KFS-blaðið - 01.11.1941, Blaðsíða 9

KFS-blaðið - 01.11.1941, Blaðsíða 9
KAUPFÉLAGSBLAÐIÐ KAUPFÉLAGSBLAÐIÐ Útgefandi: Kaupfélag Siglfirðinga Ábyrgðarmaður: Björn Dúason Afgreiðsla: Matvörudeild KFS Siglufjarðarprentsmiðja. VEIZTU! Veiztu, að glerið er til margra hluta nytsamlegt, og er alltaf að ryðja sér meira og meira til rúms. Nútíminn krefst þess, að dagsljósið eigi greiða leið inn í híbýli manna, þess vegna er gler notað æ meira sem byggingarefni. Á 42. götu Broadway í New-York er ný- buið að reisa hina svonefndu Rialto- building, einn hinna sjö skýakljúfa úr gleri. Á þessari byggingu er 30 metra hár glerturn, glæstasta glerbyggingin, sem nokkru sinni hefur verið reist. En glerið er til fleiri hluta nytsamlegt, en að vera byggingarefni. Margvíslegar tilraunir eru nú gerðar með gler víðsvegar í heiminum, iilraunir, sem þegar hafa sýnt undraverð- an árangur. Gler má t. d. vel nota í fatnað. Fyrsti glerhatturinn var búinn til í Ameríku. Kona efnafræðings í amerískr/ glerverk- smiðju prjónaði sér hatt úr bláum gler- þræði. Henni hepnaðist einnig að prjóna sér litla tösku úr sama efni. Verkastúlk- urnar í þessari glerverksmiðju nota kjóla, sem þær hafa sjálfar prjónað sér úr gler- þræði. í Paiís hafa verið sýnd nærföt úr gleri, háir glerhælar o.fl. o.fl. Ef til vill kemur sá tímí, að kvenfólk notar eingöngu föt úr gleri— gagnsæju? Glerið er brætt áður en það er spunnið. Það er hægt að spinna úr því mjög fínan þráð, tuttugu Munið að greiða brunabótagjöldin til Brunabótafélags íslands fyrir 20. nóvember n. k. Þormóður Eyólfsson. Húsmœður ! Notið ávallt beztu vörurnar. — Biðjið um SANA-vörur. Styðjið siglfirzka framleiðslu. Sana vörur beztar, drýgstar. EFNAGERÐ SIGLUF3ARÐAR h/f. sinnum fír.ni en venjulegt mannahár, og mun fínna en silki, en jafnframt er þessi þráður mikið sterkari. í Tékkó-slóvakíu eru framleidd rakblöð úr gleri. Þau eru álíka beygjanleg og stálblöð, en nokkru ódýrari. Útvarpstæki hafa verið búin til úr dökkbláu gleri og stáli. Teygjanlegt gler, sem lætur undan fyrir þungum höggum, en brotnar ekki, er not- að í bílrúður. Slíkar rúður má vefja upp. Þannig mætti lengi nefna dæmi þess, hvernig glerið ryður sér æ meira til rúms, dæmi, sem jafnframt eru sannanir þess, að nú mun vera að hefjast sannarlega gleröld í heimi hér. Heima '38 Sendið blaðinu greinar og fyrirspurnir. 9

x

KFS-blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: KFS-blaðið
https://timarit.is/publication/1830

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.