að sambandið hefði málgagn,
sem tengdi meir saman mál-
fundafélögin, víðsvegar um
landið. Því hefir hún ráðizt í
að gefa út blað, sem verður boð-
beri þeirrar stefnu, er sjálfstæð-
isverkamenn hafa tileinkað sér.
Með þessu er í milcið ráðizt, en
sambandsstjórnin treystir því,
að sjálfstæðisverkamenn og sjó-
menn, velunnarar þeirra og
alls verkalýðs, bregðizt vel við,
og veiti blaðinu stuðning, með
þvi að kaupa blaðið, senda því
greinar og fréttir og með því að
vinna að útbreiðzlu þess eftir
bvi sem ástæður leyfa. Nafn
blaðsins, „Lýðræðið“, er tákn
þeirra hugsjónar er blaðið vill
helga sér og þeirrar stefnu er
það mun túlka.
þeim mun fyr á laugardögum,
svo framarlega sem samanlagð-
ur fjöldi raunverulegra vinnu-
stunda ekki fer fram úr 54 klst.
á viku.
í samninginn eru tekin sömu
ákvæði og eru í samningnum
við Vinnuveitendafél. Islands
um, að ef verkamaður slasast
vegna vinnu, skal hann halda
óskertu kaupi eigi skemur en 6
virka daga.
Vinnuveitandi kostar flutning
hins slasaða til heimilis eða
sjúkraliúss, ef læknir telur slíkt
nauðsynlet.
Samningurinn gildir frá und-
irskriftardegi til 1. febr. 1942.
Sé honum ekki sagt upp fyrir
1. nóv., framlengist hann um
eitt ár í senn.
Ennfremur hefir Verka-
mannafél. Dagsbrún gert samn-
inga við Almenna byggingarfé-
lagið h.f. og Sigurð Thoroddsen,
verkfræðing, varðandi kaup og
kjör verkamanna, sem lijá
þeim vinna.
Er í báðum samningunum
skuldbinding um að fylgja í
öllu samningi þeim milli Verka-
mannafélagsins Dagsbrún og
Vinnuveitendafélags Islands,
sem Undirritaður var 9. jan. s.
1., að viðbættri 1. gr. er hljóðar
svo:
Vinnutími verkamanns telst
frá því hann kemur á vinnustað
þar til bann hættir vinnu, að
frádregnum matartíma. Þetta
gildir þegar unnið er innanbæj-
ar. Þegar unnið er utanbæjar
skal flytja vei'kamenn ókeypis
frá miðbænum að vinnustað og
til baka. Fer flutningur að
vinnustað fram í vinnutíma, en
flutningur frá vinnustað utan
vinutíma.
Þessir samningar voru undir-
ritaðir 14. febr. s. 1.
Alfred Guðmundsson.
Til lesendanna
„Lýðfrelsið“ mun túlka mál-
stað frelsis og bræðralags. —
Það er þinn málstaður. — Því
sendum við þér blaðið og vænt-
um þess, að þú verðir kaupandi
þess, og styðjir á þann hátt, þann
málstað, sem þér er kærastur.
Ef þú annt þínum málstað, villt
styi’kja liann og endursendir
ekki blaðið, lítum við á þig, sem
fastan áskrifanda að blaðinu.
„Lýðfrelsið“ kemur út einu
sinni í viku. Því fylgir rit, sem
kemur út annan hvern mánuð,
tvö stærri hefti og fjögur minni.
Fylgiritið mun innihalda ýmsan
fróðleik, sem gagnlegur er
hverjum manni og nauðsyn er
á, að geyma og leita til við ýms
tækifæri. Það verður ómissandi
á hverju heimili. — Áskrifendur
blaðsins fá fylgiritið endur-
gjaldslaust, með því verður
„Lýðfrelsið“ ódýrasta vikublað-
ið á landinu, en gefur þó beztar
upplýsingar og mestan fróðleik.
— Fyrsta fylgiritið mun koma
út 1. maí n. k.
„Lýðfrelsið“ kemur út einu
sinni í viku.
Áskriftargjald á mánuði er
kr. 1.50.
Fylgirit kemur með blaðinu
annan hvern mánuð. Það fá
fastir áskrifendur endurgjalds-
laust.
1 ársfjórðungur fellur í gjald-
daga í einu.
I. ársfjórðungurinn fellur í
gjalddaga á þessu ári: 1. marz,
annars 1. janúar.
I II. ársfjórðungi er gjald-
daginn 1. apríl.
I III. ársfjórðungi er gjald-
daginn 1. júlí.
I IV. ársfjórðungi er gjald-
daginn 1. október.
Þeir, sem óska sérstaklega að
greiða gjaldið mánaðarlega geta
fengið það.
[DA6S9R6NI Tii .KYraiim
rj- mmr
Kaup Dagsbrúnarverkanianna
verður í marz 1941, á kl.st. sem hér segir:
Dagkaup........................Kr. 2,15
Eftirvinnukaup................— 3,18
Helgidagakaup.................— 4,00
Næturvinnukaup, sé hún ieyfð . . — 4,00
Stjópnin.