Lýðfrelsið - 28.02.1941, Page 3

Lýðfrelsið - 28.02.1941, Page 3
LÝÐFRELSIÐ Alþýðusambandið opinberar fávisku sína! VÖRPUGARN LÍNUGARN BINDIGARN Ennfremur BOTNVÖRPUR fyrir togara og vélbáta jafnan fyrirliggjandi. Siglið á miðin með veiðarfæri f r á H.f. Hampiðjan Reykjavík Símar: 4390— 4536 Símnefni: Hampiðja. SÍMI 5605. SÍMI 5605. Nýja Fornsalan AÐALSTRÆTI 4. Stærsta og fjölbreyttasta fornsala iandsins. — Kaupir og selur allskonar húsgögn ný og notuð. Karlmannafatnað og margt fleira. Sækjum og sendum. — Sendum gegn póstkröfu um land allt. Sfmi 5605. NYJA FORNSALAN Aðalstræti 4. - Sími 5605. Deila sú, sem Sjöfn, félag stúlkna, sem vinna á veitinga- stöðum, hefir staðið í, undan- farið, við Vinnuveitendafélag slands, er að mörgu leyti merki- leg og táknræn um það hæfi- leikaleysi sem einkennir AI- þýðuflokksmenn í kaupdeilum. — Það er í sjálfu sér alveg aug- ljóst mál, að stúlkurnar hafa haft fullaástæðu til að fara fram á og fá kjarabætur í samræmi við annað starfsfólk á landinu. Hitt er jafn víst, að ef þær sjálf- ar, eða menn fyrir þeirra hönd, sem hefðu lægni og lipurð til að annast samninga, hefðu farið með samningaumleitanir, þá hefði aldrei komið fyrir það öngþveiti, sem nú ríkir í þeirra málum. Meginstyrkur þeiri’a, sem standa í deilu, er að vita hvað þeir eru sterkir, því eftir því verða þeir að hegða sér. Nú er það alveg upplýst, að Alþýðu- samhandsstjórnin sem tók að sér að fara með samninga f. h. stúlknanna, hafði ekki hug- mynd um styrkleika Sjafnar né Alþýðusambandsins. Því teymir það stúlkumar út í baráttu um það, sem vonlaust er að niá. Síð- an skipar það þjónum og hljóm- sveitarmönnum að gera samúð- arverkfall, fyrirvaralaust. Sam- úðarverkfallið er kært. Og Fé- lagsdómur dæmir það ólöglegt samkvæmt íslenzkum lögum og dæmir Alþýðusambandið til að greiða málskostnað og sekt. — Nú fyrst sér Alþýðusambandið hversu klaufalega það hefir haldið á málunum. Alþýðublað- ið ærist og lætur öllum illum látum. Það hrópar — Góðir menn! Þetta var ekki Félags- dómur! Nei, það var „stéttar- dómur“! Og Þjóðviljinn og Nýtt Iand taka undir. Það var „stéttardómur“. Skyldi stúlkunum sem standa í verkfallinu líða betur ef dóm- urinn er kallaður „stéttardóm- ur“, skyldu líkindum fyrir lausn deilunnar fjölga fyrir það eða styrkur verkalýðssamtakanna alikast. Nei. Sannarlega ekki. Það skiptir engu málifyrirneinn aðila hvort dómurinn heitir Fé- lagsdómur, „stéttardómur“, Stefáns Jóh. dómur eða hvað annað, sem mönnum gæti dottið í hug. Aðalatriðið er, að það hefir verið dæmt eftir íslenzk- um lögum. Og dóminn er engin ástæða til að véfengja. Því á, í stað þess að ærslast og leita að nöfnum til að fela sannleikann, að snúa sér að því, að fá lög- gjöfinni þannig breytt, að gallar þeir, sem fram hafa komið verði útilokaðir. En það verður ekki gert með neinum ofstopa eða reiðilestri, því síður, flausturs- frumvarpi, eins og þvi, sem Brynjólfur Bjarnason flytur á Alþingi um þetta. Samúðar-verkföll geta verið með ýmsu móti. Þó munu tvær tegundir þess vera algengastar: 1) að gera samúðarverkfall hjá aðila, sem á í deilu, þar sem svo háttar, að deiluaðili reynir að láta menn á öðru starfsvæði leysa þau verk af hendi, sem verkfallsmenn unnu áður, eða hefir þannig atvinnurekstur að fleiri, en einn samningsaðili af launþegahálfu hefir störf á hendi hjá sama vinnuveitenda, i en standa ekki á sama tíma i kaupdeilu. — Slík samúðarverk- föll ættu að vera leyfð fyrirvara- laust og ætti þar aðeins að koma til samþykki þeirra launþega, er hlut eiga að máli. Því þar nær samúðarverkfallið aðeins til þess aðila er í deilunni stendur. — Svo var í þessari deilu Sjafn- ar og það gilti að sjálfsögðu ef vinnuveitandi, t. d. útgerðar- maður, vildi láta inna starf af hendi á öðru starfsvæði en verkfallsmenn ná til, t. d. af- ferma eða ferma skip, 2) er að gera samúðar-verk- fall hjá öðrum aðila, en þeim, sem standa beint í deilunni. — Það væri t. d. ef Dagsbrún gerði allsherjarverkfall í samúðar- skyni við Hlíf í Hafnarfirði, án þess að Hafnfirzkir atvinnu- veitendur hefðu reynt að not- færa sér vinnukraft Dagsbrún- arverkamanna, eða samúðar- verkfall Dagsbrúnar kæmi beint niður á þeim. Slíkt samúðar-verkfall ætti ekki að leyfast nema með lög- legum fyrirvara, því það verk- fall lendir á mönnum, sem eru ekki beinir deiluaðilar. Jafn sjálfsagt er, að löggjöfin tryggi, að elcki sé gengið í störf verkfallsmanna af verkfalls- brjótum, hvort heldur þeir eru félagsbundnir í samtökum verkamanna eða ekki. Fleiri breytingar þyrftu á vinnulöggj öfinni, sem ekki verða ræddar hér að þessu sinni. Hins- vegar skal á það bent, að það er varhugavert að gera slík frumhlaup í kaupdeilum eins og Alþýðusambandsstjómin hefir gert í deilu Sjafnar, enda finna þeir til þess sjálfir manna grey- in, og er nú minni gorgeir í þeim, en þegar þeir blesu sem mest út af því, að Dagsbrún og Hlíf voru ekki í Alþýðusam- bandinu. En fyrir þetta frumhlaup Al- þýðusambandsins eiga meðlimir Sjafnar einskis að gjalda og ættu veitingamenn að vera þess minnugir.

x

Lýðfrelsið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lýðfrelsið
https://timarit.is/publication/1818

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.