D-listinn - 13.01.1942, Side 3

D-listinn - 13.01.1942, Side 3
D- LIS TIN N 3 Bæjarstjórnar- kosnin£arnar. Sú nýbreytni hefir nú skapazt við í hönd farandi bæjarstjórnar- kosningar, að listi óháðra manna hefir komið fram. Eru Siglfirðingar nú ekki lengur knúðir til þess að velja milli hinna pólitisku flokka við fulltrúaval í bæjarstjórn. Allir hugsandi menn sjá hversu fráleitt það er, að málefnum bæj- arins sé stjórnað eftir pólitískum hagsmunum einhverra landsmála- flokka, og fulltrúar bæjarfélagsins taki afstöðu til hinna ýmsu bæjar- mála eftir því sem miðstjórnir flokkanna í Reykjavík skipa fyrir. Það á að verða markmið bæjar- búa að Iosa sig undan þessu póli- tíska oki og kjósa eingöngu bæj- arfulltrúa, sem eru algerlega utan við þennan pólitíska feluleik, og vinna að framfaramálum bæjar- félagsins, án allrar pólitískrar valdastreitu. tímabili, væri ekki að undra, þótt háttvirtir kjósendur vildu spyrja sem svo: Er ástæða til þess að treysta þessum mönnum í annað sinn? Eru nokkrar likur fyrir því nú frekar en áður, að þeir ekki svíki gefin loforð og allt lendi í innbyrðis deilum eins og áður? Er þarna ekki um of verið að treysta á trúgirni fólksins? B-listinn, listi Framsóknarmanna. Þá hefir Framsóknarflokkurinn lagt fram lista, þótt fæðing hans gengi treglega eins og vænta mátti, þar sem Þormóður Eyólfsson er þar efsti maður. Mun megn óánægja vera meðal Framsóknar- mannna með listann, og það að vonum, þar sem þeir, margir hverjir, vilja unna bæjarfélaginu alls hins bezta, en framkoma Þor- móðs í bæjarmálum oft gengið í gagnstæða átt. Er þar skemmst að minnast afstöðu þeirrarer hann tók í Rauðkumálinu, og sem varð til þess að skaða bæjarfélagið og afkomumöguleika fjölda verka- manna gífurlega, að ógleymdu því tjóni, er sjávarútvegurinn í heild beið við þann verknað. C-listinn, listi Sjálfstœdismanna. Loks hafa Sjálfstæðismenn lagt fram lista, og telja margir að hann hafi möguleika til þess að sofa svefninum langa. Um stefnu Sjálf- stæðismanna í bæjarmálum þarf litið að segja. Hún er bæjarbúum svo vel kunn frá því er þeir fóru með völd hér í bæjarstjórn. Sú kyrstaða, þröngsýni og afturhald er þar ræður er löngu þekkt og dauðadæmt meðal þjóðarinnar. Framtíð Siglufjarðar verður að- eins byggð upp af frjálsræði, víð- sýni og athöfnum, en ekki af kyr- stöðu og afturhaldi. Þessvegna er það, að þeir Sigl- firðingar sem unna velgengni og athafnalífi á Siglufirði kjósa D-listann. A-listinn, listi sósíalista og jafnaðarmanna. Þá hafa sósíalistar og jafnaðar- menn aftur myndað með sér kosn- ingabandalag. Það furðar marga kjósendur, hve fljótt þessir menn verða vinir, þeg- ar bæjarstjórnarkosningar fara í hönd, þótt þeir ausi hver aðra auri og brígslyrðum milli kosn- inga. Við síðustu bæjarstjórnarkosn- ingar stóðu þessir flokkar saman, sem einn væri, og lofuðu kjós- endum gulli o^grænum skógum, ef þeir fengju meirihlutaaðstöðu. Þessa meirihlutaaðstöðu fengu þeir þá, en um efndirnar getur hver maður dæmt sjálfur, með því að lesa yfir málefnasamning þann, er þeir þá gerðu um framkvæmdir í helztu bæjarmálum, og bera hann saman við veruleikann, eins og hann er í dag. Þar þarf engatúlk- un á betri eða .verri veg, því verk- in tala þar sjálf. Nú, þegar þessir flokkar enn á ný ganga til kosninga, eftir allt sem á undan er gengið og biðja enn á ný um meirihlutaaðstöðu, til þess að geta efnt eitthvað af því, sem ógert er frá síðasta kjör- Siglfirðingar. Minnist þess að listi ykkar er D-listinn. Ef þið verðið fjarverandi úr bænum á kjördegi, þá munið að kjósa áður en þið farið. Allar uppl. gefur skrifstofa D-listans, Að- algötu 16 (hús Adolfs Einarssonar) Sími 252 D-Iistinn er ekki háður neinum pólitísk- um flokki, þessvegna er D-listinn eini listinn, sem er Siglfirðinga eingöngu. r

x

D-listinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: D-listinn
https://timarit.is/publication/1823

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.